Fara í efni

Þverhlíð lokuð til 15. júní vegna hitaveituframkvæmda

Fyrir hönd Hveragerðisbæjar og Veitna,  tilkynnist að verktaki á vegum þeirra vinnur við að grafa upp eldri hitaveitulögn sem er í Þverahlíð og leggi þar nýja í staðinn. Þetta mun hafa þau áhrif að Þverahlíð verður lokuð á meðan framkvæmdum stendur. Samkvæmt núgildandi verkáætlun áætlar verktaki að verkinu verði lokið 15. júní. 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta gæti valdið. 

Byggingarfulltrúinn í Hveragerði.


Síðast breytt: 3. maí 2024
Getum við bætt efni síðunnar?