Fara í efni

Opnun á fjórum sýningum.

Austurmörk 21, Hveragerði 2. mar - 25. ágú

Listasafn Árnesinga opnar nú aftur 2. mars klukkan 15:00 með fjórum spennandi sýningum.

Listamennirnir eru Erla S. Haraldsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Kristinn Már Pálmason og Sigga Björg Sigurðardóttir & Mikael Lind.

Sýningarnar eiga allar sameiginlegt að vera dulúðlegar og marglaga með sögum inn í sögum sem tengjast óbeint með yfirnáttúrulegum blæ.

Erla S. Haraldsdóttir sýnir gvassverk auk blýantsteikninga með blaðgulli og málaðra skúlptúra úr náttúruefnum og eru verkin unnin á árabilinu 2021 til 2024.  Skúlptúrarnir í sýningu Erlu eru samansettir í rýmisinnsetningu, gerðir úr fjölda smárra steina sem hún hefur fengið að flytja frá "Melville Koppies", vernduðu náttúrusvæði í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, sem rakið hefur verið allt að þremur billjónum ára aftur í tíma, til steinaldar. Litrík málverkaröð Erlu S. Haraldsdóttur er unnin með olíu á striga en einnig beint á veggi safnrýmisins. Með mynstruðum veggverkunum, sem innblásin eru af mynsturgerð kvenna af Ndbele ættbálknum í Suður-Afríku þar sem Erla býr sjálf; myndar hún marglaga tengingar milli þeirra hlutbundnu verka er endurspegla þætti úr draumum langalangömmu hennar um huldufólk.

Málverk Kristins Más Pálmasonar eru stór að stærðum og sprúðlandi af lífi, nánast á hreyfingu og draga okkur til sín líkt og hvirfilbylur, svo mikið er að gerast á myndfletinum. Okkur birtast þar ýmis rúmfræðileg form, birtingarmyndir ýmiss tákna og vísanir í táknfræði fyrri tíma og samtímans, hlutbundin og óhlutbundin teikning, sums staðar handskrift og annars staðar náttúruleg form.
 

Myndbandsinnsetning Siggu Bjargar Sigurðardóttur og Mikaels Lind, Hamflettur, er unnin sérstaklega fyrir sýninguna. Innsetningin samanstendur af 30 vídeóverkum og 30 hljóðverkum unnum fyrir 3 skjávarpa og 6 hátalara.

Sigga Björg vinnur jöfnum höndum að hlutbundnum og óhlutbundnum teikningum á pappír, ásamt því að mála og teikna beint á veggi. Hún hefur skapað fjölmörg myndbandsverk er byggja á stop-motion tækni þar sem hver rammi hreyfimyndarinnar er handteiknaður. Á sýningunni má auk vídeóverkana sjá teikningarnar þrjátíu sem uðru til við gerð myndbandsverkanna og mætti líta á þær teikningar sem hreyfimyndir jafnvel þótt þær séu unnar með blýanti, penna og vatnslit á pappír. Teikningarnar eru unnar lag fyrir lag og teknar upp ramma fyrir ramma, eru því tengsl teikninganna við myndbandsverkin órjúfanleg.

Hrafnkell Sigurðsson – Loftnet

Náttúran er ekki bara allt um lykjandi heldur leynist hún sömuleiðis innra með okkur og hindrar okkur í að draga skörp skil milli ytri veraldar og innri vitundar. Þess vegna glímir Hrafnkell Sigurðsson við náttúruna eins og sá sem veit sig vera óaðskiljanlegan hluta hennar í einu og öllu. Hann spennir hornótt og áberandi tjöld sín - framandi aðskotahluti í líkingu við samhverfar geimstöðvar eða austurlenskar pagóður - andspænis mjallhvítri fönninni alltumlykjandi.

 

 

Getum við bætt efni síðunnar?