Fara í efni

Frá bæjarstjóra vegna Ölfusdals

Mynd:// Njörður Sigurðsson - Ölfusdalur
Mynd:// Njörður Sigurðsson - Ölfusdalur

Í ljósi umræðu gærdagsins um fyrirhuguð áform Sveitarfélagsins Ölfus um jarðvarmanýtingu í Ölfusdals í þágu Sveitarfélagsins Ölfus er mikilvægt að eftirfarandi komi fram:

Sveitarfélagið Ölfus hefur ekkert formlegt erindi sent á Hveragerðisbæ, bæjarfulltrúa Hveragerðis eða bæjarstjóra Hveragerðis um fyrirhuguð áform um rannsóknir á frekari virkjun í Ölfusdal.

Þann 24. febrúar sl. sendi bæjarstjóri Ölfus erindi á Orkustofnun, stílað á orkumálastjóra, Höllu Hrund Logadóttur og var afrit þess bréfs sent á bæjarstjóra Hveragerðisbæjar (í cc.).

Í þessu erindi kemur m.a. fram vilji Ölfuss að hefja viðræður við Orkustofnun og Íslenska ríkið og eftir atvikum Veitur ohf. um sameiginlega stefnumótun um jarðvarmanýtingu í Ölfusdal en hvergi minnst á aðkomu Hveragerðis á nokkurn hátt í því samhengi.

Í niðurlagi erindisins til Orkustofnunar er þeim aðilum sem fengu afrit af erindinu boðið að senda inn athugasemdir og koma sjónarmiðum sínum á framfæri við sveitarfélagið, svo taka megi tillit til þeirra, ef einhver eru, við undirbúning umsóknar um rannsóknarleyfi Ölfuss til Orkustofnunar.

Það var gert á fundi bæjarráðs Hveragerðis þann 02. mars sl. með bókun bæjarráðs, eða sex dögum eftir að umrætt afrit barst. Í bókuninni kemur meðal annars fram, að það séu „sameiginlegir hagsmunir beggja sveitarfélaga að öll nýting í Ölfusdal sé gerð í samráði og með samþykki beggja sveitarfélaga“, auk þess sem komið er inná mikilvægi þess að virkjanaáform skili ábata til nærsamfélagsins, þ.e. Hveragerðis. Því hljóti fyrsta spurning að vera, hvort það þjóni hagsmunum íbúa Hveragerðis og í næsta nágrenni Hveragerðis að sett verði virkjun við túnfót þeirra.

Þessi bókun bæjarráðs Hveragerðis við afriti af bréfi Ölfuss til Orkustofnunar, þar sem fram koma athugasemdir og sjónarmið Hveragerðis, var send til Sveitarfélagsins Ölfuss þann 03. mars sl. Í þá níu mánuði sem liðnir eru hafa engin viðbrögð við bókun bæjarráðs Hveragerðis komið frá Sveitarfélaginu Ölfusi.

Til viðbótar má þess geta að bæjarstjóri Ölfuss hafði ekki samband við bæjarstjórn né bæjarstjóra Hveragerðis í aðdraganda blaðamannafundar OR, Sveitarfélagsins Ölfus og Títan, hvorki með tölvupósti né símtali. Einu upplýsingarnar sem bárust um málið voru að forstjóri OR hringdi í bæjarstjóra Hveragerðis rúmum tveimur tímum fyrir umræddan blaðamannafund og tilkynnti að von væri á tilkynningu um hann í tölvupósti.

Geir Sveinsson,
Bæjarstjóri Hveragerðis.


Síðast breytt: 1. desember 2023
Getum við bætt efni síðunnar?