Fara í efni

Bæjarstjórn

606. fundur 02. júlí 2026 kl. 17:00 - 19:20 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri
  • María Rún Þorsteinsdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Sigmar Karlsson aðalmaður
  • Marta Rut Ólafsdóttir aðalmaður
  • Þorsteinn Hjartarson varamaður
  • Jónas Guðnason varamaður
  • Sandra Lind Brynjarsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Þorsteinn Hjartarson tók sæti í bæjarstjórn á fundinum sem varamaður Birgittu Ragnarsdóttur fyrir S-lista.

Jónas Guðnason tók sæti í bæjarstjórn á fundinum sem varamaður Lárusar Jónssonar fyrir Okkar Hveragerði.

Sandra Lind Brynjarsdóttir tók sæti í bæjarstjórn á fundinum sem varamaður Dagnýjar Sifja Sigurbjörnsdóttur fyrir Okkar Hveragerði.

Forseti bæjarstjórnar, María Rún Þorsteinsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 3. júní 2026

2512087

Fundargerðin er lögð fram.



Enginn tók til máls.
Fundargerðin er staðfest samhljóða með 7 atkvæðum.

2.Fundargerð Menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar frá 16. júní 2026

2606008F

Fundargerðin er lögð fram.



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Sigmar Karlsson, Marta Rut Ólafsdóttir og Jónas Guðnason.
Bæjarstjórn leggur sameiginlega fram eftirfarandi bókun:

Bæjarstjórn þakkar öllum þeim sem komu að undirbúningi, skipulagningu og framkvæmd hátíðarhalda í tilefni af þjóðhátíðardeginum 17. júní fyrir metnaðarfullt starf og afar vel heppnaða dagskrá.
Jafnframt óskar bæjarstjórn Jónasi Sigurðssyni og Áslaugu Hönnu Baldursdóttur innilega til hamingju með Menningarverðlaun Hveragerðisbæjar árið 2026. Veiting verðlaunanna er verðskulduð viðurkenning á framlagi þeirra til menningarlífs bæjarins og óskar bæjarstjórn þeim velfarnaðar í áframhaldandi störfum.

Fundargerðin er staðfest samhljóða með 7 atkvæðum.

3.Fundargerð bæjarráðs frá 18. júní 2026

2605007F

Fundargerðin er lögð fram.

Liðir nr. 1, 24, 25 og 30 í fundargerðinni eru afgreiddir sérstaklega undir fundarliðum nr. 5, 6, 7, 8 og 11.



Fundarhlé kl. 17:10

Fundurinn hélt áfram kl. 17:24



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Jónas Guðnason og Ingimar Guðmundsson.

Fundargerðin er staðfest samhljóða með 7 atkvæðum.

4.Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 23. júní 2026

2606009F

Fundargerðin er lögð fram.

Liðir nr. 1 og 3 í fundargerðinni eru afgreiddir sérstaklega undir fundarliðum nr. 12 og 13.



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Hjartarson, Jónas Guðnason og Marta Rut Ólafsdóttir.
Bæjarfulltrúar meirihluta S-lista og D-lista leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:

Bókun og tillaga vegna dagskrárliða 12, 13, 14, 17 og 18.
Þarna er m.a. fjallað um ábendingar frá íbúum um hraðakstur á Sunnumörk, Finnmörk, Hrauntungu og Heiðmörk. Meirihluti bæjarstjórnar tekur undir áhyggjur íbúa og bókanir skipulags- og umhverfisnefndar. Í því sambandi viljum við árétta það sem fram kemur í málefnasamningi D- og S-lista að eitt af forgangsverkefnum kjörtímabilsins eigi að vera endurnýjun merkinga á gangbrautum og hraðahindrunum og bæta við þar sem þörf er á og aðstæður leyfa.

Lagt er til að málið verði tekið til frekari skoðunar í bæjarráði með þátttöku umhverfisfulltrúa og sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs. Heildstætt yfirlit þarf að fá frá þeim um það hvar við stöndum í þessum málum og byrja sem fyrst á úrbótaverkefnum sem draga úr hraðakstri í Hveragerði.

Ingimar Guðmundsson
María Rún Þorsteinsdóttir
Sigmar Karlsson
Þorsteinn Hjartarson

Fundargerðin er staðfest samhljóða með 7 atkvæðum.

5.Beiðni um umsögn um veitingaleyfi

2604154

Lögð er fram beiðni sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 13. febrúar 2026, ásamt fylgigögnum, þar sem óskað er eftir umsögn Hveragerðisbæjar vegna umsóknar AE Chefs ehf. um veitingaleyfi vegna veitingarstaðarins Yuzu Hveragerði að Austurmörk 6.



Málið var tekið fyrir í bæjarráði þann 18. júní s.l. sem gerði eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gera ekki athugasemdir við útgáfu veitingaleyfis til umsækjanda vegna veitingarstaðarins Yuzu að Austurmörk 6 í Hveragerði og veita jákvæða umsögn.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við útgáfu veitingaleyfis til umsækjanda og samþykkir samhljóða, með 7 atkvæðum, að veita jákvæða umsögn.

6.Niðurstaða útboðs á sorphirðu fyrir Hveragerðisbæ 2026-2029

2601033

Lagt er fram minnisblað Jóns Friðriks Matthíassonar, sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs, dags. 15. júní 2026, með upplýsingum um tilboð sem bárust í sorphirðu fyrir Hveragerðisbæ 2026-2029, auk útboðsgagna og kostnaðaráætlunar.



