Fara í efni

Bæjarstjórn

603. fundur 29. apríl 2026 kl. 11:20 - 11:24 á Hótel Örk, Breiðumörk 1c, Hveragerði
Nefndarmenn
  • Sandra Sigurðardóttir forseti bæjarstjórnar
  • Njörður Sigurðsson aðalmaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir aðalmaður
  • Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Thelma Rún Runólfsdóttir varamaður
  • Friðrik Sigurbjörnsson aðalmaður
  • Sigmar Karlsson varamaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Thelma Rún Runólfsdóttir tók sæti í bæjarstjórn á fundinum sem varamaður Halldórs Benjamín Hreinssonar fyrir B-lista og Sigmar Karlsson tók sæti sem varamaður Öldu Pálsdóttur fyrir D-lista.

Boðað var til hátíðarfundar í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar í tilefni af 80 ára afmæli sveitarfélagsins.

Forseti bæjarstjórnar, Sandra Sigurðardóttir, setti fund og stjórnaði.

1.Útnefning heiðursborgara Hveragerðisbæjar

2604103

Lögð var fram eftirfarandi sameiginleg bókun bæjarstjórnar um útnefningu fyrsta heiðursborgara Hveragerðisbæjar.



Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkir einróma að útnefna Vilhjálm Björn Hannes Roe heiðursborgara Hveragerðisbæjar árið 2026. Vilhjálmur, eða Villi Roe eins og hann er jafnan kallaður, hefur með einstakri þjónustulund, vinnusemi og góðmennsku sett mark sitt á bæjarfélagið í hart nær 40 ár.Villi tók formlega við rekstri Shellskálans árið 1988 og hófst þá nýr kafli í sögu bæjarbúa.



Með útnefningu þessari vill Hveragerðisbær sýna Vilhjálmi Roe þakklæti fyrir óeigingjarnt starf, einstaka þjónustulund og þann hlýhug sem hann hefur sýnt samfélaginu í tæpa fjóra áratugi. Hann er sannur og verðugur heiðursborgari.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að Vilhjálmur Roe yrði útnefndur heiðursborgari Hveragerðisbæjar.
Fundargerðin var samþykkt með undirritun.

Fundi slitið - kl. 11:24.

Getum við bætt efni síðunnar?