Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
Dagskrá
1.Bláskógar 7 - Umfangsflokkur 1
2607095
Þann 28.07.2026 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 1 fyrir Bláskóga 7. Sótt er um leyfi fyrir brettu innra skipulagi. Þrír gólfkótar eru í núverandi húsi sem verða sléttir í einn kóta. Geymsla verður stækkuð. Útveggjaklæðning verður endurnýjuð.
2.Brattahlíð 2 - Umfangsflokkur 1
2605150
Þann 22.05.2026 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 1 fyrir Bröttuhlíð 2. Sótt er um leyfi fyrir 288 fm stálboga gróðurhús klætt plastdúk.
Þann 15.06.2026 tók skipulags- og umhverfisnefnd umsóknina til meðferðar og samþykkti að grenndarkynna byggingarleyfið skv. 2. mgr. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bréf verða send til að vekja athygli á grenndarkynningunni í nálæg hús: Brattahlíð 1a, 1b, 3a, 3b og 4, Laufskóga 18, 21, 23, 25 og 27 auk Hverahlíðar 2. Engar athugasemdir bárust.

Athugasemdir sendar á hönnuð.
3.Heiðarbrún 3 - Samkomulag um geymsluskúr nálægt lóðamörkum
2608145
Móttekið er samkomulag á milli lóðarhafa um að geymsluskúr verði staðsettur á lóð Heiarbrúnar 3, nálægt lóðamörkum Heiðarbrúnar 5 og Heiðarbrúnar 13.
Samkomulag móttekið.
4.Laufskógar 7 - Umfangsflokkur 1
2609122
Þann 17.09.2026 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 1 fyrir Laufskóga 7. Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu á tveimur aðskildum hæðum útfrá núverandi íbúðarhúsi. Samþykki allra eigenda liggur fyrir.
Máli vísað til skipulagsnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
5.Sunnumörk 6 - Umfangsflokkur 1
2608054
Þann 11.08.2026 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 1 fyrir Sunnumörk 6. Sótt er um leyfi fyrir endurnýjun og stækkun á upplýsinga- og verðskilti Atantsolíu sem er áfast tæknihúsi. Breytt er um tegund ljósgjafa, sem verður birtustýrður LED ljósbúnaður. Birtustýring er í samræmi við nýjar kröfur byggingarreglugerðar.
Þan 04.09.2026 barst umsögn skipulagsfulltrúa með eftirfarandi texta: Núverandi skilti er sýnt á grunnmynd deiliskipulags en er utan byggingareitar. Heildar deiliskipulag svæðisins var samþykkt í bæjarstjórn 14. desember 2017. Engin ákvæði um skilti eru í gildandi deiliskipulagi.
Skipulagsfulltrúi leggur til að umsóknin fari í umfjöllun skipulags- og umhverfisnefndar.

Máli vísað til skipulags- og umhvefisnefndar.
Fundi slitið - kl. 09:30.
Getum við bætt efni síðunnar?
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.