Laust starf í Grunnskólanum í Hveragerði - Afleysing hönnun og smíði haustið 2023 - hlutastarf.
Afleysing hönnun og smíði haustið 2023 - hlutastarf.
Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og glæsilegu bæjarfélagi. Í skólanum eru um 450 nemendur og við hann starfar vel hæft og menntað starfsfólk. Skólinn flaggar Grænfána, vinnur að aukinni heilsueflingu og unnið er eftir Olweusaráætlun. Gott samstarf er við frístundamiðstöðina Bungubrekku, leikskóla bæjarins og Tónlistarskóla Árnessýslu, en útibú tónlistarskólans er í húsnæði skólans. Einkunnarorð skólans eru; viska, virðing og vinátta og einkennist daglegt starf skólans af þeim.
Hæfniskröfur:
Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. Góð hæfni í mannlegum samskiptum. Faglegur metnaður og skipulagshæfni. Reynsla og áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
Aðstæður og kjör:
Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands (FG).
Umsóknarfrestur er til 23. september. Frekari upplýsingar veita Sævar Þór Helgason skólastjóri eða Matthea Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri í síma 483-0800.
Skal umsóknum ásamt ferilskrá skilað í tölvupósti, saevar@hveragerdi.is.