Fara í efni

Íbúafundur um fjármál Hveragerðisbæjar og næstu skref

Íbúafundur um fjármál Hveragerðisbæjar og næstu skref

Mánudaginn 16. nóvember var haldinn íbúafundur þar sem farið var yfir fjárhagsstöðu Hveragerðisbæjar, þróun undanfarinna ára, viðbrögð við þeirri stöðu sem kom upp á árinu 2026 og drög að fjárhagsáætlun áranna 2027–2030.

Ég vil þakka öllum þeim sem mættu á fundinn fyrir þátttökuna og góðar umræður.

Þar sem fundurinn var ekki tekinn upp vil ég gera efnið aðgengilegt fyrir þá sem ekki áttu þess kost að mæta eða vilja kynna sér það betur. Með þessum pistli fylgir því PDF-skjal með öllum glærunum úr minni kynningu ásamt yfirferð á því efni sem ég fór yfir á fundinum. Textinn byggir á þeim minnispunktum sem ég studdist við í kynningunni.

Fjárhagsþróun undanfarinna ára

Á fundinum var meðal annars farið yfir umfangsmiklar fjárfestingar Hveragerðisbæjar undanfarin ár og hvaða áhrif þær hafa haft á fjárhag sveitarfélagsins.

Á árunum 2023–2025 námu fjárfestingar rúmlega 4,2 milljörðum króna, eða um 25% af samanlögðum rekstrartekjum tímabilsins. Samhliða þessari uppbyggingu dróst veltufé frá rekstri saman, lántökur jukust og afborganir lána hækkuðu.

Svona þróun þrengir ávallt að fjárhagslegu svigrúmi sveitarfélaga.

Staðan árið 2026 og viðbrögð sveitarfélagsins

Sérstaklega var farið yfir þær áskoranir sem komu upp á árinu 2026 þegar tekjur vegna uppbyggingarverkefna skiluðu sér ekki samkvæmt upphaflegum áætlunum.

Þegar umfang vandans varð ljóst var gripið til aðgerða með það að markmiði að tryggja greiðslugetu sveitarfélagsins, endurskoða fjárfestingar og sýna aðhald í rekstri.

Endurskoðuð fjárfestingaráætlun ársins 2026 lækkaði úr 1.299 milljónum króna í 982 milljónir, eða um 317 milljónir króna sem er um 24% lækkun frá upphaflegri áætlun.

Fjárhagsáætlun 2027–2030 og markmið til framtíðar

Seinni hluti kynningarinnar snerist um drög að fjárhagsáætlun áranna 2027–2030 og þá nálgun sem bæjarstjórn hefur unnið eftir við gerð hennar.

Áherslan er á varfærnari tekjuforsendur, skýra forgangsröðun fjárfestinga og að styrkja rekstur sveitarfélagsins til lengri tíma.

Meðal þeirra markmiða sem kynnt voru er að veltufé frá rekstri verði að minnsta kosti 10% af tekjum árið 2030, skuldaviðmið verði komið undir 110% og að veltufé frá rekstri standi undir árlegum afborgunum lána.

Jafnframt var lögð áhersla á að verja lögbundna þjónustu og grunnþjónustu sveitarfélagsins, enda eru fram undan mikilvæg verkefni í skóla- og frístundamálum, fráveitu og annarri innviðauppbyggingu.

Mikilvægt er að undirstrika að á fundinum voru kynnt drög að fjárhagsáætlun og því geta forsendur og einstakar fjárhæðir enn tekið breytingum áður en endanleg áætlun verður samþykkt.

Áframhaldandi uppbygging á traustum grunni

Meginmarkmiðið er að skapa svigrúm til að halda áfram uppbyggingu Hveragerðisbæjar á traustum fjárhagslegum grunni.

Til þess þurfum við að samræma fjárfestingar við raunhæfar tekjuforsendur og greiðslugetu, fylgjast reglulega með framvindu áætlana og vera tilbúin að bregðast við þegar forsendur breytast.

Ég hvet áhugasama til að kynna sér meðfylgjandi glærur og yfirferð, þar sem farið er mun ítarlegar yfir einstaka þætti og þær forsendur sem liggja að baki. Að auki munu glærur og efni frá fulltrúm KPMG sem voru með kynningu á fundinum birtast á heimasíðu sveitarfélagins á næstu dögum.

 Glærur og yfirferð frá íbúafundi 16. nóvember 2026



Síðast breytt: 17. nóvember 2026
Getum við bætt efni síðunnar?