Fara í efni

Senn koma jólin - Jólaundirbúningur í Hveragerðisbæ

Undirbúningur fyrir jólahátíðina er hafinn. Starfsmenn áhaldahúss eru í óðaönn að setja upp jólaseríur og jólaljósin í bænum farin að ljóma. Jólahátíðin „Jól í bæ“ er samstarfsverkefni allra sem í bænum búa og leggjum við metnað í að gera bæinn okkar sem hátíðlegastan með jólaljósum og skreytingum. Á heimasíðu Hveragerðisbæjar má sjá viðburði sem tengjast jólum og hvetjum við þjónustuaðila, fyrirtæki og bæjarbúa að senda inn fyrirhugaða viðburði.

Jól í bæ
Fyrsta sunnudag í aðventu þann 27. nóvember verða tendruð jólaljós á stóra jólatrénu í Lystigarðinum. Skátafélagið Strókur býður upp á heitt kakó við skátaheimilið og munu jólasveinar úr Reykjafjalli fá bæjarleyfi hjá Grýlu til að skemmta ungum sem öldnum.

Jólagluggar
Undanfarin ár hafa fyrirtæki og stofnanir skreytt sérstaka dagatalsglugga og er opnaður einn gluggi á dag í desember fram að jólum. Hver gluggi er skreyttur með ákveðnu þema tengt jólum og er jólabók við hvern glugga sem útskýrir táknið. Fjölmargir hafa lagt leið sína um bæinn að skoða gluggana og tekið þátt í jólaratleiknum. Það er Guðrún Tryggvadóttir sem er hugmyndasmiður jólabókanna og hafði hún veg og vanda að hönnun táknanna og textunum sem fylgja hverju tákni.
Fleiri viðburðir tengdir jólum verða kynntir á Jól í Hveragerði

Eigið ánægjulegar stundir við undirbúning jólanna

Jóhanna M. Hjartardóttir
menningar- og frístundafulltrúi
jmh@hveragerdi.is


Síðast breytt: 17. nóvember 2022
Getum við bætt efni síðunnar?