Fara í efni

Miðar á gámasvæði

Myndin er tekin í eðlilegu ástandi.  Í dag förum við eftir reglunum og höldum 2 metra fjarlægð !
Myndin er tekin í eðlilegu ástandi. Í dag förum við eftir reglunum og höldum 2 metra fjarlægð !

Í ljósi fjöldi fyrirspurna er rétt að ítreka að miðar á gámasvæðið fást enn á bókasafninu. En þar sem safnið er lokað almenningi þarf að senda tölvupóst á bokasafn@hveragerdi.is eða hringja í síma 483-4531 og starfsmenn koma miðunum til skila.

Gámasvæðið er opið á hefðbundnum tímum en mikilvægt er að fólk hugi að sóttvörnum og fjarlægðum þar sem annarstaðar. Aðeins einn bíll ætti að vera á rampi í einu. Mikilvægt er að búið sé að flokka vel og hafa það sem á að henda tilbúið, bæði til að spara tíma og eins þar sem starfsmenn geta mjög takmarkað aðstoðað vegna reglna um 2 metra fjarlægð milli manna.

Umhverfisfulltrúi


Síðast breytt: 28. nóvember 2020
Getum við bætt efni síðunnar?