Bæjarstjórn
Dagskrá
1.Umsagnarbeiðni um veitingaleyfi vegna Neó / Gaeta Gelato að Austurmörk 6
2606161
Lagt er fram erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 13. júlí 2026, ásamt fylgiskjölum, þar sem óskað er eftir umsögn um útgáfu leyfis til Pizza 810 ehf., kt. 500626-1190, til reksturs veitingastaðar í flokki II - C Veitingastofa og greiðasala að Austurmörk 6.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum eftirfarandi umsögn Hveragerðisbæjar:
Engar athugasemdir eru gerðar við útgáfu leyfis til Pizza 810 ehf. vegna reksturs veitingastaðar í flokki II - C Veitingastofa og greiðasala.

2.Kosning varafulltrúa í ungmennaráð
2606004
Lagt er fram minnisblað Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, dags. 28. september 2026, með tillögu um að bæjarstjórn kjósi einn varafulltrúa í ungmennaráð þannig að ungmennaráð verði fullskipað. Tillagan byggir á upplýsingum frá Frístundamiðstöðinni Bungubrekku sem auglýsti eftir áhugasömum einstaklingum til að sitja í ungmennaráði.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Forseti ber upp tillögu um að Daníel Ágúst Benjamínsson verði skipaður varafulltúi í ungmennaráð til 31. ágúst 2028 þegar nýtt ráð verður skipað.
Tillagan er samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

3.Kosning fulltrúa Hveragerðisbæjar í Almannavarnanefnd Árnessýslu
2606004
Bæjarstjórn kýs einn aðalfulltrúa og einn til vara í Almannavarnanefnd Árnessýslu.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að kjósa Ingimar Guðmundsson, bæjarstjóra, sem aðalfulltrúa Hveragerðisbæjar og Maríu Rún Þorsteinsdóttur, forseta bæjarstjórnar, sem varafulltrúa í nefndinni.
4.Starfsáætlanir bæjarstjórnar, bæjarráðs, nefnda og ráða 2026-2027
2609200
Lögð er fram sameiginleg starfsáætlun bæjarstjórnar, bæjarráðs, fastanefnda og ráða starfsárið 2026-2027.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Ingimar Guðmundsson, Lárus Jónsson, Einar Alexander K. Haraldsson, Sigmar Karlsson og Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir.

Bæjarstjórn leggur sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Bæjarstjórn fagnar framlagðri starfsáætlun og því nýja fyrirkomulagi sem nú hefur verið tekið upp varðandi fundaraðir bæjarstjórnar, bæjarráðs, nefnda og ráða. Markmið breytinganna er að styrkja undirbúning mála, bæta upplýsingaflæði og skapa betri tengingu milli nefndarstarfs og afgreiðslu mála í bæjarráði og bæjarstjórn.
Reynslan af nýju fyrirkomulagi hingað til gefur góð fyrirheit og bendir til þess að um sé að ræða skilvirkt vinnulag. Meirihluti hlakkar til áframhaldandi samstarfs við nefndir og ráð bæjarins, sem eru vel mönnuð fulltrúum allra flokka og telur að fyrstu fundir kjörtímabilsins gefi góð fyrirheit um öflugt starf á komandi starfsári.
Bæjarstjórn samþykkir starfsáætlunina samhljóða með 7 atkvæðum.

