Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

16. fundur 26. mars 2026 kl. 15:30 í fundarsal Breiðumörk 20
Starfsmenn
  • Jón Friðrik Matthíasson byggingarfulltrúi
  • Drífa Þrastardóttir verkefnastjóri
  • Halldór Ásgeirsson brunavarnaeftirlit BÁ
Fundargerð ritaði: Drífa Þrastardóttir verkefnastjóri tæknideild
Dagskrá

1.Árhólmar 8 - Umfangsflokkur 1

2603041

Þann 5.3.2026 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 1 fyrir Árhólma 8. Sótt er um leyfi fyrir 20 timbur gistihúsum, 5 hús verða 41,0 fm og 15 hús verða 48,2 fm.
Athugasemdir sendar á hönnuð.

2.Vorsabær 4 - Umfangsflokkur 2

2602104

Þann 26.02.2026 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Vorsabæ 4. Sótt er um leyfi fyrir 1569,8 fm iðnaðarhúsnæði á tveimur hæðum.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.


Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir:

- Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?