Fara í efni

Bæjarráð

649. fundur 07. apríl 2016 kl. 08:00 - 08:47 í fundarsal Sunnumörk 2
Nefndarmenn
  • Unnur Þormóðsdóttir formaður
  • Eyþór H. Ólafsson
  • Viktoría Sif Kristinsdóttir
  • Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri
  • Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Unnur Þormóðsdóttir formaður setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Umhverfis- og samgöngunefnd frá 16. mars 2016.

1603042

Í bréfinu er óskað eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu til að draga úr notkun á skaðlegum efnum í neysluvörnum, 247. mál.
Lagt fram til kynningar.

2.Orkustofnun frá 11. mars 2016

1604002

Í bréfinu eru kynntar reglur Orkustofnunar um viðbúnað og viðbrögð við jarðskjálftavá vegna losunar á vökva í jörðu.
Lagt fram til kynningar.

3.Ferðamálastofu frá 4. apríl 2016

1604001

Í bréfinu er tilkynnt að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hafnaði umsókn Hveragerðisbæjar um styrk vegan gerðar heimasíðu um ferðamál.
Lagt fram til kynningar en í þessari sömu úthlutun fékk Hveragerðisbær kr. 2.900.000.- til að uppbyggingar í Hveragarðinum.

4.Minjastofnun Íslands frá 18. mars 2016.

1603038

Í bréfinu er tilkynnt að Minjastofnun Íslands hefur samþykkt styrk úr húsfriðunarsjóði til Hveragerðisbæjar að upphæð kr 500.000.- til verkþáttarins nýsmíði og viðgerð glugga í Mjólkurbúi Ölfusinga, Breiðamörk 26.
Bæjarráð þakkar stuðninginn.

5.Samorku frá 21. mars 2016

1603039

Í bréfinu er kynnt samþykkt frá aðalfundi vegna frestunar á hluta aðalfundar og jafnframt boðað á framhaldsaðalfund Samorku sem haldinn verður 15. apríl n.k.
Lagt fram til kynningar.

6.Ársæli B. Ellertssyni frá 31. mars 2016

1604008

Í bréfinu óskar bréfritari eftir heimild bæjarins til að nota merki bæjarins í blaðhaus blaðs sem fyrirhugað er að komi út reglulega og borið verður út á öll heimili bæjarins.
Því miður sér bæjarráð sér ekki fært að verða við erindinu því merki Hveragerðisbæjar er einungis notað á prentað efni frá Hveragerðisbæ. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að útbúa reglur um notkun bæjarmerkisins.

7.Ungmennaráði UMFÍ ódagsett.

1604003

Í bréfinu er álytkun Ungmennaráðstefnu UMFÍ, Ungt fólk og lýðræði, sem haldin var 16. - 18. mars s.l. þar sem ráðstefnan skorar á ríki og sveitarfélög að leita meira til ungmenna og taka tillit til þeirra skoðana á málefnum samfélagsins, einkum þeim er varða ungmennin sjálf.
Lagt fram til kynningar.

8.Dagforeldri.is frá 23. mars 2016

1603040

Í bréfinu er kynntur nýr vefur "dagforeldri.is" sem verður vefur fyrir daggæslu í heimahúsum. Hveragerðisbæ er boðið að gerast aðili að vefnum með kynningu á sveitarfélaginu gegn ákveðnu mánaðargjaldi.
Því miður sér Hveragerðisbær sér ekki fært að vera með í verkefninu.

9.Heilsbrigðistofnun Suðurlands frá 18. mars 2016

1604009

Með bréfinu fylgdi stöðuskýrsla um ört vaxandi umfang sjúkraflutninga á Suðurlandi árin 2011-2015.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð Hveragerðis fagnar góðu starfi sjúkraflutninga á Suðurlandi og ítrekar mikilvægi þess að nægir fjármunir renni til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands svo tryggja megi öryggi íbúa og ferðamanna.

10.Fanneyju Ásgeirsdóttur frá 4. apríl 2016

1604010

Í bréfinu segir Fanney Ásgeirsdóttir upp starfi sínu sem skólastjóri Grunnskólans í Hveragerði og eru áætluð starfslok 31. júlí n.k.
Uppsögnin lögð fram en á fundi bæjarstjórnar í næstu viku verður ákvörðun tekin um fyrirkomulag ráðningar nýs skólastjóra. Bæjarráð þakkar Fanneyju störf hennar hjá bæjarfélaginu og óskar henna velfarnaðar á nýjum vettvangi í framtíðinni.

11.Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18. mars 2016

1603041

Lögð fram til kynningar.

12.Fundargerð Sambands sunnlenskra sveitarfélaga frá 4. mars 2016

1603043

Lögð fram til kynningar.

13.Fundargerð Brunavarna Árnessýslu frá 22. janúar 2016

1604004

Lögð fram til kynningar.

14.Fundargerð Brunavarna Árnessýslu frá 24. feb 2016

1604005

Lögð fram til kynningar.

15.Fundargerð Brunavarna Árnessýslu frá 30. mars 2016

1604006

Lögð fram til kynningar.

16.Fundargerð fagráðs Tónlistarskóla Árnesinga frá 4. apríl 2016

1604007

Lögð fram til kynningar.
Fundargerð upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 08:47.

Getum við bætt efni síðunnar?