5.Uppfærsla á tekju- og eignamörkum í reglum um úthlutun félagslegs húsnæðis
2609084
Lagt er fram minnisblað Ernu Harðar Solveigardóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs, og Lauru N. Róbertsdóttur, félagsráðgjafa, dags. 3. september 2026, með tillögu að uppfærslu á tekju- og eignamörkum vegna félagslegs húsnæðis.
Málið var tekið fyrir í velferðarnefnd þann 15. september s.l. þar sem tillaga í minnisblaðinu var samþykkt. Tillagan er nú lögð fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Ingimar Guðmundsson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu um uppfærslu tekju- og eignamarka í reglum um félagslegt húsnæði. Sviðstjóra velferðarsviðs er falið að tryggja reglulega uppfærslu á tekju- og eignamörkum í reglum um úthlutun félagslegs húsnæðis.
6.Opnunartími Sundlaugarinnar í Laugaskarði
2609118
Lagt er fram minnisblað Þorsteins Más Ragnarssonar, forstöðumanns Sundlaugarinnar Laugaskarði, dags. 14. september 2026, þar sem gerð er grein fyrir kostnaðarauka vegna aukins opnunartíma sundlaugarinnar sem ákveðinn var á fundi bæjarstjórnar þann 12. febrúar 2026 í kjölfar áskorunar frá ungmennaráði.
Málið var tekið fyrir í bæjarráði þann 17. september s.l. þar sem eftirfarandi var bókað: Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu forstöðumanns Sundlaugarinnar í Laugaskarði sem fram kemur í framlögðu minnisblaði um breyttan opnunartíma sundlaugarinnar. Jafnframt verði opnunartími sundlaugarinnar tekinn til faglegar umfjöllunar í viðeigandi nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Forstöðumanni sundlaugarinnar verði falið að vinna málið áfram með hliðsjón af áætlanagerð fyrir árið 2027. Í þeirri vinnu leggur bæjarráð til að skoðað verði hvort forsendur séu til staðar að endurskoða opnunartímann fyrir næsta ár.
Málið var tekið fyrir í menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd þann 24. september s.l. þar sem eftirfarandi var bókað: Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd tekur undir afgreiðslu bæjarráðs og leggur jafnframt til að málið fái frekari umfjöllun í ungmennaráði. Þá leggur nefndin til að forstöðumaður sundlaugarinnar leiti leiða til að koma til móts við sjónarmið ungmenna að því marki sem þau rúmast innan fjárheimilda sundlaugarinnar og hafi slík sjónarmið í huga við áframhaldandi fjárhagsáætlanagerð. Þá telur nefndin mikilvægt að forstöðumaður hafi eftir atvikum frumkvæði af því að leggja til við nefndina breytingar á opnunartíma ef honum þykir tilefni til, með það að markmiði að þjónusta sundlaugar komi til móts við sem flesta hópa samfélagsins.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Ingimar Guðmundsson, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, Sigmar Karlsson og Einar Alexander K. Haraldsson.
Fundarhlé kl. 17:25.
Fundurinn hélt áfram kl. 17:30.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögu forstöðumanns Sundlaugarinnar í Laugaskarði um breyttan opnunartíma sundlaugarinnar, sbr. framlagt minnisblað. Opnunartími sundlaugar verður á virkum dögum frá kl. 6:30-20:30 og um helgar frá 10:00 - 17:30.
Bæjarstjórn tekur undir þær ábendingar sem fram koma í umsögn menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar og vísar málinu jafnframt til umfjöllunar í ungmennaráði. Forstöðumanni sundlaugarinnar er falið að vinna málið áfram með hliðsjón af fjárhagsáætlanagerð fyrir árið 2027 og meta hvort forsendur séu til staðar til endurskoðunar á opnunartíma sundlaugarinnar.

