Leikskólakennara/leiðbeinanda vantar í Undraland
Leikskólakennara/leiðbeinanda vantar í Undraland
Getur verið að þú sért einmitt rétta manneskjan fyrir okkur?
Leikskólinn tók til starfa í núverandi húsnæði 2017 og í honum dvelja 115 börn á sex aldursskiptum deildum. Börnin eru á aldrinum 12 mánaða til 6 ára.
Í Undralandi er starfað samkvæmt lögum um leikskóla og Aðalnámskrá leikskóla, með áherslu á lífsleikni, vináttu, málrækt og nám í gegnum leik og hreyfingu. Unnið er með Leikur að læra, Vináttuverkefni Barnaheilla og málhljóð Lubba.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
- Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
- Íslenskukunnátta nauðsynleg.
Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf og starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags og störfin henta öllum kynjum.
Ef ekki fæst menntaður leikskólakennari verður ráðið í stöðu leiðbeinanda
Umsóknarfrestur er til og með 8. september 2023. Umsóknum skal fylgja ferilskrá eða upplýsingar um nám og fyrri störf og skal skilað í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar eða til leikskólastjóra með tölvupósti: annaerla@hveragerdi.is.
Nánari upplýsingar veitir:
Anna Erla Valdimarsdóttir, leikskólastjóri
S: 8678907
undraland@hveragerdi.is