Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

1. fundur 12. apríl 2024 kl. 11:00 - 11:45 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Jón Friðrik Matthíasson
  • Drífa Þrastardóttir
Fundargerð ritaði: Jón Friðrik Matthíasson byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Austurmörk 28 - Umfangsflokkur 2

2401016

Þann 5.1.2024 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir nýtt 9 íbúða fjölbýlishúsi við Sunnumörk 3. Húsið er staðsteypt og mun vera merkt Austurmörk 32.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir.
-Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

2.Austurmörk 32 - Umfangsflokkur 2

2401017

Þann 5.1.2024 barst umsókn um byggingarleyfi í umfangsflokki 2 fyrir 9 íbúða fjölbýlihúsi við Sunnumörk 3. Húsið verður staðsteypt á tveimur hæðum. Heimild er fyrir 7 fjölbýlishúsum á lóðinni, en þetta hús verður merkt Austurmörk 32.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir.
-Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
- Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
- Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.

Fundi slitið - kl. 11:45.

Getum við bætt efni síðunnar?