Leikskólinn Óskaland - laust starf í mötuneyti og á deildum.
18.09
Laus störf
Tilkynning
Ert þú ekki rétta manneskjan sem við leitum að?
Við í leikskólanum Óskalandi erum að leita að manneskju til að aðstoða í mötuneyti og á deildum. Í leikskólanum er móttöku eldhús, og starfmenn í eldhúsi sjá einnig um þvott leikskólans.
Leikskólinn er með 6 deildir fyrir börn frá 12 mánaða aldri til 6 ára.
Hæfniskröfur:
- Góð íslenskukunnátta,
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Reynsla í mötuneyti æskileg en ekki skilyrði.
- Snyrtimennska
- Hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til 1.október n.k. og skal umsóknum skilað á skrifstofu Hveragerðisbæjar að Breiðumörk 20.
Nánari upplýsingar veitir Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri eða Guðlaug Jónsdóttir aðst. Leikskólastjóri í síma 4934139. Eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is
Laun verða greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Starfið hentar öllum kynjum
Síðast breytt: 18. september 2023
Getum við bætt efni síðunnar?