Fara í efni

Bæjarskrifstofan fjólublá! - Alþjóðadagur fatlaðs fólks

Alþjóðadagur fatlaðs fólks er framundan, 3. desember nk. Fjólublár er litur alþjóðlegrar réttindabaráttu fatlaðs fólks og eru ráðuneyti og stofnanir hvattar til að varpa fjólublárri birtu út í umhverfið frá 2. desember til 5. desember 2022 og leggja þannig barráttu fatlaðs fólks lið.

Markmiðið er upplýst samfélag – ekki aðeins þessa daga heldur alla daga, samfélag þar sem fatlað fólk nýtur verðskuldaðrar virðingar og sjálfsagðra réttinda.

Öryrkjabandalagið hvetur alla til að taka þátt og varpa fjólublárri birtu út í umhverfið  – hvort sem það er með því að lýsa upp húsnæði, klæðast fjólubláu eða birta fjólubláa fleti á samfélagsmiðlum. Svo er um að gera að fá félagsmenn með í lið, taka myndir og deila. 

Starfsfólk bæjarskrifstofunnar í Hveragerði hvetur bæjarbúa til að mæta í eða með eitthvað fjólublátt í fjólubláu mánudaginn 5. desember til að sýna baráttu fatlaðs fólks lið á alþjóðadegi þeirra. 


Síðast breytt: 2. desember 2022
Getum við bætt efni síðunnar?