Fara í efni

Óskað eftir ábendingum um aðgengismál

Hveragerðisbær sótti um styrk til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til þess að fjármagna verkefni til að bæta aðgengi fatlaðs fólks á árinu 2025. Úthlutað framlag hefur ekki verið fullnýtt og því er óskað eftir ábendingum frá íbúum um verkefni sem lúta að aðgengismálum.

Vinsamlegast sendið ábendingar á netfangið mottaka@hveragerdi.is


Síðast breytt: 20. febrúar 2026
Getum við bætt efni síðunnar?