Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

14. fundur 30. janúar 2026 kl. 09:26 í fundarsal Breiðumörk 20
Starfsmenn
  • Jón Friðrik Matthíasson byggingarfulltrúi
  • Drífa Þrastardóttir verkefnastjóri
  • Halldór Ásgeirsson brunavarnaeftirlit BÁ
Fundargerð ritaði: Drífa Þrastardóttir verkefnastjóri tæknideild
Dagskrá

1.Sunnumörk 2 - Umfangsflokkur 1

2601106

Þann 28.01.2026 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 1 fyrir Sunnumörk 2. Sótt er um leyfi til að byggja skjólvegg við norðvestur hlið hússins.



Byggingaráform eru samþykkt og eru í samræmi við gr. 1.3.7 í byggingarreglugerð.

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

2.Sunnumörk 3, mhl. 07: Sunnumörk 3 - Umfangsflokkur 2

2601077

Þann 15.01.2026 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Sunnumörk 3, mhl. 07. Staðfang hússins verður Sunnumörk 3. Sótt er um leyfi fyrir 18 íbúða fjölbýlishúsi á þremur hæðum.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir:

- Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

3.Þórsmörk 3 - Umfangsflokkur 2

2509175

Þann 25.09.2025 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Þórsmörk 3. Sótt er um leyfi fyrir breytingu á áður samþykktum byggingaráformum um byggingu á einlyftu, þriggja íbúða raðhúsi. Grunnflötur hússins stækkar og staðsetning hússins breytist/hliðrast innan lóðar.



Umsóknin hefur verið grenndarkynnt fyrir nágrenni og engar athugasemdir bárust. Samþykki allra eigenda liggur fyrir.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir:
- Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

4.Öxnalækur - Umfangsflokkur 1

2507041

Þann 15.07.2025 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 1 fyrir Öxnalæk. Sótt er um leyfi fyrir 76,7 fm aðstöðuhúsi - klakhúsi við seiðaeldisstöðina á Öxnalæk.



Skipulags- og umhverfisnefnd tók umsóknina fyrir 2.12.2025 með eftirfarandi bókun: Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar þar sem starfsemin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar og grenndarkynningar í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn samþykkti þann 12.12.2025 tillögu skipulags- og umhverfisnefndar um að veita bygggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar og grenndarkynningar með vísan til heimildar í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Byggingaráform eru samþykkt og eru í samræmi við gr. 1.3.7 í byggingarreglugerð.

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
? Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?