Fara í efni

Bæjarstjórn

602. fundur 09. apríl 2026 kl. 17:00 - 19:06 í hátíðarsal Grunnskólans í Hveragerði, Skólamörk 6
Nefndarmenn
  • Sandra Sigurðardóttir forseti bæjarstjórnar
  • Halldór Benjamín Hreinsson varaforseti bæjarstjórnar
  • Njörður Sigurðsson aðalmaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir aðalmaður
  • Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Friðrik Sigurbjörnsson aðalmaður
  • Alda Pálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Forseti bæjarstjórnar, Sandra Sigurðardóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Ársreikningur Hveragerðisbæjar vegna ársins 2025 - fyrri umræða

2512046

Eftirfarandi skjöl voru lögð fram:

Drög að ársreikningi Hveragerðisbæjar 2025.

Drög að samstæðu-, málaflokka- og deildayfirliti ársreiknings 2025.



Á fundinn mætti Magnús Jónsson frá KPMG endurskoðun og lagði fram endurskoðunarskýrslu sína. Kynnti hann ársreikninginn og endurskoðunarskýrsluna.



Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 95.188.000.- kr. og rekstrarniðurstaða B-hluta er jákvæð um 92.831.000.- kr.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Njörður Sigurðsson og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir.
Meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar lagði sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Ársreikningur Hveragerðisbæjar fyrir árið 2025 sýnir jákvæða og trausta niðurstöðu. Á kjörtímabilinu hefur rekstur bæjarins tekið verulegum viðsnúningi, úr 366 m.kr. tapi árið 2021, síðasta heila rekstrarári fyrra kjörtímabils, í 169 m.kr. hagnað árið 2024 og 93 m.kr. hagnað árið 2025. Þessi þróun endurspeglar ábyrga fjármálastjórn á kjörtímabilinu og sýnir að reksturinn stendur nú á traustum grunni til áframhaldandi uppbyggingar.

Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Halldór Benjamín Hreinsson
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Njörður Sigurðsson
Sandra Sigurðardóttir

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að vísa ársreikningi Hveragerðisbæjar til síðari umræðu.

2.Fundargerð Fasteignafélags Hveragerðis ehf. frá 11. mars 2026

2603002F

Fundargerðin var lögð fram.



Enginn tók til máls.
Fundargerðin var staðfest samhljóða.

3.Fundargerð skólanefndar frá 11. mars 2026

2603001F

Fundargerðin var lögð fram.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir.
Fundargerðin var staðfest samhljóða.

4.Fundargerð öldungaráðs frá 18. mars 2026

2602005F

Fundargerðin var lögð fram.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Alda Pálsdóttir og Njörður Sigurðsson.
Fundargerðin var staðfest samhljóða.

5.Fundargerð bæjarráðs frá 19. mars 2026

2603004F

Fundargerðin var lögð fram.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Alda Pálsdóttir og Pétur G. Markan.
Fundargerðin var staðfest samhljóða.

6.Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 24. mars 2026

2603007F

Fundargerðin var lögð fram.



Enginn tók til máls.
Fundargerðin var staðfest samhljóða.

7.Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 25. mars 2026

2603006F

Fundargerðin var lögð fram.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, Alda Pálsdóttir og Njörður Sigurðsson.
Fundargerðin var staðfest samhljóða.
Alda Pálsdóttir vék af fundi kl. 17:53.

8.Fundargerð aðalskipulagsnefndar vegna funda 10. og 25. mars 2026

2603226

Fundargerðin var lögð fram.



Enginn tók til máls.
Fundargerðin var staðfest samhljóða með 6 atkvæðum.

9.Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 31. mars 2026

2603016F

Fundargerðin var lögð fram.



Enginn tók til máls.
Fundargerðin var staðfest samhljóða með 6 atkvæðum.

10.Aðalskipulag Hveragerðisbæjar 2025-2037

2310124

Eftirfarandi skjöl voru lögð fram:

Skipulagsuppdráttur aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2025-2037, dags. 31. mars 2026.

Greinargerð aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2025-2037, dags. mars 2026.

Umhverfisskýrsla aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2025-2037, dags. mars 2026.

