Fara í efni

Ljósmyndakeppni í tilefni Barnamenningardaga

Ljósmyndakeppni verður haldin í tilefni af Barnamenningardögum á Suðurlandi þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að sýna sitt sjónarhorn á heiminn í kringum sig. 

Keppt verður í þremur aldursflokkum; 5-8 ára / 9-12 ára / 13-18 ára og má hver þátttakandi senda allt að þrjár ljósmyndir. 

Nánari upplýsingar eru í auglýsingunni hér fyrir neðan en reglur keppninnar og nánari lýsingu má finna hér.  


Síðast breytt: 7. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?