Fara í efni

Uppbygging framundan í Hlíðarhaga

Loftmynd yfir Hveragerði.  Hlíðarhaga land er til hægri á myndinni. 
Myndina tók Aldís Hafsteinsdót…
Loftmynd yfir Hveragerði. Hlíðarhaga land er til hægri á myndinni.
Myndina tók Aldís Hafsteinsdóttir.

Samningur milli Borgartúns ehf og Hveragerðisbæjar varðandi uppbyggingu og framkvæmdir í Hlíðarhaga var samþykktur samhljóða á fundi bæjarráðs þann 16. j úlí s.l..   Í samningnum er gert ráð fyrir að lóðarhafi muni annast, á sinn kostnað allar framkvæmdir á svæðinu þ.m.t. alla gatnagerð, vegtengingu við Breiðumörk skv. gildandi deiliskipulagi fyrir Hlíðarhaga, frágang opinna svæða, gangstíga, gangstétta og framkvæmda innan deiliskipulagssvæðisins. Um er að ræða lagningu gatna, gangstétta, göngustíga, neysluvatnslagna, fráveitulagna, götuljósakerfis og fullnaðarfrágang umhverfisins, s.s. þökulagningu og gróðursetningu trjáa að undanskyldu leiksvæði sem Hveragerðisbær mun sjá um að framkvæma og einnig eru framkvæmdir umhverfis vatnstank bæjarbúa undanskyldar.  Til þess að mæta kostnaði við ofangreindar framkvæmdir þá greiðir lóðarhafi ekki gatnagerðargjald til sveitarfélagsins vegna mannvirkja er rísa á svæði því er samkomulag þetta tekur til.

Lóðarhafi mun greiða byggingarréttargjald sem nemur 30% af gatnagerðargjaldi til Hveragerðisbæjar svo tryggt sé framlag til tengingar hverfisins við veitur og til annars frágangs á svæðinu.

Í Hlíðarhaga sem er fallegur útsýnisstaður ofan og norðan við byggðina í Hveragerði gerir deiliskipulag ráð fyrir 27 íbúðum af ýmsum toga sem eiga eftir að bætast við fjölbreytta flóru þeirra íbúðakosta sem nú eru í farvatninu í bæjarfélaginu. 

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri 

 


Síðast breytt: 25. ágúst 2020
Getum við bætt efni síðunnar?