7.Framlag í Vísinda- og rannsóknarsjóð Suðurlands
2608118
Lagt er fram bréf frá Háskólafélagi Suðurlands, dags. 21. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir áframhaldandi styrk til Vísinda- og rannsóknarsjóð Suðurlands.
Málið var tekið fyrir í bæjarráði þann 10. september 2026 þar sem eftirfarandi var bókað: Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að halda áfram stuðningi við Vísinda- og rannsóknarsjóð Suðurlands í samræmi við fyrirliggjandi beiðni og fela bæjarstjóra að undirrita samning þess efnis.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að halda áfram stuðningi við Vísinda- og rannsóknarsjóð Suðurlands með því að greiða kr. 60.000.- í árlegan styrk árin 2026-2028 og felur bæjarstjóra að undirrita meðfylgjandi drög að samningi. Kostnaðinum er mætt af lið 21010-9990 (Bæjarstjórn - annar rekstrarkostnaður).
8.Beiðni til bæjarstjórnar um niðurfellingu fasteignagjalda
2605019
Eftirtalin skjöl eru lögð fram:
Beiðni til bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar, dags. 30. apríl 2026, frá Lindu Sif Brynjarsdóttur og Einari Sigurðssyni, um niðurfellingu fasteignagjalda vegna eignarinnar Laufskóga 19 þar sem jarðhiti hefur valdið skemmdum á fasteigninni.
Minnisblað Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur, bæjarritara, dags. 7. september 2026.
Málið var tekið fyrir í bæjarráði þann 10. september s.l. þar sem eftirfarandi var bókað: Bæjarráð hefur farið yfir fyrirliggjandi gögn og þær upplýsingar sem aflað hefur verið í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar frá 12. maí 2026. Samkvæmt fyrirliggjandi lögfræðilegu mati og ákvæðum laga um tekjustofna sveitarfélaga eru ekki fyrir hendi skýrar lagaheimildir sem gera sveitarfélaginu kleift að fella niður álögð fasteignagjöld í því tilviki sem hér um ræðir.
Bæjarráð lýsir jafnframt skilningi á þeirri erfiðu stöðu sem eigendur fasteignarinnar standa frammi fyrir.
Með vísan til framangreinds leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda verði hafnað.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda fjármála- og efnahagsráðherra og Sambandi íslenskra sveitarfélaga erindi þar sem vakin er athygli á því að tjón af völdum jarðhita virðist falla utan skilgreiningar náttúruhamfara samkvæmt gildandi regluverki, og óska eftir því að málið verði tekið til skoðunar.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Sigmar Karlsson og Lárus Jónsson.
Fundarhlé kl. 17:37.
Fundurinn hélt áfram kl. 17:44.

Bæjarstjórn telur mikilvægt að sambærileg mál fái skýra umfjöllun á vettvangi ríkisvaldsins. Þótt sveitarfélagið hafi ekki lagaheimildir til að verða við erindinu leiðir málið í ljós að gildandi regluverk virðist ekki gera með skýrum hætti ráð fyrir þeim aðstæðum að fasteignir verði fyrir verulegu tjóni af völdum jarðhita. Bæjarstjórn telur mikilvægt að sú staða verði tekin til skoðunar af hálfu viðeigandi stjórnvalda og metið hvort tilefni sé til breytinga á gildandi regluverki.
Bæjarstjórn tekur undir það sem fram kemur í bókun bæjarráðs og samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að hafna beiðninni um niðurfellingu fasteignagjalda.

9.Niðurstaða útboðs á tryggingum
2603099
Lagt er fram minnisblað Guðmundar M. Ásgrímssonar hjá Consello, dags. 22. september 2026, þar sem fram kemur að borist hafi fjögur tilboð í vátryggingaútboði Hveragerðisbæjar og að lægsta tilboð hafi verið frá Verði Tryggingum ehf. að fjárhæð kr. 14.358.746.-
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að taka tilboði Varðar trygginga ehf. í vátryggingaþjónustu fyrir Hveragerðisbæ og tengda aðila fyrir tímabilið 2027-2029, enda reyndist tilboðið hagstæðast og uppfyllti öll skilyrði útboðsgagna. Bæjarstjóra er falið að ganga frá samningi við Vörð tryggingar ehf. fyrir hönd sveitarfélagsins.
10.Tillaga um kaup á hraðatakmarkandi búnaði
2609211
Lagt er fram minnisblað Jóns Friðriks Matthíassonar, sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs, dags. 28. september 2026, þar sem gerð er tillaga um að bæjarstjórn samþykki kaup á færanlegum hraðatakmarkandi búnaði ásamt skiltum.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Einar Alexander K. Haraldsson, Ingimar Guðmundsson, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, Sigmar Karlsson, Lárus Jónsson og Birgitta Ragnarsdóttir.

