Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

18. fundur 18. ágúst 2026 kl. 11:00 - 11:48 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Drífa Þrastardóttir verkefnastjóri
  • Jón Friðrik Matthíasson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Össur Emil Friðgeirsson brunavarnaeftirlit BÁ
Fundargerð ritaði: Drífa Þrastardóttir verkefnastjóri tæknideild
Dagskrá

1.Árhólmar 5 - Umfangsflokkur 2

2409026

Þann 10.07.2026 og 05.08.2026 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Árhólma 5 með eftirfarandi breytingartexta:



Skráningartafla 3 hefur verið uppfærð fyrir stækkun á ritual sauna byggingu.

Inngangsskáli: Inngangshurð hefur verið breytt í rennihurð.

Starfsmannaálma: Þvottahús hefur verið stækkað, þurrgeymsla og köld geymsla verða sameinaðar í eina kalda geymslu, burðarsúlur hafa verið bættar við, skilrúm fyrir fundarherbergi fært til, glugga bætt við í fundarherbergi.

Setusvæði í barbyggingu: Gólfkóti á lóni hækkaður upp, breyting á handriðum milli palla, sæti í laug fjarlægð, innstút fyrir lónsvatn bætt við fyrir utan barrými.

Skiptiklefar: Breyting á skipulagi.

Gróðurhús við baðhús: Eldstæði bætt við rými, útgangshurð færð til.

Baðhús: Tilfærslur á nuddherbergjum, baðherbergi breytt í sturturými, innra burðarvirki breyting á steyptum veggjum, flotlaug stækkuð, þjónustuhurð fyrir kæliklefa bætt við, saunagluggi stækkaður, loftlúga fyrir aðgengi inn í tæknirými á efri palli bætt við.

Ritual baðhús í lóð: Gluggastærð breytt, tæknirými bætt við hús.

Lón: Bætt við sætum í lóni, eyja breytt í miðju lóni, tilfærslur á innstútum inn í lón.

Kjallari: Bjórgeymsla færð í kjallara, burðarvirki uppfært.

Brunahönnun: Almennar breytingar og betrumbætur. Sjá skjal frá brunahönnuði.
Ofangreindar breytingar eru samþykktar og eru í samræmi við skipulag.

2.Árhólmar 8 - Umfangsflokkur 1

2603041

Þann 5.3.2026 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 1 fyrir Árhólma 8. Sótt er um leyfi fyrir 20 timbur gistihúsum, 5 hús verða 41,0 fm og 15 hús verða 48,2 fm.
Byggingaráform eru samþykkt og eru í samræmi við gr. 1.3.7 í byggingarreglugerð og samrýmast gildandi skipulagsáætlun. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

3.Brattahlíð 11-17 (Klettahlíð 18) - Umfangsflokkur 3

2505115

Þann 28.07.2026 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Klettahlíð 18 með eftirfarandi breytingartexta: Íbúð í vesturenda húss er breytt í tvö hjúkunarrými. Breyta þarf nokkrum gluggum og útidyrahurð sett á suðurhlið hússins. Brunavarnir uppfærðar. Skráningartafla uppfærð.
Ofangreindar breytingar eru samþykktar og eru í samræmi við skipulag.

4.Brattahlíð 18 - Umfangsflokkur 1

2607077

Þann 21.07.2026 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 1 fyrir Bröttuhlíð 18-22. Sótt er um leyfi til að byggja tvö lítil hús fyrir geymslur undir sorp, moltugerðarvél o.fl.
Byggingaráform eru samþykkt og eru í samræmi við gr. 1.3.7 í byggingarreglugerð og samrýmast gildandi skipulagsáætlun. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

5.Dynskógar 22 - Umfangsflokkur 2

2405025

Þann 13.08.2026 barst breyttur aðaluppdráttur frá áður samþykktum byggingaráformum um Dynskóga 22 með eftirfarandi breytingartexta: Afstöðumynd uppfærð í samræmi við núverandi grunn.
Ofangreindar breytingar eru samþykktar. Breyting á gögnum þeim sem kynnt voru grenndarkynningu er talin óveruleg og breytingin því ekki talin hafa áhrif á hagsmunaaðila.

