Fara í efni

Metfjöldi gesta í Hveragarðinum

Aldrei hafa fleiri lagt leið sína í Hveragarðinn en á þessu ári og eru heimsóknir ársins 2023 komnar upp í 25.852 gesti á tímabilinu janúar - október. Gestirnir koma ýmist í hópum eða á eigin vegum en alls hafa 309 hópar bókað heimsóknir á árinu í misjafnlega stórum hópum, allt frá 12 manns upp í 90. 

Stærstu hóparnir koma frá skemmtiferðaskipum. Þeir greiða aðgangseyri í garðinn og stoppa stutt við. Aðrir koma gjarnan í meiri dagskrá og er vinsælast að gæða sér á nýbökuðu rúgbrauði sem bakað er í gufunni í Hveragarðinum. Þær heimsóknir vekja alltaf mikla lukku meðal gesta. 

Fyrra heimsóknamet er frá árinu 2017 en þá voru gestir garðsins 21.759 talsins svo þetta er heilmikil bæting á metinu. 

Vegna fjölda heimsókna er nú stefnt að því að hafa garðinn opinn út nóvember og jafnvel eitthvað inn í desember. 


Síðast breytt: 2. nóvember 2023
Getum við bætt efni síðunnar?