Fara í efni

Alútboð í byggingu nýrrar Hamarshallar

Í gær fimmtudaginn 9.mars rann út frestur til að skila inn tilboði í byggingu nýrrar Hamarshallar og bárust alls 4 tilboð. Skipuð hefur verið matsnefnd á vegum Hveragerðisbæjar, sem í sitja fimm fulltrúar, þar á meðal einn arkitekt. Hlutverk matsnefndarinnar er að meta þau tilboð og fylgigöng sem bárust.

Matsnefndin hefur nú tvær vikur til þess að rýna gögnin og meta tilboðin. Þann 23. mars verða síðan verðtilboð opnuð og heildarniðurstöður tilboða ætti því að liggja fljótlega fyrir eftir það.

Geir Sveinsson


Síðast breytt: 10. mars 2023
Getum við bætt efni síðunnar?