Málið var tekið fyrir í bæjarráði þann 18. júní s.l. sem gerði eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að taka tilboði lægstbjóðanda í útboðsverkið og fela bæjarstjóra að undirrita verksamning og önnur skjöl vegna kaupa á þjónustunni. Bæjarráð felur sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs jafnframt að kanna útfærslu á kaupum á sorpílátum sem eru í eigu þess verktaka sem hefur sinnt sorphirðu hingað til og leggja fyrir bæjarstjórn.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda frá Terra umhverfisþjónustu hf. í verkið og felur bæjarstjóra að undirrita verksamning.

7.Tillaga um kaup á sorpílátum

2606124

Lagt er fram minnisblað Höskuldar Þorbjarnarsonar, umhverfisfulltrúa, dags. 26. júní 2026, þar sem gerð er tillaga um kaup á þeim sorpílátum sem nýtt eru í Hveragerðisbæ en eru í eigu Íslenska gámafélagsins ehf. Um er að ræða 1550 sorpílát og býðst Hveragerðibæ að kaupa ílátin fyrir samtals kr. 9.600.000.-



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 7 atkvæðum, innkaup á sorpílátunum fyrir samtals kr. 9.600.000.- og felur bæjarstjóra að ganga frá kaupunum.

8.Leikskóla- og gjaldskráningarkerfið Vala

2605089

Lögð eru fram drög að nytjaleyfis- og þjónustusamningi um leikskólakerfið Völu, leiðbeiningar um innleiðingu kerfis og minnisblað Röðuls Reys Kárasonar, stafræns leiðtoga, dags. 15. júní 2026.



Málið var tekið fyrir í bæjarráði þann 18. júní s.l. sem gerði eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja nytjaleyfis- og þjónustusamning um leikskólakerfið Völu og fela bæjarstjóra undirritun samningsins.



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir og Þorsteinn Hjartarson.
Bæjarfulltrúar meirihluta S-lista og D-lista leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Meirhlutinn fagnar því að taka eigi í notkun leikskólakerfið Völu fyrir leikskólana í Hveragerði. Eins og fram kemur í minnisblaði er um að ræða umsóknar- og gjaldskráningarkerfi sem er samþætt bókhalds- og reikniskerfi bæjarfélagsins. Með notkun Völu er verið að einfalda ferlið og losna við tví- og þrískráningar þegar börn og foreldra þeirra eru skráðir.

Meginmarkmið með notkun kerfisins að fækka margskráningum og draga úr vinnu starfsfólks við innritun og innheimtu leikskólagjalda. Þá verður umsóknarferli foreldra barnanna, m.a. með tilliti til mismunandi vinnslu umsókna, systkinaafsláttar og breytinga á vistun, mun notendavænna.

Sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs er falið að tryggja gott upplýsingaflæði til foreldra vegna innleiðingar á Völu leikskólakerfi.

Ingimar Guðmundsson
María Rún Þorsteinsdóttir
Sigmar Karlsson
Þorsteinn Hjartarson

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 7 atkvæðum, nytjaleyfis- og þjónustusamning um leikskólakerfið Völu og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn. Sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs er falið að tryggja gott upplýsingaflæði til foreldra vegna innleiðingar á Völu leikskólakerfi.

9.Íþróttahús - endurnýjun á þaki lágbyggingar

2606139

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Minnisblað Guðmundar F. Baldurssonar, byggingarstjóra og eftirlitsmanns, dags. 18. júní 2026.

Verklýsing vegna breytinga á þaki og einangrun veggja, dags. 11. júní 2026.

Drög að teikningum, dags. 4. júní 2026.



Í minnisblaði byggingarstjóra og eftirlitsmanns með framkvæmd við uppbyggingu 1. áfanga íþróttahúss er lagt til að bæjarstjórn samþykki að semja við verktaka um viðbótarverk vegna endurnýjunar á þaki lágbyggingar íþróttahús enda felur útboðsverkið í sér aðrar framkvæmdir við lágbygginguna. Talið er nauðsynlegt að fara í framkvæmdirnar við lágbygginguna samhliða útboðsverkinu enda megi þá koma í veg fyrir að ráðast þurfi í bráðabirgðaframkvæmdir við lokun byggingarinnar með tilheyrandi óhagræði fyrir starfsemina í húsinu og kostnaði.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 7 atkvæðum, að ganga til samninga við Húsameistara ehf. um viðbótarverk skv. framlagðri verklýsingu og felur bæjarstjóra undirritun samnings þess efnis.

10.Viðauki nr. 7 við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna íþróttahúss

2606146

Lagt var fram minnisblað Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur, bæjarritara, dags. 29. júní 2026, ásamt fylgiskjali, þar sem gerð er tillaga að viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2026, að fjárhæð kr. 23.000.000.- vegna endurnýjunar á þaki lágbyggingar íþróttahúss. Tillagan gerir ráð fyrir hækkun á fjárfestingum og á móti, hækkun tekna vegna staðgreiðslu.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 7 atkvæðum, viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð kr. 23.000.000.- vegna endurnýjunar á þaki lágbyggingar íþróttahúss.