Bæjarfulltrúar meirihluta S-lista og D-listans leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Í minnisblaði sviðsstjóra er vísað til umræðna milli sviðsstjóra og bæjarstjóra um umferðaröryggismál í sveitarfélaginu. Niðurstaða þeirra umræðna var að leggja aukna áherslu á að bregðast við þeim ábendingum íbúa sem safnast hafa upp yfir lengri tíma og ráðast í framkvæmanlegar úrbætur án óþarfa tafa.
Með því að fjárfesta í nokkrum hraðatakmarkandi hliðum og tilheyrandi merkingum er stigið mikilvægt skref í þá átt að geta brugðist hraðar og markvissar við. Mikilvægt er að sveitarfélagið hafi svigrúm til að ráðast í raunhæfar og sýnilegar umbætur sem nýtast strax eins og þessar, samhliða undirbúningi stærri og kostnaðarsamari verkefna sem eðli máls samkvæmt taka lengri tíma í framkvæmd.
Jafnframt er mikilvægt að þessi fjárfesting komi ekki í stað frekari vinnu við varanlegar lausnir heldur sé liður í að byggja þær upp í áföngum. Í því samhengi er mikilvægt að sú vinna sem þegar er hafin innan skipulags- og umhverfisnefndar á sviði umferðaröryggis haldi áfram og að unnið verði markvisst að varanlegum úrbótum þar sem þeirra er þörf.
Ingimar Guðmundsson
María Rún Þorsteinsdóttir
Sigmar Karlsson
Birgitta Ragnarsdóttir
Bæjarfulltrúar minnihluta Okkar Hveragerði leggja fram eftirfarandi bókun:
Bæjarfulltrúar Okkar Hveragerðis styðja heilshugar allar aðgerðir sem auka umferðaröryggi í bænum. Nýlegt og alvarlegt umferðarslys þar sem ungur drengur lenti undir bifreið minnir okkur á hversu brýnt það er að stíga fast til jarðar í þessum málum. Við viljum þó undirstrika mikilvægi þess að horft sé heildstætt á umferðaröryggi til framtíðar í stað þess að treysta um of á bráðabirgðaaðgerðir. Á síðasta kjörtímabili var samþykkt metnaðarfull samgöngustefna til að lækka umferðarhraða varanlega. Við hvetjum meirihlutann til að vinna markvisst eftir þeirri stefnu og tryggja að öryggismál séu fastur liður í eðlilegri fjárhagsáætlunargerð sveitarfélagsins.
Lárus Jónsson
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Bæjarfulltrúi Framsóknar leggur fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi Framsóknar fagnar því að hér sé verið að verja fjármunum til þess að stuðla að umferðaröryggi íbúa og minnir á mikilvægi þess að grípa til aðgerða tímanlega þegar áhyggjur sem tilefni er til að bregðast við koma fram.
Einar Alexander K. Haraldsson
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að festa kaup á sex færanlegum hraðatakmarkandi hliðum ásamt nauðsynlegum skiltum, í samræmi við fyrirliggjandi minnisblað. Bæjarstjórn felur sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs og umhverfisfulltrúa að fylgja málinu á eftir.