6.Lindarbrún 2, 010102 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

2608060

Þann 12.08.2026 barst tilkynning um mannvirkjagerð sem er undanþegin byggingarheimildar eða leyfi fyrir Lindarbrún 2. Sótt er um leyfi fyrir nýklæðningu/svalalokun frá Prolink í íbúð 01 0102 í samræmi við þegar samþykktan aðaluppdrátt og útfærslu samþykkta af Brunavörnum Árnessýlsu.
Byggingarfulltrúi staðfestir að mannvirki fellur undir 1. mgr. 2.3.6 gr. byggingarreglugerðar 112/2012 og að hún sé í samræmi við skipulag.

7.Lindarbrún 2, 010103 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

2608047

Þann 11.08.2026 barst tilkynning um mannvirkjagerð sem er undanþegin byggingarheimildar eða leyfi fyrir Lindarbrún 2. Sótt er um leyfi fyrir nýklæðningu/svalalokun frá Prolink í íbúð 01 0103 í samræmi við þegar samþykktan aðaluppdrátt og útfærslu samþykkta af Brunavörnum Árnessýlsu.
Byggingarfulltrúi staðfestir að mannvirki fellur undir 1. mgr. 2.3.6 gr. byggingarreglugerðar 112/2012 og að hún sé í samræmi við skipulag.

8.Lindarbrún 2, 010202 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

2608051

Þann 11.08.2026 barst tilkynning um mannvirkjagerð sem er undanþegin byggingarheimildar eða leyfi fyrir Lindarbrún 2. Sótt er um leyfi fyrir nýklæðningu/svalalokun frá Prolink í íbúð 01 0202 í samræmi við þegar samþykktan aðaluppdrátt og útfærslu samþykkta af Brunavörnum Árnessýlsu.
Byggingarfulltrúi staðfestir að mannvirki fellur undir 1. mgr. 2.3.6 gr. byggingarreglugerðar 112/2012 og að hún sé í samræmi við skipulag.

9.Lindarbrún 2, 010205 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

2608049

Þann 11.08.2026 barst tilkynning um mannvirkjagerð sem er undanþegin byggingarheimildar eða leyfi fyrir Lindarbrún 2. Sótt er um leyfi fyrir nýklæðningu/svalalokun frá Prolink í íbúð 01 0205 í samræmi við þegar samþykktan aðaluppdrátt og útfærslu samþykkta af Brunavörnum Árnessýlsu.
Byggingarfulltrúi staðfestir að mannvirki fellur undir 1. mgr. 2.3.6 gr. byggingarreglugerðar 112/2012 og að hún sé í samræmi við skipulag.

10.Lindarbrún 2, 010207 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

2608050

Þann 11.08.2026 barst tilkynning um mannvirkjagerð sem er undanþegin byggingarheimildar eða leyfi fyrir Lindarbrún 2. Sótt er um leyfi fyrir nýklæðningu/svalalokun frá Prolink í íbúð 01 0207 í samræmi við þegar samþykktan aðaluppdrátt og útfærslu samþykkta af Brunavörnum Árnessýlsu.
Byggingarfulltrúi staðfestir að mannvirki fellur undir 1. mgr. 2.3.6 gr. byggingarreglugerðar 112/2012 og að hún sé í samræmi við skipulag.

11.Sunnumörk 6 - Umfangsflokkur 1

2608054

Þann 11.08.2026 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 1 fyrir Sunnumörk 6. Sótt er um leyfi fyrir endurnýjun og stækkun á upplýsinga- og verðskilti Atantsolíu sem er áfast tæknihúsi.



Breytt er um tegund ljósgjafa, sem verður birtustýrður LED ljósbúnaður. Birtustýring er í samræmi við nýjar kröfur byggingarreglugerðar.
Ofangreindar breytingar sendar á skipulagsfulltrúa til umsagnar.

12.Tröllahraun 58-60 - Umfangsflokkur 2

2605061

Þann 10.05.2026 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Tröllahraun 58-60. Sótt er um leyfi fyrir timbur parhúsi á einni hæð með innangengum bílgeymslum.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir:

- Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

Fundi slitið - kl. 11:48.

Getum við bætt efni síðunnar?