Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

8. fundur 12. júní 2025 kl. 14:00 í fundarsal Breiðumörk 20
Starfsmenn
  • Jón Friðrik Matthíasson byggingarfulltrúi
  • Drífa Þrastardóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Drífa Þrastardóttir verkefnastjóri tæknideild
Dagskrá

1.Álfaklettur 2-6 - Umfangsflokkur 2

2503115

Þann 17.03.2025 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Álfaklett 2-6. Sótt er um leyfi fyrir þriggja íbúða raðhúsi á tveimur hæðum með innbyggðum bílgeymslum.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir:
- Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.


Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

2.Brattahlíð 11-17 (Klettahlíð 18) - Umfangsflokkur 3

2505115

Þann 25.05.2025 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 3 fyrir Klettahlíð 18. Sótt er um leyfi fyrir austurenda raðhússins verði skipt upp í tvö aðskilin hjúkrunarrými, ásamt breyttu útliti á gluggum og svalahurðum.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir.

-Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

3.Breiðamörk 2 - Umfangsflokkur 2

2505074

Þann 14.05.2025 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Breiðumörk 2. Sótt er um leyfi fyrir brettri uppskiptingu húseignarinnar.
Athugasemdir sendar á hönnuð.

4.Dalahraun 1 - Umfangsflokkur 1

2505073

Þann 13.05.2025 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 1 fyrir Dalahraun 1-7. Sótt er um leyfi fyrir stækkun á íbúð 0101 og bæta við kamínu. Samþykki meðeigenda liggur fyrir.
Byggingaráform eru samþykkt og eru í samræmi við gr. 1.3.7 í byggingarreglugerð.

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

5.Dynskógar 15 - Umfangsflokkur 2

2506039

Þann 29.05.2025 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Dynskóga 15. Uppdrættirnir voru uppfærðir í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa í lokaúttket.
Ofangreindar breytingar eru samþykktar.

6.Finnmörk 1 - Umfangsflokkur 3

2505011

Þann 05.05.2025 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 3 fyrir Finnmörk 1. Sótt er um leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi leikskólans og tengingu við tengigang sem tengir núverandi hús við nýbyggðan leikskóla á næstu lóð.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir:
- Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

7.Heiðmörk 23 - Umfangsflokkur 1

2503002

Þann 3.3.2025 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Heiðmörk 23 með eftirfarandi breytingartexta: Þaki við NV gafl íbúðarhúss svo það nemi við þakbrún á bílskur, veggir óbreyttir.
Ofangreindar breytingar eru samþykktar. Breyting á gögnum þeim sem kynnt voru grenndarkynningu er talin óveruleg og breytingin því ekki talin hafa áhrif á hagsmunaaðila, en samþykki eiganda við Heiðmörk 21 liggur fyrir.

8.Hlíðarhagi 1-5 - Umfangsflokkur 2

2402155

Þann 23.02.2024 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Hlíðarhaga 1-5. Sótt er um leyfi fyrir staðsteyptu þriggja íbúða raðhúsi á einni hæð.
Athugasemdir sendar á eiganda.

9.Hlíðarhagi 6 - Umfangsflokkur 2

2402157

Þann 23.02.2024 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Hlíðarhaga 6. Sótt er um leyfi fyrir sex íbúða staðsteyptu fjölbýlishúsi á tveimur hæðum með kjallara.
Athugasemdir sendar á eiganda.

10.Hólmabrún 14 - Umfangsflokkur 2

2405101

Þann 04.06.2025 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Hólmabrún 14 með eftirfarandi breytingartexta: Aðaluppdrættir breytingar.
Athugasemdir sendar á hönnuð.

11.Hverahlíð 15 - Umfangsflokkur 3

2504095

Þann 13.04.2025 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 3 fyrir Hverahlíð 15. Sótt er um leyfi fyrir hjúkrunarheimili byggðu úr forsteyptum einingum með 44 hjúkrunarrýmum.
Athugasemdir sendar á hönnuð.

12.Kaplahraun 10 - Umfangsflokkur 2

2502167

Þann 26.02.2025 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Kaplahraun 10-16. Sótt er um leyfi fyrir fjögurra íbúða raðhúsi á einni hæð byggt úr timbri.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir:
- Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

13.Kaplahraun 18 - Umfangsflokkur 2

2502168

Þann 26.02.2025 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Kaplahraun 18-24. Sótt er um leyfi fyrir fjögurra íbúða raðhúsi á einni hæð byggt úr timbri.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir:
- Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

14.Lindahraun 2, leyfisnr. 88412 - einbýlishús

2401077

Þann 17.03.2025 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Lindahraun 2 með eftirfarandi breytingartexta: Breytingar á innra skipulagi. Hurð og gluggi á austurhlið breytt í rennihurð.
Ofangreindar breytingar eru samþykktar.

