Fara í efni

Laust starf í Grunnskólanum í Hveragerði - Matráður eða aðstoðarmanneskja í mötuneyti

Laust starf í Grunnskólanum í Hveragerði - Matráður eða aðstoðarmanneskja í mötuneyti í fullt starf

Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og glæsilegu bæjarfélagi. Í skólanum eru um 450 nemendur og við hann starfar vel hæft og menntað starfsfólk. Skólinn flaggar Grænfána, vinnur að aukinni heilsueflingu og unnið er eftir Olweusaráætlun. Gott samstarf er við frístundamiðstöðina Bungubrekku, leikskóla bæjarins og Tónlistarskóla Árnessýslu, en útibú tónlistarskólans er í húsnæði skólans. Einkunnarorð skólans eru; viska, virðing og vinátta og einkennist daglegt starf skólans af þeim. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Framreiðsla á mat
  • Uppvask, frágangur og þrif
  • Aðstoð við matreiðslu
  • Móttaka á vörum og áfyllingar
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Drifkraftur og áreiðanleiki
  • Jákvæðni og þjónustulund
  • Reynsla af starfi í eldhúsi er kostur
  • Lipurð í samskiptum
  • Íslensku og/eða enskukunnátta, æskileg

Aðstæður og kjör:
Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi, FOSS.

Umsóknarfrestur er til 29. september. Frekari upplýsingar veita Sævar Þór Helgason skólastjóri eða Matthea Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri í síma 483-0800.
Skal umsóknum ásamt ferilskrá skilað í tölvupósti, saevar@hveragerdi.is.


Síðast breytt: 14. september 2023
Getum við bætt efni síðunnar?