Fara í efni

Town Quiz spurningaleikurinn lukkaðist vel

Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd stóð fyrir Town quiz spurningaleik í gær og lukkaðist einkar vel. Um 70 manns tóku þátt í spurningaleiknum og fleiri skráðu sig inn til að fylgjast með. Heimir Eyvindarson hélt uppi stuðinu fyrir þátttakendur og fékk lof fyrir á umræðusíðu Hvergerðinga á Facebook.

Vinningar voru í boði fyrir fyrstu þrjú sætin og fóru þau til:

  1. sæti. Bjarndís Helga Blöndal
  2. sæti Jónína Njarðardóttir
  3. sæti: Bjarni Rúnar Lárusson

Við óskum þeim innilega til hamingju. Gjafabréf bíða þeirra í móttöku bæjarskrifstofunnar í Hveragerði.

Til skoðunar er að endurtaka leikinn aftur fyrir jól og verður þá tækifæri fyrir enn fleiri að taka þátt! 

 


Síðast breytt: 20. nóvember 2020
Getum við bætt efni síðunnar?