15.Mánamörk 3 - 5 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

2409018

Þann 3.09.2024 barst umsókn um tilynningarskylda mannvirkjagerð sem undanþegin er byggingarheimild eða leyfi. Kallað var eftir samþykki allra meðeigenda í húsinu, sem nú hefur borist.
Byggingarfulltrúi óskar eftir því að umsókn verði send inn að nýju sem umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 1. Eins óskar byggingarfulltrúi eftir umsögn skipulagsfulltrúa.

16.Réttarheiði 45 - Umfangsflokkur 2

2402160

Þann 20.05.2025 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Réttarheiði 45 með eftirfarandi breytingartexta: Lóðamörk við tengigang að Finnmörk 1 uppfærð, útigeymsla á lóð og lóðarskipulagi bætt við.



Ofangreindar breytingar eru samþykktar.

17.Skólamörk 2 - Umfangsflokkur 3

2506013

Þann 10.05.2025 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 3 fyrir Skólamörk 2. Sótt er um leyfi fyrir nýjum 1610 m2 íþróttahúsi sem byggt verður upp að núverandi íþróttahúsi.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir:
- Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.

Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

18.Skólamörk 6 - Umfangsflokkur 1

2502124

Þann 18.02.2025 barst umsókn fyrir byggingarheimild í umfangsflokki 1 fyrir Skólamörk 6. Sótt er um leyfi fyrir færslu á kennslustofu af Breiðumörk 24 yfir á Skólamörk 6.
Bókun frestað.

Hlé gert á fundi kl. 16:40. Fundur heldur áfram kl. 9:30 föstudaginn 13. júní.

19.Umsókn um götu- og torgsölu í Hveragerðisbæ

2503063

Þann 11.03.2025 barst umsókn um götu- og torgsölu í Hveragerði. Sótt er um langtíma leyfi fyrir söluvagn við Hveraportið.
Þann 3.4.2025 var stöðuleyfi veitt fyrir torgsöluvagn við Breiðumörk 21, í samræmi við grein 2.6.1 í byggingareglugerðar og samþykkt bæjarins um götu- og torgsölu.

Bent er á að starfsleyfi til að selja matvöru eða aðra neysluvöru þarf að sækja um hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands.

20.Varmahlíð 2 - Umfangsflokkur 2

2505020

Þann 05.05.2025 bárust aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Varmahlíð 2.
Uppdrættir mótteknir og samþykktir.

21.Vesturmörk 1 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

2505068

Þann 13.05.2025 barst tilkynning um mannvirkjagerð sem er undanþegin byggingarheimildar eða leyfi fyrir Vesturmörk 1. Sótt er um leyfi fyrir byggingu dælustöðvar í hitaveitu.
Athugasemd send á tengilið umsóknar.

22.Vorsabær 11 - Umfangsflokkur 2

2505014

Þann 05.05.2025 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir Vorsabæ 11. Sótt er um leyfi fyrir límtrés iðnaðarhúsnæði með 12 bilum.
Athugasemdir sendar á hönnuð.

23.Þórsmörk 3 - Umfangsflokkur 2

2403752

Þann 5.08.2025 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Þórsmörk 3 með eftirfarandi breytingartexta: Grunnmynd jarðhæð mhl 01 breytt með þeim hætti að herbergi er komið fyrir og alrými minnkað.
Máli frestað.

24.Öxnalækjarvegur 3 - Umfangsflokkur 2

2411002

Þann 2.4.2025 árust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Öxnalækjkarveg 3 með eftirfarandi breytingartexta dagsettum 21.12.2024: Millilofti bætt við í 0105. Stækkun 36,7 m2.
Athugasemd send á hönnuð.

25.Öxnalækjarvegur 3 - Umfangsflokkur 1

2506001

Þann 2.6.2025 bárust breyttir aðaluppdrættir frá áður samþykktum byggingaráformum um Öxnalækjkarveg 3 með eftirfarandi breytingartexta dagsettum 26.5.2025: Millilofti bætt við í 0106. Stækkun 36,6 m2.
Athugasemdir sendar á hönnuð.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?