Frístundaleiðbeinandi - Frístundamiðstöðin Bungubrekka
Frístundamiðstöðin Bungubrekka auglýsir eftir öflugum einstaklingum í starf frístundaleiðbeinanda.
Starfið miðast við 100% starf og felur í sér þátttöku í öllu frístundastarfi Bungubrekku með öllum aldurshópum ásamt skipulags- og undirbúningsvinnu.
Unnið er út frá starfslýsingum frístundaleiðbeinanda sem eru aðgengilegar á heimasíðu Bungubrekku, en þar má sjá helstu hæfniskröfur, verkefni og almenna lýsingu á starfinu: www.bungubrekka.hvg.is
Gert er ráð fyrir því að umsækjendur geti hafið störf í ágúst/september 2023.
Umsóknir fara fram í gegnum íbúargátt Hveragerðisbæjar. Óskað er eftir því að ferilskrá og hreint sakavottorð fylgi með hverri umsókn. https://hveragerdi.ibuagatt.is/login.aspx
Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum um starfið í gegnum tölvupóst bungubrekka@hvg.is eða í gegnum síma, 483-4095 með því að óska eftir að ræða við Ingimar Guðmundsson, forstöðumann frístundamála.