Fara í efni

Mikil ánægja með heilsuræktarnámskeið fyrir heldri íbúa

Heilsuræktarnámskeið fyrir eldri íbúa eða 60 ára og eldri hefur gengið vonum framar nú í vetur en um 90 manns skráðu sig í upphafi á námskeiðið.  Gríðarstjór hópur mætir því í Hamarshöllina þrisvar í viku og iðkar þar fjölbreytta líkamsrækt við kjöraðstæður.   

Mikil ánægja er meðal þátttakenda með námskeiðið og hefur ítrekað verið óskað eftir framhaldi en vegna óvissu við þróun heimsfaraldurs var ákveðið að hafa námskeiðið aðeins í 6 vikur í upphafi. 

Nýverið lagði  forstöðumaður stuðningsþjónustu til við bæjarráð að námskeiðið yrði framlengt um amk. 4 vikur.   Bæjarráð hefur fallist á þessa ósk og því verður námskeiðinu framhaldið eitthvað fram eftir maí mánuði. 

Kennari er Berglind Elíasdóttir M.Ed. íþrótta- og heilsufræðingur en hún hefur sérhæft sig í þjálfun eldri aldurshópa og vann meistaraverkefnið sitt í tengslum við það.  Sér Berglind um allt skipulag og framkvæmd námskeiðsins.

Aðspurðir sögðu þátttakendur að æfingarnar væru bæði krefjandi og góðar og að þeir fyndu nú þegar mikinn mun á sér.  En það var einnig augljóst að félagslega skiptir það miklu máli að mæta og hitta annað fólk.  Þarna treystir fólk vinabönd og myndar ný og á jákvæð samskipti við annað fólk sem er ekki síður mikilvægur hluti af góðri heilsu.

Bæjarstjóri. 


Síðast breytt: 24. mars 2021
Getum við bætt efni síðunnar?