Fara í efni

Leikskólinn Undraland

Leikskólinn Undraland var tekinn í notkun í september 1982 með tveimur aldursskiptum deildum, í desember 1997 var þriðja deildin opnuð.  Leikskólinn flutti í nýtt húsnæði þann 16.nóvember 2017 við Þelamörk 62. Leikskólinn er tæplega 1100 fermetrar og er sex deilda leikskóli. Miðað er við að í leikskólinn rúmi allt að 130 börn og 35 starfsmenn. Í hvorum enda skólans eru þrjár deildir, yngri börn eru í austurenda og eldri börn í vesturenda. Deildirnar tengjast saman með kjarnabyggingu, sem í er starfsmannaaðstaða s.s. skrifstofur leikskólastjóra, viðtals- og sérkennsluherbergi. Þar eru einnig tvær listastofur, fjölnota salur o.fl. 

Í kjarnabyggingunni er framleiðslueldhús þar sem framleiða má allt að 300 matarskammta: Gert er ráð fyrir að þar megi framleiða mat fyrir báða leikskóla bæjarins en það var ein af forsendunum sem starfshópurinn gaf sér í upphafi.

Lóðin sem er rétt tæpir 7.000 fermetra að stærð var hönnuð af Landhönnun eða Hermanni Ólafssyni.   Við hönnun hennar var stuðst við megin þemað „Listamannabærinn Hveragerði“. Á lóð eru m.a. útihljóðfæri, einkum til ásláttar s.s. steinar, trédrumbar og málmrör. Einnig verður malbik skreytt með lituðum flötum með listatengdar tilvísanir. Á lóðinni eru hefðbundin leiktæki auk þess sem þar eru sleðabrekka, gróðurlundir, leikhús matjurtagarður o.fl. Timburpallar eru utan við allar deildir. Á lóðinni eru þrjú smáhýsi fyrir geymslu leiktækja, hjóla og vagna. Einnig eru þar opin skýli fyrir hjól, vagna og sorp.

Leikskólinn er rekinn af Hveragerðisbæ en Sveitarfélagið Ölfus hefur aðgang að leikskólaplássum skv. samningi. 

Sumarið 2022 - Leikskólinn verður lokaður vegna sumarleyfa 4. júlí til og með 7. ágúst, opnar aftur 8. ágúst kl. 10.00.

Kíktu einnig á þetta

Leikskólinn Óskaland

Leikskólinn Óskaland er fjögra deilda leikskóli
Finnmörk 1
810 Hveragerði
Sími: 483 4139
Síðast breytt: 11.01.2023
Getum við bætt efni síðunnar?