11.Fegrunarátak í samstarfi við íbúa

2606097

Lagt er fram minnisblað Höskuldar Þorbjarnarsonar, umhverfisfulltrúa, dags. 30. júní 2026, þar gerð er tillaga um hreinsunarviku og fegrunarátak í Hveragerði vikuna 13. júlí til 19. júlí n.k.



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Ingimar Guðmundsson og Jónas Guðnason.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 7 atkvæðum, tillögu um hreinsunarviku og fegrunarátak í samstarfi við íbúa skv. framlögðu minnisblaði og felur umhverfisfulltrúa að hafa umsjón með verkefninu og vinna áfram í samstarfi við menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa. Þá er umhverfisfulltrúa og menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa falið að meta ávinning að verkefni loknu og skila stöðuyfirliti til bæjarstjórnar.

12.Óveruleg breyting á deiliskipulagi Ás- og Grundarsvæðis vegna Hverahlíðar - sorpgerði

2606069

Lögð er fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Ás- og Grundarsvæðis við Hverahlíð vegna sorpgerðis dags. 11. júní 2026.



Breytingin felst í því að byggingarreitur SÞ1 á lóð Bröttuhlíðar 18-22 er stækkaður í norð-austur horni lóðar undir sorpgeymsluskýli. Hæð sorpskýlanna verður að hámarki 3,5 m en efra skýlið verður fellt inn í núverandi landslag. Núverandi bílastæðum fækkar um 3 vegna skýlanna. Kvöð um aðkomu að sorptunnuskýlum er færð að innkeyrslu á lóðarmörkum. Byggingarheimildir haldast óbreyttar innan reits SÞ1. Ofangreind breyting er í samræmi við gildandi aðalskipulag.



Um er að ræða óveruleg frávik frá gildandi deiliskipulagi þar sem hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Því er ekki talin þörf á að grenndarkynna breytinguna sérstaklega. Byggingarheimildir haldast óbreyttar og skipulagsskilmálar haldast einnig óbreyttir.



Málið var tekið fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd þann 23. júní s.l. sem gerði eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 7 atkvæðum, deiliskipulagsbreytinguna sem er óveruleg sbr. 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

13.Deiliskipulagsbreyting hesthúsahverfis á Vorsabæjarvöllum vegna stækkunar hesthúsahverfis og golfvallar

2401118

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Greinargerð og skilmálar vegna deiliskipulagsbreytingar hesthúsahverfis á Vorsabæjarvöllum vegna stækkunar hesthúsahverfis og golfvallar, dags. 28. nóvember 2025 með breytingum 12. júní 2026, auk uppdrátta.

Umsögn Náttúrufræðistofnunar, dags. 17. febrúar 2026.

Umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, dags. 17. febrúar 2026.

Umsögn Veitna, dags. 19. febrúar 2026.

Umsögn Minjastofnunar, dags. 31. febrúar 2026.

Umsögn skipulagsfulltrúa vegna umsagna og athugasemda, dags. 9. júní 2026.



Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti á fundi sínum þann 11. desember 2025 að auglýsa deiliskipulagsbreytingu fyrir hesthúsahverfi og golfvöll sem er breyting á deiliskipulagi Hesthúsahverfis á Vorsabæjarvöllum sem samþykkt var 10.04.1997 með breytingu 8.5.2025.



Markmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að stækka bæði hesthúsasvæði innan landnotkunarreitar ÍÞ1 í núgildandi aðalskipulagi og golfvöll innan landnotkunarreitar ÍÞ2, sem er stækkaður í nýsamþykktu aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037 og var auglýst samhliða. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu fjölgar lóðum fyrir hesthús og skilgreinir byggingareit fyrir reiðhöll og reiti fyrir ýmis gerði, fjölgar golfbrautum innan bæjarmarka Hveragerðis og aðlagar reið- og gönguleiðir á svæðinu.



Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 9. janúar til 22. febrúar 2026. Alls bárust sex umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Erlingur Arthúrsson dags. 4. febrúar 2026, Veiðifélag Varmár og Þorleifslækjar dags. 16. febrúar 2026, Náttúrufræðistofnun dags. 17. febrúar 2026, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands dags. 18. febrúar 2026 og Veitur dags. 19. febrúar 2026. Minjastofnun Íslands sendi umsögn eftir að athugasemdafrestur rann út eða þann 31. mars s.l.



Málið var tekið fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd þann 23. júní s.l. sem gerði eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna með áorðnum breytingum í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem og umsögn skipulagsfulltrúa sem svör við innkomnum athugasemdum.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 7 atkvæðum, deiliskipulagsbreytinguna með áorðnum breytingum í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að í umsögn skipulagsfulltrúa felist afstaða bæjarstjórnar við innkomnum athugasemdum og umsögnum.

14.Tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar

2606131

Lagt er fram minnisblað Ingimars Guðmundssonar, bæjarstjóra, dags. 23. júní 2026, þar sem gerð er tillaga um að fella niður reglulegan fund bæjarstjórnar í ágúst vegna sumarleyfis sbr. 5. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar og fela bæjarráði umboð til fullnaðarafgreiðslu mála skv. 4. mgr. 33. gr. samþykktarinnar frá og með 3. júlí 2026 og til og með 31. ágúst 2026.



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Jónas Guðnason og Ingimar Guðmundsson.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða, með 7 atkvæðum, og hefur bæjarráð því umboð til fullnaðarafgreiðslu mála frá og með 3. júlí og til og með 31. ágúst 2026 vegna sumarleyfis bæjarstjórnar.