11.Viðauki nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna kaupa á hraðatakmarkandi búnaði
2609216
Lagt er fram minnisblað Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, dags. 28. september 2026, þar sem gerð er tillaga að viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna kaupa á hraðatakmarkandi búnaði og skiltum. Lagt er til að liður nr. 10530-2940 (Gangbrautir og umferðarmerking - umferðarmerki) verði hækkaður um 5 milljónir og liður nr. 10310-4980 (Viðhald gatna og gangstétta - aðkeypt vinna) verði lækkaður á móti.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2026 að fjárhæð kr. 5.000.000.- vegna kaupa á hraðatakmarkandi búnaði og skiltum.
12.Umsókn um breytingu á deiliskipulagi í Hlíðarhaga
2609029
Eftirfarandi skjöl eru lögð fram:
Erindi Baldurs Ingvasonar, lóðarhafa við Hlíðarhaga 2-4, 6, 11-15 og 17, dags. 1. september 2026.
Uppdrættir með tillögu að fjölgun íbúða.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi, dags. 1. september 2026.
Minnisblað Hildar Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, dags. 4. september 2026.
Í erindinu er sótt um breytingu á deiliskipulagi Hlíðarhaga vegna fjölgunar íbúða úr 45 í 55. Gert er ráð fyrir óbreyttu nýtingarhlutfalli lóða ofanjarðar eða 0,45 og er bílastæðafjöldi óbreyttur. Íbúðaþéttleiki verður 42 íbúðir á hektara.
Málið var tekið fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd þann 22. september s.l. þar sem eftirfarandi var bókað:
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að hafna erindinu þar sem það rúmast ekki innan gildandi aðalskipulags og að skipulagsfulltrúa verði falið að leiðbeina umsækjanda um áframhaldið.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Lárus Jónsson, Ingimar Guðmundsson og Sigmar Karlsson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að hafna beiðni um breytingu á deiliskipulagi Hlíðarhaga þar sem það rúmast ekki innan gildandi aðalskipulags og felur skipulagsfulltrúa að leiðbeina umsækjanda um áframhald málsins.
13.Heiðmörk 30-36, Grundarreitur - nýtt deiliskipulag
2510173
Eftirtalin skjöl eru lögð fram:
Deiliskipulagsuppdráttur fyrir Heiðmörk 30-36, dags. 27. janúar 2026 (auðkenni 05-01).
Skýringaruppdráttur fyrir Heiðmörk 30-36, dags. 27. janúar 2026 (auðkenni 05-02).
Uppdráttur með skuggavarpi fyrir Heiðmörk 30-36, dags. 27. janúar 2026 (auðkenni 05-03).
Greinargerð deiliskipulags, dags. mars 2026.
Athugasemdir og umsagnir sem bárust vegna deiliskipulagstillögu á auglýsingartíma.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. september 2026.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 9. apríl 2026 að auglýsa deiliskipulag Heiðmerkur 30-36, Grundarreitar, í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 22. apríl til 3. júní 2026. Alls bárust fimm umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Brunavörnum Árnessýslu, Veitum, Rarik, Mílu og Minjastofnun Íslands.
Einnig barst athugasemd sem 243 einstaklingar undirrituðu.
Í framlögðum gögnum hefur upphaflegri deiliskipulagstillögu verið breytt til þess að koma til móts við innkomnar athugasemdir. Breytingarnar eru eftirfarandi: Íbúðum fækkar úr 80 í 74. Hús næst Bláskógum (reitur A4) og Litlumörk (reitur B5) voru lækkuð um eina hæð og eru 1. hæð á nýjum uppdrætti, byggingarreitur lengdist og 16 bílastæði falla út. Þakform á húsum á reit A3 og B3 var breytt í flöt þök, voru áður mænisþök. Byggingarreitur B2 breyttist og er 10 íbúðareitur en var áður 8 íbúða. Byggingarreitir í garðrými verða tveir, einn á hvorri lóð en áður voru þeir þrír.
Málið var tekið fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd þann 22. september 2026 þar sem eftirfarandi var bókað: Nefndin leggur til við bæjarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Heiðmarkar 30-36, Grundarreitar, að nýju í samræmi við 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, Ingimar Guðmundsson, Lárus Jónsson, Sigmar Karlsson, Birgitta Ragnarsdóttir og Einar Alexander K. Haraldsson.

Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Heiðmarkar 30-36, Grundarreitar, að nýju í samræmi við 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Fundarhlé kl. 18:36.
Fundurinn hélt áfram kl. 18:45.
Fundurinn hélt áfram kl. 18:45.
14.Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi vegna stækkunar skiltis við Sunnumörk 6
2608054
Lögð er fram aðalteikning og afstöðumynd vegna fyrirhugðrar uppsetningar á skilti á lóðina við Sunnumörk 6 auk umsagnar Hildar Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, dags. 4. september 2026.
Málið var tekið fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd þann 22. september 2026 þar sem eftirfarandi var bókað: Nefndin leggur til við bæjarstjórn að heimila óverulegt frávik frá deiliskipulagi skv. gr. 5.8.4. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 þar sem hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að heimila óverulegt frávik frá deiliskipulagi skv. gr. 5.8.4. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013, þar sem hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
15.Kynning til sveitarfélaga sem eru ekki aðilar að Samtökum orkusveitarfélaga
2609006
Lögð er fram kynning Samtaka orkusveitarfélaga og samantekt samtakanna um skattlagningu orkumannvirkja.
Málið var tekið fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd þann 22. september 2026 þar sem eftirfarandi var bókað: Til kynningar. Nefndin hvetur bæjarstjórn til nánari skoðunar á hvort hagsmunum Hveragerðisbæjar sé betur borgið með aðild að samtökunum eða án.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Ingimar Guðmundsson, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Lárus Jónsson.
Málið var tekið fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd þann 22. september 2026 þar sem eftirfarandi var bókað: Til kynningar. Nefndin hvetur bæjarstjórn til nánari skoðunar á hvort hagsmunum Hveragerðisbæjar sé betur borgið með aðild að samtökunum eða án.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Ingimar Guðmundsson, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Lárus Jónsson.
Bæjarfulltrúar minnihluta Okkar Hveragerði leggja fram eftirfarandi bókun:
Bæjarfulltrúar Okkar Hveragerðis telja brýnt að Hveragerðisbær sæki formlega um aðild að Samtökum orkusveitarfélaga. Hveragerði er í næsta nágrenni við stærstu orkumannvirki landsins og íbúar finna daglega fyrir lyktarmengun, sjónrænum áhrifum og reglulegum jarðskjálftum af völdum borana og niðurdælingar. Drög að nýju reiknilíkani Stjórnarráðsins varðandi fasteignaskatta af orkumannvirkjum sýna þó að Hveragerði fær einungis um 0,11% hlutdeild á meðan sveitarfélög mun fjær byggð okkar fá verulegar tekjur. Þetta stafar af því að líkanið horfir um of til stærðar landsvæðis, en horfir fram hjá nálægð við þéttbýli og beinum, íþyngjandi áhrifum á daglegt líf fólks, líkt og af manngerðum jarðskjálftum. Hveragerðisbær verður að ganga til liðs við samtökin til að beita sér af krafti innan þeirra vébanda. Okkar helsta baráttumál verður að krefjast þess að reiknilíkaninu verði breytt þannig að nálægð við þéttbýli og raunveruleg samfélagsleg áhrif verði metin til sanngjarnrar hlutdeildar. Við leggjum jafnframt til að fulltrúa frá Samtökum orkusveitarfélaga verði boðið á fund bæjarráðs til að fara nánar yfir starfsemi samtakanna og þá hagsmunagæslu sem fram undan er.
Lárus Jónsson
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að fela umhverfisfulltrúa og bæjarstjóra að taka saman greinargerð um kosti og galla aðildar Hveragerðisbæjar að Samtökum orkusveitarfélaga. Greinargerðin verði lögð fyrir skipulags- og umhverfisnefnd til umfjöllunar og umsagnar áður en málið kemur aftur til afgreiðslu bæjarstjórnar. Lagt er fyrir bæjarstjóra að boða fulltrúa Samtaka orkusveitarfélaga á fund bæjarráðs við fyrsta tækifæri.

16.Fundargerð öldungaráðs frá 2. september 2026
2608012F
Fundargerðin er lögð fram.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er staðfest samhljóða með 7 atkvæðum.
17.Fundargerð bæjarráðs frá 10. september 2026
2609001F
Fundargerðin er lögð fram. Liðir afgreiddir sérstaklega: 6 og 7.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er staðfest samhljóða með 7 atkvæðum.
18.Fundargerð velferðar- og fræðslunefndar frá 15. september 2026
2609006F
Fundargerðin er lögð fram. Liðir afgreiddir sérstaklega: 4.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir og Ingimar Guðmundsson.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir og Ingimar Guðmundsson.
Bæjarstjórn leggur sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Bæjarstjórn fagnar greinargóðu minnisblaði sviðsstjóra velferðarsviðs um áhrif reglugerðar nr. 700/2026 og þeirri vinnu sem lögð hefur verið í að meta áhrif hennar á Hveragerðisbæ. Jákvætt er að breytingarnar hafi ekki haft neikvæð fjárhagsleg áhrif á sveitarfélagið að svo stöddu.
Jafnframt er mikilvægt að áfram verði fylgst náið með þróun málsins. Hér er um að ræða málaflokk sem getur haft veruleg fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög og því mikilvægt að tryggja fyrirsjáanleika í rekstri þeirra. Breytingar á mati, túlkun eða ákvörðunum ríkisins mega ekki leiða til þess að sveitarfélög verði fyrir óvæntum kostnaðarauka án fullnægjandi undirbúnings til þess að hægt sé að tryggja að börn með fjölþættan vanda fái viðunandi þjónustu. Því er brýnt að halda áfram að vakta þróun málsins og möguleg áhrif þess á sveitarfélagið til framtíðar.
Fundarhlé kl. 19:08.
Fundurinn hélt áfram kl. 19:20.

19.Fundargerð skólanefndar 17. september 2026
2609007F
Fundargerðin er lögð fram.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir og Ingimar Guðmundsson.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir og Ingimar Guðmundsson.
Bæjarfulltrúar meirihluta S-lista og D-listans leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti fagnar þeirri áherslu sem skólanefnd leggur á markvissa nýtingu gagna og upplýsinga við þróun skólastarfs. Gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni (ÍÆ), PISA og öðrum mælingum hafa takmarkað gildi nema þau séu nýtt á virkan hátt til greiningar, samræðu og umbótastarfs.
Sérstaklega er ánægjulegt að sjá þá nálgun nefndarinnar að kalla eftir frekari rýni og minnisblöðum út frá niðurstöðum ÍÆ. Með þeim hætti skapast betri forsendur fyrir upplýstri stefnumótun og markvissum umbótum sem byggja á raunverulegri stöðu barna og ungmenna í sveitarfélaginu.
Meirihlutinn hlakkar til að sjá niðurstöður þeirrar vinnu sem fram undan er og þau minnisblöð sem nefndin hefur óskað eftir. Þau munu án efa skapa verðmætan grunn fyrir frekari þróun skóla- og frístundastarfs í Hveragerði.
Þá var einnig ánægjulegt að lesa þær starfsáætlanir sem lagðar voru fram fyrir skólanefnd. Ljóst er að innan stofnana bæjarins er unnið öflugt og metnaðarfullt starf og mikilvægt að stjórnendur fái tækifæri til að kynna framtíðarsýn sína, áherslur og verkefni á vettvangi nefndarinnar.

20.Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 22. september 2026
2608009F
Fundargerðin er lögð fram. Liðir afgreiddir sérstaklega: 4, 6, 15 og 22.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er staðfest samhljóða með 7 atkvæðum.
Fundarhlé kl. 19:25.
Fundurinn hélt áfram kl. 19:27.
Fundurinn hélt áfram kl. 19:27.
21.Fundargerð bæjarráðs frá 17. september 2026
2609008F
Fundargerðin er lögð fram. Liðir afgreiddir sérstaklega: 14.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er staðfest samhljóða með 7 atkvæðum.
22.Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 23. september 2026
2609005F
Fundargerðin er lögð fram.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Sigmar Karlsson og Lárus Jónsson.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Sigmar Karlsson og Lárus Jónsson.
Bæjarstjórn leggur sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Bæjarstjórn tekur undir bókun samráðshópsins og fagnar verkefninu "Allir með" og hvetur íþróttafélög starfandi innan Hveragerðisbæjar til þess að taka þátt í verkefninu og nýta sér þann möguleika um að sækja styrk í Hvatasjóði verkefnisins. Bæjarstjórn felur starfsmanni samráðshópsins að vinna áfram tillögur um mögulega aðkomu sveitarfélagsins að skipulagi þátttöku í verkefninu. Við þá vinnu er lagt til að starfsmaður samráðshópsins leitist eftir samvinnu við starfsmann menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar. Að þeirri vinnu lokinni mun samráðshópur fjalla um málið að nýju.

23.Fundargerð menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar frá 24. september 2026
2609009F
Fundargerðin er lögð fram.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir og Sigmar Karlsson.
Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir og Sigmar Karlsson.
Bæjarfulltrúar meirihluta S-lista og D-listans leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Meirihlutinn fagnar því mikilvæga starfi sem unnið hefur verið á vettvangi Öruggara Suðurlands og þeirri vönduðu umfjöllun sem skýrslan hefur fengið í nefndum Hveragerðisbæjar. Slíkt samtal og sameiginleg yfirferð er mikilvæg forsenda þess að niðurstöður vinnunnar skili sér í raunhæfum og árangursríkum aðgerðum.
Meirihlutinn bindur vonir við að afrakstur þessarar vinnu verði til þess að styrkja enn frekar undirbúning og framkvæmd bæjarhátíða í Hveragerði og verði sveitarfélaginu leiðarljós við að skapa örugga og vel heppnaða viðburði til framtíðar.
Ingimar Guðmundsson
Birgitta Ragnarsdóttir
Sigmar Karlsson
María Rún Þorsteinsdóttir
Fundargerðin er staðfest samhljóða með 7 atkvæðum.
Meirihlutinn fagnar því mikilvæga starfi sem unnið hefur verið á vettvangi Öruggara Suðurlands og þeirri vönduðu umfjöllun sem skýrslan hefur fengið í nefndum Hveragerðisbæjar. Slíkt samtal og sameiginleg yfirferð er mikilvæg forsenda þess að niðurstöður vinnunnar skili sér í raunhæfum og árangursríkum aðgerðum.
Meirihlutinn bindur vonir við að afrakstur þessarar vinnu verði til þess að styrkja enn frekar undirbúning og framkvæmd bæjarhátíða í Hveragerði og verði sveitarfélaginu leiðarljós við að skapa örugga og vel heppnaða viðburði til framtíðar.
Ingimar Guðmundsson
Birgitta Ragnarsdóttir
Sigmar Karlsson
María Rún Þorsteinsdóttir
Fundargerðin er staðfest samhljóða með 7 atkvæðum.
24.Ábyrgð á láni frá Lánasjóði sveitarfélaga til Fasteignafélags Hveragerðis ehf.
2608072
Á fundi bæjarráðs þann 20. ágúst 2026 var samþykkt, í umboði bæjarstjórnar, að taka lán að fjárhæð 600 milljónir í nafni Hveragerðisbæjar. Þar sem lánið er tekið til þess að fjármagna framkvæmdir á vegum Fasteignafélags Hveragerðis ehf. hefur stjórn félagsins samþykkt að vera lántaki lánsins en nú er lagt fyrir bæjarstjórn að samþykkja að veita einfalda ábyrgð, í samræmi við eignarhlut sinn, í lántaka, á láni Fasteignafélags Hveragerðis ehf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 600.000.000.- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Fundarhlé kl. 19:37.
Fundurinn hélt áfram kl. 19:42.
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð, í samræmi við eignarhlut sinn í lántaka, á láni Fasteignafélags Hveragerðis ehf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 600.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim lánaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Bæjarstjórn Hveragerðis hefur kynnt sér skilmála viðkomandi lánaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Til tryggingar ábyrgðinni - þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði - samþykkir bæjarstjórn Hveragerðis að tekjur sveitarfélagsins, sbr. 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69 gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Samþykki þetta nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til fjármagna framkvæmdir á gervigrasvelli og íþróttahúsi. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Bæjarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda félagsins, til að selja ekki eignarhlut sinn til einkaaðila, í heild eða að hluta, fyrr en lánið hefur verið að fullu greitt.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annars opinbers aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Ingimari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt.210894-2929, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Hveragerðisbæjar. Umboðið tekur jafnframt til móttöku, undirritunar, útgáfu og afhendingar allra skjala, fyrirmæla og tilkynninga sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

Fundargerðin er upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 20:04.
Getum við bætt efni síðunnar?
Forseti bæjarstjórnar ber upp tillögu um að taka mál er varðar ábyrgðarveitingu á láni til Fasteignafélags Hveragerðis ehf. á dagskrá fundarins. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að taka málið á dagskrá (fundarliður 24).