Fara í efni

Verum viðbúin

Við viljum vekja athygli á nýútgefnum bæklingi Almannavarna, Verum viðbúin. Bæklingnum var dreift til allra íbúa 18 ára og eldri í gegnum island.is þriðjudaginn 3. nóvember.

Markmið bæklingsins er að veita almenningi hagnýtar og aðgengilegar upplýsingar um hvernig heimili geta undirbúið sig fyrir aðstæður sem geta raskað daglegu lífi, svo sem náttúruhamfarir, veður, rafmagnsleysi, fjarskiptatruflanir og aðrar samfélagslegar áskoranir.

Öryggi er sameiginlegt verkefni og með einföldum undirbúningi geta heimili aukið eigið öryggi, stutt við nágranna sína og auðveldað sveitarfélögum og viðbragsaðilum að sinna hlutverki sínu þegar á reynir.

Hveragerðisbær hvetur alla íbúa til að kynna sér efnið og nýta sér þær upplýsingar sem þar koma fram.

Hér má sjá bækling á íslensku.

Hér má sjá bækling á íslensku. (auðlesin)

Hér má sjá bækling á íslensku. (táknmálstúlkun)

View the booklet in english here.

Więcej informacji można znaleźć w języku polskim.


Síðast breytt: 9. nóvember 2026
Getum við bætt efni síðunnar?