15.Tillaga um lokun bæjarskrifstofu vegna sumarleyfa

2606132

Lagt er fram minnisblað Ingimars Guðmundssonar, bæjarstjóra, dags. 25. júní 2026, þar sem gerð er tillaga um að bæjarskrifstofa verði lokið frá 27. júlí n.k. til 31. júlí n.k. Á tímabilinu yrði sími opinn frá kl. 9:00-12:00.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða, með 7 atkvæðum.

16.Samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga bs. - fyrri umræða

2606145

Lögð er fram tillaga að samþykkt fyrir byggðasamlagið Héraðsnefnd Árnesinga bs. sem samþykkt var á aðalfundi byggðasamlagsins þann 27. apríl 2026 og vísað var til staðfestingar sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 7 atkvæðum, tillögu um breytingar á samþykktum Héraðsnefndar Árnesinga bs. og vísar málinu til síðari umræðu.

17.Tillaga frá D-lista og S-lista um endurskoðun nefndakerfis

2606171

Lögð er fram eftirfarandi tillaga frá D-lista og S-lista:



Tillaga frá meirihluta bæjarstjórnar um endurskoðun nefndakerfis Hveragerðisbæjar



Fulltrúar meirihluta bæjarstjórnar leggja til að hafið verði formlegt ferli við endurskoðun nefndakerfis Hveragerðisbæjar.



Tillagan felur í sér að sérstök áhersla verði lögð á undirbúning að stofnun nýrrar umhverfis- og veitunefndar með það að markmiði að efla umfjöllun og stefnumótun á þeim málaflokkum.



Lagt er til að bæjarstjóra verði falið, í samstarfi við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs, að vinna málið áfram og leggja fram tillögur til bæjarstjórnar um nauðsynlegar breytingar á skipulagi nefnda og erindisbréfum þeirra.



Greinargerð



Í málefnasamningi D- og S-lista kemur fram að endurskoða skuli núverandi nefndaskipan sveitarfélagsins með það að markmiði að auka vægi umhverfis- og veitumála innan stjórnsýslu bæjarins. Jafnframt er lögð áhersla á að efla umfjöllun um íþrótta- og æskulýðsmál innan nefndakerfis bæjarins.



Framkvæmd þessara markmiða kallar á heildstæða endurskoðun nefndakerfisins, þar á meðal á hlutverki einstakra nefnda og erindisbréfum þeirra. Með slíkri endurskoðun skapast tækifæri til að tryggja að nefndaskipan sveitarfélagsins endurspegli betur þær áherslur sem lagðar eru til grundvallar í málefnasamningi meirihlutans og styðji við skilvirka og markvissa stjórnsýslu. Einnig er nauðsynlegt að hafa í huga mikilvægi þess að skoða nefndarkerfið heildstætt með hliðsjón af breyttu skipuriti og nýstofnuðum sviðum innan stjórnkerfis Hveragerðisbæjar.



Lagt er til að Umhverfis- og skipulagsnefnd Hveragerðisbæjar verði skipt upp í tvær sjálfstæðar nefndir, annars vegar umhverfis- og veitunefnd og hins vegar skipulags- og byggingarnefnd.



Með sérstakri umhverfis- og veitunefnd er skýr áhersla lögð á lykilinnviði sveitarfélagsins, sem eru grundvallarþættir í heilnæmu umhverfi, rekstraröryggi og sjálfbærari þróun. Hveragerði býr yfir sérstöðu sem blómabær, þar sem umhverfisgæði, náttúra og sjálfbær nýting auðlinda eru lykilþættir í ímynd og lífsgæðum íbúa.



Markmið breytingarinnar er að efla faglega og skilvirka ákvarðanatöku og tryggja að sveitarfélagið sé betur í stakk búið að takast á við aukið umfang verkefna sem skilar sér í vandaðri og ábyrgari stjórnsýslu ásamt því að vernda náttúru til framtíðar. Líta þarf til þess að fráveitumál í Hveragerði eru aðkallandi. Sérstök umhverfis- og veitunefnd tryggir að fráveitumál sveitarfélagsins fái skýran stefnumótunarvettvang sem skilar markvissari sýn, forgangsröðun framkvæmda og traustari grunn fyrir framtíðaruppbyggingu.



Nú liggur fyrir breyting á verkefnaálagi sveitarfélagsins í kjölfar breytinga á skipan eftirlitsmála. Með þessari yfirfærslu á verkefnum til sveitarfélagsins eykst umfang og vægi umhverfismála verulega. Þessi verkefni kalla á sérhæfðan vettvang til að tryggja yfirsýn, fagmennsku og viðbragðsgetu.



Fulltrúar meirihlutans leggja því til að bæjarstjóra verði falið, í samstarfi við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs, að vinna málið áfram og leggja fram tillögur til bæjarstjórnar um nauðsynlegar breytingar á skipulagi nefnda og erindisbréfum þeirra. Við þá vinnu verði sérstakur forgangur lagður á undirbúning að stofnun nýrrar umhverfis- og veitunefndar og mat lagt á þær breytingar sem nauðsynlegar eru til að hrinda þeirri nefnd í framkvæmd.



Fyrir hönd meirihlutans

Ingimar Guðmundsson

María Rún Þorsteinsdóttir

Sigmar Karlsson

Þorsteinn Hjartarson



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Sigmar Karlsson, Marta Rut Ólafsdóttir og Ingimar Guðmundsson.
Bæjarfulltrúar minnihluta Okkar Hveragerði og Framsóknar leggja fram sameiginlega bókun:

Fulltrúar Framsóknar og Okkar Hveragerðis telja mikilvægt að nefndakerfi Hveragerðisbæjar sé reglulega endurskoðað og að stjórnsýsla sveitarfélagsins þróist í takt við breytt verkefni og þarfir samfélagsins. Til þess að hægt sé að taka upplýsta afstöðu til slíkra breytinga verður þó að liggja fyrir fullnægjandi greining og nauðsynleg gögn.

Í því máli sem hér liggur fyrir skortir verulega á þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að meta tillöguna. Ekki liggur fyrir mat á kostnaði við að stofna nýja umhverfis- og veitunefnd, né hvaða áhrif breytingin hefur á rekstur, stjórnsýslu eða verkaskiptingu innan sveitarfélagsins. Þá er í greinargerð vísað til þess að efla eigi umfjöllun um íþrótta- og æskulýðsmál, án þess að nokkur skýring fylgi um hvernig það markmið verði útfært eða hvaða breytingar eru fyrirhugaðar á þeim málaflokkum.
Jafnframt er vísað til þess að verkefnaálag sveitarfélagsins hafi aukist vegna „breytinga á skipan eftirlitsmála“. Fulltrúar Framsóknar og Okkar Hveragerðis hafa hvorki fengið kynningu á þeim breytingum né gögn sem varpa ljósi á hvaða nýju verkefni um ræðir, umfang þeirra eða hvernig þau kalla á breytta nefndaskipan. Ekki er ásættanlegt að byggja veigamiklar skipulagsbreytingar á forsendum sem bæjarfulltrúum hafa ekki verið kynntar.

Fulltrúar Framsóknar og Okkar Hveragerðis telja því gagnrýnivert hvernig staðið er að undirbúningi tillögunnar. Bæjarfulltrúar eiga að geta byggt afstöðu sína á skýrum gögnum, faglegri greiningu og mati á áhrifum breytinga. Án slíks undirbúnings er ekki unnt að taka upplýsta afstöðu til málsins.
Að lokum leggja fulltrúar Framsóknar og Okkar Hveragerðis áherslu á að endurskoðun nefndakerfisins sé verkefni sem varðar allt sveitarfélagið en ekki aðeins starfandi meirihluta. Mikilvægt er að fulltrúar allra framboða fái virka aðkomu að þeirri vinnu frá upphafi, þannig að breytingarnar byggist á breiðri samstöðu og hagsmunum Hveragerðisbæjar til lengri tíma.

Marta Rut Ólafsdóttir
Jónas Guðnason
Sandra Lind Brynjarsdóttir

Fundarhlé kl. 17:50
Fundurinn hélt áfram kl. 18:14

Bæjarfulltrúar meirihluta S-lista og D-lista leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:

Meirihluti er með viðkomandi tillögu að leggja til að bæjarstjóra verði falið í samstarfi við sviðsstjóra að vinna málið áfram og leggja fram tillögur til bæjarstjórnar um nauðsynlegar breytingar á skipulagi nefnda og erindisbréfum þeirra. Í þeirri vinnu munu allir bæjarfulltrúar hafa tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Það liggur fyrir að með breytingum sem gerðar voru á stjórnsýslu sveitarfélagsins með stofnun fagsviða þarf að endurskoða verkefni og erindisbréf nefnda sveitarfélagsins. Hér er ekki um að ræða kollvörpun heldur aðeins það að skoða þetta í ljósi breytinganna.

Þá liggur fyrir að fyrirhugað afnám Heilbrigðiseftirlita Sveitarfélaga sem fjallað hefur verið um á Alþingi og gaumgæfilega í fjölmiðlum mun hafa áhrif á verkefni sveitarfélaga en eitt mikilvægasta úrlausnarefnið fyrir sveitarstjórnir þeirra fjórtán sveitarfélaga sem standa að HSL er að skýra hvaða verkefni verða áfram á sveitarstjórnarstigi eftir 1.janúar 2027.
Þá er ljóst að skipulags og umhverfisnefnd hefur verið verkum hlaðin. Umhverfis-og veitumál hafa fengið lítið vægi þar þó verkefnin hafi verið stór, sbr. gufuveitan, fyrirhugaðar virkjanir í Ölfusdal, vatnsgæði Varmár, neysluvatnsmegnum sem upp kom og almenn loftslagsmál. Sökum þessa teljum við mikilvægt að skoða hvort forsendur séu til að stofna aðra nefnd um þessi mikilvægu mál.
Hvað eflingu íþróttamála-og æskulýðsmála varðar þá þykir meirihluta brýnt að bregðast við þeirri gagnrýni sem hefur heyrst frá íþrótta-og æskulýðshreyfingunni varðandi samráðsleysi og óljósa ábyrgð á málflokknum sem tók breytingum nokkrum sinnum á síðasta kjörtímabili.
Varðandi kostnað vegna stofnunar nýrrar nefndar, þá liggja fyrir upplýsingar um kostnað vegna nefndastarfa í fjárhagsáætlun bæjarins.

Að lokum skal áréttað að hér er verið að leggja til að málið verði skoðað og um það snýst tillagan.

Ingimar Guðmundsson
María Rún Þorsteinsdóttir
Sigmar Karlsson
Þorsteinn Hjartarson

Samþykkt er með 4 atkvæðum bæjarfulltrúa D-lista og S-lista að hefja endurskoðun nefndakerfis Hveragerðisbæjar og að fela bæjarstjóra, í samstarfi við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs, að vinna málið áfram og leggja fram tillögur til bæjarstjórnar um nauðsynlegar breytingar á skipulagi nefnda og erindisbréfum þeirra.
Bæjarfulltrúar Okkar Hveragerði og Framsóknar sitja hjá við atkvæðagreiðslu.

18.Tillaga frá D-lista og S-lista um milliuppgjör

2606170

Lögð er fram eftirfarandi tillaga frá D-lista og S-lista:



Tillaga frá meirihluta bæjarstjórnar um milliuppgjör



Fulltrúar meirihluta bæjarstjórnar leggja til að unnið verði milliuppgjör á rekstri sveitarfélagsins með það að markmiði að fá sem skýrasta mynd af fjárhagsstöðu þess og rekstrarhorfum.



Lagt er til að bæjarstjóra verði falið, í samstarfi við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, að vinna málið áfram, hafa umsjón með framkvæmd og úrvinnslu milliuppgjörs og eftir atvikum leita utanaðkomandi ráðgjafar varðandi málið. Niðurstöður úr vinnunni verði kynnt fyrir bæjarstjórn og höfð til hliðsjónar við næstu fjárhagsáætlanagerð sveitarfélagsins.



Greinargerð

Í málefnasamningi D- og S-lista er lögð sérstök áhersla á að kortleggja fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og skapa traustan grundvöll fyrir ákvarðanatöku um rekstur og fjárfestingar til framtíðar.



Með gerð milliuppgjörs fá bæjarfulltrúar og stjórnendur sveitarfélagsins skýrari og raunhæfari yfirsýn yfir fjárhagsstöðu þess með hliðsjón af rekstrarþróun og gildandi fjárhagsáætlunum.



Slík greining er mikilvægt stjórntæki sem stuðlar að upplýstri ákvarðanatöku og styrkir forsendur fyrir ábyrgri fjármálastjórn sveitarfélagsins.

Fyrir liggur að sveitarfélagið stendur frammi fyrir umfangsmiklum fjárfestingum, bæði þeim sem þegar eru hafnar og öðrum sem fyrirhugaðar eru á næstu árum. Á sama tíma hafa ýmsar forsendur sem áhrif hafa á rekstur sveitarfélaga tekið breytingum, meðal annars vegna þróunar verðbólgu, vaxtaumhverfis, launakostnaðar og íbúafjölgunar. Slíkar breytingar geta haft veruleg áhrif á bæði rekstrar- og fjárfestingaráætlanir sveitarfélagsins og því mikilvægt að fyrir liggi uppfærð greining á fjárhagslegri stöðu þess.



Með milliuppgjöri gefst tækifæri til að meta hvort gildandi áætlanir og fjárhagslegar forsendur standist þær aðstæður sem nú eru uppi og hvort þörf sé á að endurskoða áherslur,

framkvæmdaáætlanir eða fjármögnun verkefna. Jafnframt verður unnt að leggja mat á skuldastöðu sveitarfélagsins, greiðslugetu þess og svigrúm til frekari fjárfestinga á komandi árum.

Því er lagt til að bæjarstjóra verði falið, í samstarfi við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, að vinna málið áfram, hafa umsjón með framkvæmd og úrvinnslu milliuppgjörs og eftir atvikum leita utanaðkomandi sérfræðiráðgjafar vegna verkefnisins. Niðurstöður vinnunnar verði lagðar fyrir bæjarstjórn og hafðar til hliðsjónar við næstu fjárhagsáætlanagerð og stefnumótun sveitarfélagsins.



Fyrir hönd meirihlutans

Ingimar Guðmundsson

María Rún Þorsteinsdóttir

Sigmar Karlsson

Þorsteinn Hjartarson



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Ingimar Guðmundsson, Jónas Guðnason og Marta Rut Ólafsdóttir.
Bæjarfulltrúar minnihluta Okkar Hveragerði og Framsóknar leggja fram sameiginlega bókun:
Fulltrúar Framsóknar og Okkar Hveragerðis telja mikilvægt að bæjarstjórn hafi á hverjum tíma skýra yfirsýn yfir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og styðja markmið um ábyrga fjármálastjórn. Hins vegar fá fulltrúar Framsóknar og Okkar Hveragerðis ekki séð að þörf sé á sérstöku milliuppgjöri af þeim toga sem hér er lagt til.

Fjármálastjóri Hveragerðisbæjar leggur nú þegar fram ársfjórðungsleg uppgjör þar sem rekstur sveitarfélagsins er borinn saman við samþykkta fjárhagsáætlun og raunstaða metin. Þau uppgjör eru mikilvæg stjórntæki sem veita bæjarstjórn reglulega yfirsýn yfir rekstur, fjárhag og frávik frá áætlunum og skapa þannig forsendur fyrir upplýstri ákvarðanatöku.

Það vekur jafnframt athygli að ekki liggur fyrir kostnaðarmat vegna þeirrar vinnu sem hér er lögð til. Milliuppgjör af þessum toga kallar að jafnaði á aðkomu endurskoðenda og þar með aukinn kostnað vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu. Það samræmist illa þeim yfirlýstu markmiðum meirihlutans, og sérstaklega D-lista, um að draga úr útgjöldum vegna aðkeyptrar þjónustu.

Jafnframt vekur athygli að undir fundarlið 10 samþykkti bæjarstjórn viðauka við fjárhagsáætlun þar sem auknar útsvarstekjur umfram áætlanir voru lagðar til grundvallar. Þar liggja fyrir upplýsingar um jákvæða þróun rekstrartekna sveitarfélagsins sem nýtast við mat á fjárhagsstöðu þess. Því verður ekki séð að sýnt hafi verið fram á brýna nauðsyn þess að ráðast í kostnaðarsamt milliuppgjör umfram þá reglubundnu fjárhagsupplýsingagjöf sem þegar fer fram.

Fulltrúar Framsóknar og Okkar Hveragerðis telja að áður en ráðist er í kostnaðarsama viðbótargreiningu þyrfti að leggja fram skýran rökstuðning fyrir því hvers vegna fyrirliggjandi ársfjórðungsuppgjör og önnur reglubundin fjárhagsgögn teljast ekki fullnægjandi, ásamt mati á kostnaði og ávinningi verkefnisins.

Marta Rut Ólafsdóttir
Jónas Guðnason
Sandra Lind Brynjarsdóttir

Fundarhlé kl. 18:24.
Fundur hélt áfram kl. 18:44.

Bæjarfulltrúar meirihluta S-lista og D-listans leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:

Sú staða sem blasir við núverandi meirihluta varðandi fjárhagsstöðu sveitarfélagsins er í engu samræmi við málflutning fyrrum meirihluta í aðdraganda kosninganna í vor. Í því samhengi má nefna að fyrsta verkefni núverandi meirihluta var að samþykkja fyrirliggjandi lánsbeiðni að upphæð 265.000.000 m.a. til þess að standa straum af hefðbundnum rekstrarkostnaði og ekki eru fyrirhugaðar frekar lántökur á árinu miðað við núgildandi fjárhagsáætlun.

Því þykir meirihlutanum mikilvægt að fá faglegt mat á stöðunni og fjárhagslegu svigrúmi sveitarfélagsins varðandi fyrirliggjandi verkefni. Markmiðið með milliuppgjörinu er ekki einungis að líta til baka eða skoða núverand stöðu, heldur einnig að horfa fram á við í tengslum við rekstur, fjárfrek fyrirliggjandi verkefni og nauðsynlegar fjárfestingar. Horft verður til þess að halda kostnaði í lágmarki við uppgjörið og nýta m.a. mannauð sveitarfélagsins við vinnslu þess eins og kostur er.

Ljóst er að tekjur sveitarfélagsins eru ekki í takt við fjárhagsáætun, forsendur varðandi íbúafjölgun, vexti og verðbólgumarkmið eru brostnar, líkt og D og S listi bentu á ítrekað í nýlokinni kosningabaráttu. Sú staða kallar á viðbragð. Í kosningabaráttunni voru settar fram misvísandi fullyrðingar um fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og því þykir okkur mikilvægt að fá skýrt hlutlaust mat á stöðunni.

Ingimar Guðmundsson
María Rún Þorsteinsdóttir
Sigmar Karlsson
Þorsteinn Hjartarson

Samþykkt er með 4 atkvæðum bæjarfulltrúa D-lista og S-lista að gera milliuppgjör á rekstri sveitarfélagsins miðað við 31. maí 2026 og að fela bæjarstjóra í samstarfi við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, að vinna málið áfram, hafa umsjón með framkvæmd og úrvinnslu milliuppgjörs og eftir atvikum leita utanaðkomandi ráðgjafar varðandi málið. Niðurstöður úr vinnunni verði kynnt fyrir bæjarstjórn.
Bæjarfulltrúar Okkar Hveragerði og Framsóknar sitja hjá við atkvæðagreiðslu.

19.Tillaga frá D-lista og S-lista varðandi endurskoðun sveitarfélagsins

2606169

Lögð er fram eftirfarandi tillaga frá D-lista og S-lista:



Tillaga frá meirihluta bæjarstjórnar um endurskoðun sveitarfélagsins.



Fulltrúar meirihluta bæjarstjórnar leggja til að hafið verði ferli vegna ráðningar löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis sem annast muni endurskoðun fyrir sveitarfélagið.



Lagt er til að bæjarstjóra verði falið, í samstarfi við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, að vinna málið áfram og undirbúa tillögu að samstarfssamningi við löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki. Niðurstöður þeirrar vinnu verði í framhaldinu lagðar fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu.



Greinargerð

Samkvæmt ákvæðum 7. kafla sveitarstjórnarlaga ber bæjarstjórn ábyrgð á því að ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast endurskoðun sveitarfélagsins. Um er að ræða lögbundið verkefni bæjarstjórnar og því mikilvægt að hún taki formlega afstöðu til þess fyrirkomulags sem sveitarfélagið hyggst hafa um endurskoðun og fjárhagslegt eftirlit.



Endurskoðun sveitarfélaga gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja áreiðanleika reikningsskila, stuðla að vandaðri fjármálastjórn og efla traust á meðferð opinberra fjármuna.

Sjálfstæð og fagleg endurskoðun er jafnframt mikilvægur þáttur í innra eftirliti sveitarfélagsins og veitir bæjarstjórn og stjórnendum mikilvægar upplýsingar til að styðja við upplýsta ákvarðanatöku.



Með tillögunni er lagt til að hafinn verði undirbúningur að gerð samstarfssamnings við endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki og að kannaðir verði þeir kostir sem sveitarfélaginu standa til boða.



Lagt er til að bæjarstjóra verði falið að vinna málið áfram í samstarfi við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og leggja niðurstöður þeirrar vinnu fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.



Fyrir hönd meirihlutans

Ingimar Guðmundsson

María Rún Þorsteinsdóttir

Sigmar Karlsson

Þorsteinn Hjartarson



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Jónas Guðnason og Sigmar Karlsson.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 7 atkvæðum, að hefja ferli við innkaup á sérfræðiþjónustu við endurskoðun og tengda þjónustu fyrir Hveragerðisbæ og felur bæjarstjóra í samstarfi við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, að vinna málið áfram og undirbúa tillögu að samstarfssamningi við löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki.

20.Tillaga frá D-lista og S-lista um gjaldfrjálsa bókasafnsþjónustu fyrir 67 ára og eldri

2606172

Tillaga frá meirihluta bæjarstjórnar um bókasafn Hveragerðisbæjar



Fulltrúar meirihluta bæjarstjórnar leggja til að að bókasafnsþjónusta verði aftur gjaldfrjáls fyrir íbúa 67 ára og eldri frá og með 3. júlí 2026.



Með samþykkt tillögunnar er verið að styrkja stöðu bókasafnsins sem einn af hornsteinum menningarlífs í Hveragerði og tryggja að eldri íbúar geti notið þjónustu þess án fjárhagslegra hindrana. Þetta er jákvætt skref í átt að samfélagi sem leggur áherslu á félagslega virkni og jöfn tækifæri fyrir alla íbúa.



Með því að gera bókasafnsþjónustu gjaldfrjálsa fyrir íbúa 67 ára og eldri er verið að senda skýr skilaboð um mikilvægi þess að tryggja öllum jafnt aðgengi að menningu og upplýsingum óháð aldri eða efnahag. Fyrir marga eldri íbúa er bókasafnið mikilvægur þáttur í daglegu lífi, hvort sem um er að ræða félagsleg samskipti, lestur bóka og tímarita eða þátttöku í viðburðum.



Lagt er til að sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs verði falið að vinna málið áfram í samstarfi við forstöðumann bókasafnsins og leggja fram kostnaðarmat fyrir bæjarráð.



Greinargerð

Tillagan er í samræmi við áherslur í málefnasamningi D- og S-lista þar sem lögð er áhersla á að efla bókasafnið sem lifandi menningar-, fræðslu- og samfélagsrými fyrir alla íbúa. Bókasafnið gegnir mikilvægu hlutverki sem vettvangur þekkingar, menningar og samskipta.Það er ekki aðeins safn þar sem hægt er að nálgast bækur og upplýsingar heldur einnig staður þar sem íbúar geta tekið þátt í fjölbreyttu menningarstarfi og notið samveru.



Á undanförnum árum hafa verið stigin jákvæð skref til að efla starfsemi safnsins og auka fjölbreytni í viðburðum og þjónustu. Markmið meirihlutans er að byggja áfram á þeim góða grunni sem fyrir er og styrkja enn frekar hlutverk bókasafnsins sem opins rýmis fyrir alla aldurshópa. Lestur og símenntun stuðla að vellíðan á efri árum enda hafa rannsóknir sýnt fram á mikilvægi þess að viðhalda sem lengst andlegri virkni og félagslegri þátttöku. Bókasöfn gegna þar stóru hlutverki með því að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu sem eykur lífsgæði og stuðlar að virkri þátttöku í samfélaginu. Með auknu aðgengi að bókasafninu er jafnframt stuðlað að því að ná fram markmiðum um virka öldrun og bætta lýðheilsu.



Þá ber að líta til þess að mörg sveitarfélög hér á landi veita eldri borgurum gjaldfrjáls bókasafnskort sem lið í menningar- og velferðarstefnu sinni. Með þessari ákvörðun tekur Hveragerðisbær aftur upp fyrirkomulag sem áður var við lýði og samræmist vel þeirri sýn að bókasafnið sé þjónusta sem nýtist öllum íbúum. Tekjur Hveragerðisbæjar af bókasafns gjöldum aldraðra eru takmarkaðar þegar litið er á heildarrekstur safnsins. Hins vegar er ávinningurinn af aukinni þátttöku eldra fólks í menningarlífi bæjarins mun meiri, bæði fyrir einstaklinga og allt bæjarfélagið.



Fyrir hönd meirihlutans

Ingimar Guðmundsson

María Rún Þorsteinsdóttir

Sigmar Karlsson

Þorsteinn Hjartarson



Eftirtaldir tóku til máls: María Rún Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Hjartarson og Marta Rut Ólafsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 7 atkvæðum, að gera bókasafnsþjónustu gjaldfrjálsa fyrir íbúa 67 ára og eldri frá og með 3. júlí 2026 og felur sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs í samstarfi við forstöðumann bókasafnsins að gera tillögu um breytingu á gjaldskrá.
Fundargerðin var upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:20.

Getum við bætt efni síðunnar?