Fara í efni

Bæjarráð

666. fundur 05. janúar 2017 kl. 08:00 - 08:15 í fundarsal Sunnumörk 2
Nefndarmenn
  • Unnur Þormóðsdóttir formaður
  • Eyþór H. Ólafsson
  • Garðar R. Árnason
  • Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri
  • Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Unnur Þormóðsdóttir formaður setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Bréf frá Mennta- og menningarmálaráðaneytinu frá 15.desember 2016.

1612036

Í bréfinu er þakkað fyrir upplýsingar frá Hveragerðisbæ vegna eftirfylgni með úttekt á Grunnskólanum í Hveragerði sem var gerð í apríl 2013.
Lagt fram til kynningar en Hveragerðisbær hefur nú að mati ráðuneytisins gert fyllilega grein fyrir umbótum í kjölfar úttektar ráðuneytisins.

2.Bréf frá leikskólastjórum leikskóla Hveragerðisbæjar frá 21.desember 2016.

1612037

Í bréfinu óska leikskólastjórar eftir að undanþága verði veitt frá reglum um inntöku barna af biðlista vegna barna tveggja fagaðila sem eru að hefja störf við leikskólana.
Bæjarráð samþykkir erindið en felur jafnframt bæjarstjóra að hefja undirbúning að endurskoðun á reglum um innritun og innheimtu gjalda á leikskólum með það fyrir augum að nýjar reglur taki gildi í tengslum við opnun nýs leikskóla.

3.Bréf frá fulltrúaráði Sólheima frá 13.desember 2016.

1612039

Í bréfinu er kynnt ályktun frá fulltrúaráði Sólheima vegna samningaviðræðna við Bergrisann um gerð nýs samnings um áframhaldandi þjónustu Sólheima.
Lagt fram til kynningar.

4.Bréf frá kennurum Tónlistarskóla Árnesinga ódagsett.

1612040

Í bréfinu er kynnt ályktun kennara í Tónlistarskóla Árnesinga vegna kjarasamningaviðræðna sem nú standa yfir.
Lagt fram til kynningar.

5.Lóðarumsókn Vorsabær 1.

1701001

Lögð fram lóðarumsókn frá Arnon ehf sem sækir um lóðina Vorsabær 1.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Arnon ehf lóðinni Vorsabær 1 samkvæmt þeim reglum sem gilda um úthlutun lóða í Hveragerði.

6.Minnisblað frá bæjarstjóra vegna Gróðurmarkar 3.

1612046

Í minnisblaðinu kemur fram að hluti samkomulags milli Hveragerðisbæjar og Ræktunarmiðstöðvarinnar var að Ræktunarmiðstöðin fengi úthlutað lóðinni Gróðurmörk 3.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Ræktunarmiðstöðinni lóðinni Gróðurmörk 3 samkvæmt þeim reglum sem gilda um úthlutun lóða í Hveragerði.

7.Samningur við Hengil, líkamsrækt ehf.

1612048

Lagður fram samningur við Hengil, líkamsrækt um afnot af kjallara íþróttahússins við Skólamörk.
Bæjarráð samykkir samninginn.

8.Samningur við Sveitarfélagið Ölfus vegna gámasvæðis.

1612050

Lagður fram samningur um afnot Ölfusinga af Gámasvæði Hveragerðisbæjar.
Bæjarráð samþykkir samninginn.

9.Verkfundargerð "Þelamörk 62 leikskóli - jarðvinna" frá 21.desember 2016.

10.Fundargerð Bergrisans frá 12. október 2016.

1612041

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

11.Fundargerð Bergrisans frá 21.október 2016.

1612042

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

12.Fundargerð Bergrisans frá 19.desember 2016.

1612049

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

13.Fundargerð stjórnar SASS frá 16.desember 2016.

1612043

Með fundargerðinni fylgdi niðurstöður könnunar um húsnæðismál á Suðurlandi.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

14.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 16.desember 2016.

1612047

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

15.Fundargerð Öldungaráðs Hveragerðis frá 2.september 2016.

1612038

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að hitta Öldungaráð Hveragerðisbæjar og ræða þar þau málefni sem fram koma í fundargerðinni.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

16.Fundargerð Sorpstöðvar Suðurlands frá 13. desember 2016.

1701002

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerð upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 08:15.

Getum við bætt efni síðunnar?