Íbúafundur um fjárhagsstöðu Hveragerðisbæjar og fjárhagsáætlun 2027
Hveragerðisbær boðar til opins íbúafundar þar sem farið verður yfir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins, þær aðgerðir sem gripið hefur verið til á undanförnum misserum og helstu forsendur við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Á fundinum verður kynnt hvernig fjárhagsleg staða sveitarfélagsins hefur þróast undanfarna mánuði. Gerð verður grein fyrir því hvernig brugðist var við forsendubresti í fjárhagsáætlun yfirstandandi árs þegar ljóst varð að tekjur sem áætlaðar voru að kæmu til á árinu myndu ekki berast. Þá verður farið yfir hvernig áfram verður unnið er að því að skapa traustan fjárhagslegan grundvöll til framtíðar og komið inn á verkefnin framundan í rekstri sveitarfélagsins, tekjuöflun og farið yfir þær fjárfestingarnar sem sveitarfélagið stendur í og fyrirhugar að ráðast í.
Markmið fundarins er að veita íbúum skýrar upplýsingar um stöðu mála, stuðla að opnu samtali og skapa vettvang fyrir spurningar og umræður áður en fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2027 verður afgreidd.
Allir íbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðunni.