Fara í efni

Bæjarstjórn

608. fundur 22. september 2026 kl. 16:00 - 16:33 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri
  • María Rún Þorsteinsdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Sigmar Karlsson aðalmaður
  • Birgitta Ragnarsdóttir aðalmaður
  • Marta Rut Ólafsdóttir aðalmaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir aðalmaður
  • Lárus Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Forseti bæjarstjórnar, María Rún Þorsteinsdóttir, setur fundinn og stjórnar honum. Hún leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.

1.Tillaga að breytingum á byggingarréttargjöldum

2609053

Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja lækkun byggingarréttargjalda á óúthlutuðum lóðum fyrir einbýlishús í Hrauntungu niður í 20% af gatnagerðargjaldi. Um er að ræða eftirtaldar lóðir: Tröllahraun 50, Tröllahraun 57, Tröllahraun 59, Tröllahraun 61, Tröllahraun 63, Tröllahraun 65, Tröllahraun 66, Tröllahraun 67, Tröllahraun 68, Tröllahraun 70, Tröllahraun 72, Tröllahraun 74, Tröllahraun 76 og Tröllahraun 78.



Þá er lagt til við bæjarstjórn að samþykkja lækkun byggingarréttargjalda á óúthlutuðum lóðum fyrir einbýlishús í Hólmabrún niður í 15% af gatnagerðargjaldi. Um er að ræða Hólmabrún 2, Hólmabrún 4, Hólmabrún 6 og Hólmabrún 15. Forsendur lækkunar byggingarréttargjalda á Hólmabrún 2, 4 og 6 er sú að áætlaður jarðvinnukostnaður á þeim lóðum er verulega hærri en á öðrum lóðum í kring. Forsendur lækkunar byggingarréttargjalda á Hólmabrún 15 er að lega þeirrar lóðar takmarkar möguleika hönnunar mannvirkis.



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir og Sigmar Karlsson.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögur um að lækka byggingarréttargjöld á tilgreindum lóðum í Hrauntungu niður í 20% af gatnagerðargjaldi og tilgreindum lóðum í Hólmabrún niður í 15% af gatnagerðargjaldi.

2.Tillaga að úthlutun lóða

2609119

Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja að eftirtaldar lóðir verði auglýstar til úthlutunar:



Einbýlishúsalóðir með 20% byggingaréttargjaldi:

Tröllahraun 50, Tröllahraun 57, Tröllahraun 59, Tröllahraun 61, Tröllahraun 63, Tröllahraun 65, Tröllahraun 66, Tröllahraun 67, Tröllahraun 68, Tröllahraun 70, Tröllahraun 72, Tröllahraun 74, Tröllahraun 76 og Tröllahraun 78.



Parhúsalóðir með 40% byggingarréttargjaldi:

Tröllahraun 21-23, Tröllahraun 25-27, Tröllahraun 26-28 og Tröllahraun 30-32.



Raðhúsalóðir með 40% byggingarréttargjaldi:

Tröllahraun 1-7 og Tröllahraun 2-8.



Enginn tók til máls.
Fundarhlé kl. 16:07.
Fundurinn hélt áfram kl.16:11.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að fela bæjarstjóra og sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs að auglýsa tilgreindar lóðir til úthlutunar.

3.Uppfærð fjárfestingaráætlun fyrir árið 2026

2608143

Á fundi bæjarstjórnar þann 3. september s.l. bókaði bæjarstjórn eftirfarandi við fundarlið nr. 10: "Bæjarstjórn tekur undir mikilvægi þess að endurmeta fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins í ljósi breyttra tekjuforsenda og stöðu lausafjár. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að fela bæjarstjóra og sviðsstjórum að vinna áfram að yfirferð fjárfestingaverkefna sveitarfélagsins og leggja fram tillögur um forgangsröðun, áfangaskiptingu eða frestun verkefna eftir því sem tilefni er til."



Nú er lögð fram tillaga, sem unnin var í sameiningu af allri bæjarstjórn, að uppfærðri fjárfestingaáætlun vegna ársins 2026 sem gerir ráð fyrir að draga úr þeim fjárfestingum sem fyrirhugaðar voru á yfirstandandi ári. Í samþykktri fjárfestingaáætlun fyrir árið 2026 var gert ráð fyrir fjárfestingum að fjárhæð kr. 1.299.000.000.- Samkvæmt tillögunni er áætlað að draga úr fjárfestingum um kr. 528.000.000.- frá samþykktri áætlun. Nú þegar hefur kostnaður við tiltekin verkefni farið umfram samþykkta fjárfestingaáætlun og nemur sá kostnaður kr. 211.370.000.-



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Sigmar Karlsson og Birgitta Ragnarsdóttir.
Bæjarstjórn leggur sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Tillaga að uppfærðri fjárfestingaráætlun var unnin í góðri samvinnu bæjarfulltrúa og með hliðsjón af breyttum tekjuforsendum og stöðu lausafjár sveitarfélagsins. Vinnan við tillöguna felur í sér að horft er til næstu ára og að lögbundin verkefni og grunnþjónusta verði sett í forgang. Sú vinna mun nýtast bæjarstjórn í komandi fjárhagsáætlunargerð.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum uppfærða fjárfestingaáætlun vegna ársins 2026 og felur bæjarstjóra að bregðast við breytingunum með gerð samninga við verktaka í þeim tilvikum sem það á við.

4.Drög að uppfærðri þriggja ára rekstrar- og fjárfestingaáætlun

2608143

Á fundi bæjarstjórnar þann 3. september s.l. bókaði bæjarstjórn eftirfarandi við fundarlið nr. 11: "Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að fela bæjarstjóra og sviðsstjórum að leiða vinnu við gerð uppfærðrar rekstrar- og fjárfestingaráætlunar fyrir sveitarfélagið vegna ársins 2027 og næstu þriggja ára á eftir. Við vinnuna verði lögð sérstök áhersla á endurmat tekjuforsendna, rekstrar, fjárfestinga og fjármögnunarþarfar sveitarfélagsins. Jafnframt verði unnið með kjörnum fulltrúum að forgangsröðun verkefna og mótun þeirra áherslna sem áætlunin byggir á. Uppfærð áætlun verði lögð til grundvallar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir næsta ár."



Í kjölfar fundar bæjarstjórnar þann 3. september s.l. hefur öll bæjarstjórn Hveragerðisbæjar sameinast í vinnu um að uppfæra framlagða rekstrar- og fjárfestingaáætlun fyrir Hveragerðisbæ þ.e. rauntölur vegna ársins 2025, útkomuspá fyrir árið 2026 og drög að uppfærðri þriggja ára áætlun. Tekjuforsendur hafa verið yfirfarnar ítarlega og leiðréttar miðað við þær upplýsingar sem nú liggja fyrir auk þess sem fjárfestingar hafa verið endurskoðaðar. Fyrirliggjandi gögn eru lögð fram fyrir bæjarstjórn sem drög til samþykktar svo unnt sé að leggja þau fyrir Lánasjóð sveitarfélaga í kjölfarið en stjórn sjóðsins hefur sett fram þau skilyrði að uppfærð drög verði lögð fyrir sjóðinn sem forsenda útgreiðslu láns að fjárhæð 600 milljónir.



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir og Ingimar Guðmundsson.
Bæjarstjórn leggur sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Drög að uppfærðri rekstrar- og fjárfestingaráætlun voru unnin í góðri samvinnu allra bæjarfulltrúa. Sú vinna hefur skapað góðan grunn fyrir komandi fjárhagsáætlunargerð og sameiginlegan skilning á stöðu og helstu viðfangsefnum sveitarfélagsins. Næstu skref felast í áframhaldandi yfirferð og greiningu á rekstri, fjárfestingum og tekjuforsendum sveitarfélagsins með það að markmiði að móta skýr fjárhagsleg markmið og tryggja traustan grundvöll fyrir fjárhagsáætlun og áætlanagerð næstu ára.

Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum drög að uppfærðri rekstrar- og fjárfestingaáætlun og felur bæjarstjóra að senda drögin til Lánasjóðs sveitarfélaga.
Fundargerðin upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 16:33.

Getum við bætt efni síðunnar?