Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

17. fundur 09. júlí 2026 kl. 14:30 - 15:45 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Drífa Þrastardóttir verkefnastjóri
  • Jón Friðrik Matthíasson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Össur Emil Friðgeirsson brunavarnaeftirlit BÁ
Fundargerð ritaði: Drífa Þrastardóttir verkefnastjóri tæknideild
Dagskrá

1.Austurmörk 2 - Umfangsflokkur 2

2510108

Þann 7.7.2026 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Austurmörk 2 með eftirfarandi breytingartexta: Flóttaleiðir um svalir, úr herbergi í stigang, greinargerð. Hurðir á gang af gistirýmum 6 og 7.
Ofangreindar breytingar eru samþykktar og í samræmi við skipulag.

2.Árhólmar 5 - Umfangsflokkur 2

2409026

Þann 22.05.2026 og 29.06.2026 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Árhólma 5 með eftirfarandi breytingartexta:



Skráningartafla 3 hefur verið uppfærð fyrir stækkun á ritual sauna byggingu.

Inngangsskáli: Inngangshurð hefur verið breytt í rennihurð.

Starfsmannaálma: Þvottahús hefur verið stækkað, þurrgeymsla og köld geymsla verða sameinaðar í eina kalda geymslu, burðarsúlur hafa verið bættar við, skilrúm fyrir fundarherbergi fært til, glugga bætt við í fundarherbergi.

Setusvæði í barbyggingu: Gólfkóti á lóni hækkaður upp, breyting á handriðum milli palla, sæti í laug fjarlægð, innistút fyrir lónsvatn bætt við fyrir utan barrými.

Skiptiklefar: Breyting á skipulagi.

Gróðurhús við baðhús: Eldstæði bætt við rými, útgangshurð færð til.

Baðhús: Tilfærslur á nuddherbergjum, baðherbergi breytt í stutrurými, innra burðarvirki breytinging á steyptum veggjum, flotlaug stækkuð, þjónustuhurð fyrir kæliklefa bætt við, saunagluggi stækkaður, loftlúga fyrir aðgengi inn í tæknirými á efri palli bætt við.

Ritual baðhús í lóð: Gluggastærð breytt, tæknirými bætt við hús.

Lón: Bætt við sætum í lóni, eyju breytt í miðju lóni, tilfærslur á innstútum inn í lón.

Kjallari: Bjórgeymsla færð í kjallara, burðarvirki uppfært.

Brunahönnun: Almennar breytingar og betrumbætur.
Athugasemd send á hönnuð.

3.Breiðamörk 17 - Umfangsflokkur 1

2503171

Þann 11.05.2026 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Breiðumörk 17 með eftirfarandi breytingartexta: Uppbygging útveggja.
Ofangreindar breytingar eru samþykktar. Breyting á gögnum þeim sem kynnt voru grenndarkynningu er talin óveruleg og breytingin því ekki talin hafa áhrif á hagsmunaaðila.

4.Lindarbrún 2 - svalalokun 010206

2607003

Þann 01.07.2026 barst tilkynning um mannvirkjagerð sem er undanþegin byggingarheimildar eða leyfi fyrir Lindarbrún 2. Sótt er um leyfi fyrir nýklæðningu/svalalokun í íbúð 01 0206 í samræmi við þegar samþykktan aðaluppdrátt og útfærslu samþykkta af Brunavörnum Árnessýlsu.
Byggingarfulltrúi staðfestir að mannvirki fellur undir 1. mgr. 2.3.6 gr. byggingarreglugerðar 112/2012 og að hún sé í samræmi við skipulag.

5.Tröllahraun 52 - Umfangsflokkur 2

2605017

Þann 04.05.2026 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Tröllahraun 52. Sótt er um leyfi fyrir einbýlishúsi með kjallara.



Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimild til byggingar kjallara undir hluta íbúðarhúsa ef hæðarmunur á lóð er 2 metrar eða meiri. Hæðarmunur lóðar Tröllahrauns 52 er 1,65 m. Málið var tekið fyrir hjá skipulags- og umhverfisnefnd þann 5 maí og á fundi bæjarstjórnar 12. maí 2026 þar sem undanþága frá skilmálum deiliskipulags með vísan til heimildar í 5.8.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 var samþykkt og heimild gefin fyrir kjallara þó að hæðarmunur sé minni en 2 metrar á lóðinni þar sem hagsmunir nágranna skerðast ekki við breytinguna.
Máli frestað.

6.Tröllahraun 58-60 - Umfangsflokkur 2

2605061

Þann 10.05.2026 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Tröllahraun 58-60. Sótt er um leyfi fyrir timburparhúsi með innangengum bílskúrum.
Athugasemdir hafa verið sendar á hönnuð.

7.Umsókn um götu- og torgsölu í Hveragerðisbæ

2503063

Þann 05.05.2026 barst beiðni um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir torgsöluhús við Breiðumörk 21.
Stöðuleyfi fyrir torgsöluvagni er veitt til 12 mánaða frá 16.6.2026 í samræmi við grein 2.6.1 í byggingareglugerð og samþykkt bæjarins um götu og torgsölu.

Athygli er vakin á því að sala matvöru eða annara neysluvöru þarf starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands.

Fundi slitið - kl. 15:45.

Getum við bætt efni síðunnar?