Bíla- og hjólastæðastefna aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2025-2037, dags. 14. ágúst 2025.

Samgöngustefna aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2025-2037, dags. 23. maí 2025.

Minnisblað Hildar Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, dags. 1. apríl 2026.

Tillaga að svörum við umsögnum og athugasemdum vegna aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2025-2037, ódags.



Bæjarstjórn samþykkti þann 8. janúar 2026 að auglýsa tillögu að nýju aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037 í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lauk athugasemdafresti þann 1. mars s.l. Tillagan var því borin undir bæjarstjórn að nýju sbr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Halldór Benjamín Hreinsson, Friðrik Sigurbjörnsson, Njörður Sigurðsson og Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir.
Bæjarfulltrúar Okkar Hveragerðis og Framsóknar lögðu sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti bæjarstjórnar lýsir ánægju með að á fundi þessum liggi fyrir tillaga að nýju aðalskipulagi Hveragerðisbæjar til samþykktar. Tillagan er í samræmi við metnaðarfulla stefnu bæjarins með áherslu á blómstrandi atvinnulíf og að heilsa og vellíðan íbúa séu í forgrunni.

Á kjörtímabilinu hefur verið unnin mikil og fagleg vinna við endurskoðun aðalskipulagsins þar sem samráð og samtal við íbúa og atvinnurekendur hefur verið haft að leiðarljósi. Aðalskipulagsnefnd skipuð bæði fagfólki og kjörnum fulltrúum hefur haldið utan um vinnuna ásamt skipulagsfulltrúa bæjarins. Það samstarf hefur skilað góðri og vandaðri stefnu um hvernig Hveragerði mun byggjast upp í náinni framtíð.

Nýtt aðalskipulag Hveragerðisbæjar grundvallar að haldið sé vel og faglega utan um bæ á mikilli siglingu og tryggt sé að byggðaforysta, lífsgæði og blómlegur vöxtur séu einkenni Hveragerðisbæjar um ókomna tíð. Jafnframt að varðveitt sé sjónræn og menningarleg samfella í bæjarmyndinni og undirstrikuð sérstaða Hveragerðis sem bæjar sem hefur byggst upp í nánum tengslum við jarðhita og ylrækt.

Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Halldór Benjamín Hreinsson
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Njörður Sigurðsson
Sandra Sigurðardóttir

Bæjarfulltrúar D-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar D-listans greiða atkvæði gegn framlagðri tillögu að aðalskipulagi.

Fulltrúar D-listans hafa ítrekað komið á framfæri athugasemdum við bæði ferlið og innihald aðalskipulagsins án þess að tekið hafi verið mark á þeim. Það sama á við um fjölmargar athugasemdir íbúa, en líklega hafa aldrei fleiri umsagnir borist við aðalskipulag bæjarins. Þrátt fyrir það hefur ekki verið tekið mark á þeim í vinnunni.

Þetta sýnir skýrt að hvorki ríkir samstaða innan bæjarstjórnar né meðal íbúa Hveragerðisbæjar um aðalskipulagið. Ferlið hefur ekki skilað þeirri sátt sem æskileg er við mótun svo mikilvægrar framtíðarsýnar.

Með hliðsjón af framangreindu telja fulltrúar D-listans ekki forsendur til að samþykkja aðalskipulagið í núverandi mynd.

Friðrik Sigurbjörnsson
Alda Pálsdóttir

Hlé var gert á fundi kl. 17:58.
Fundurinn hélt áfram kl. 18:21.

Bæjarfulltrúar Okkar Hveragerðis og Framsóknar lögðu sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti bæjarstjórnar fagnar því að rík þátttaka almennings hafi átt sér stað með því samtali og samráði sem boðið er upp á í aðalskipulagsferlinu með skilum á athugasemdum. Allar athugasemdir hafa verið yfirfarnar, þeim efnislega svarað og eftir atvikum brugðist við þeim með breytingum á aðalskipulaginu. Meirihluti bæjarstjórnar hvetur fulltrúa minnihlutans til að kynna sér nánar fyrirliggjandi gögn um hið nýja aðalskipulag og þær breytingar sem orðið hafa á því að teknu tilliti til athugasemdanna. Í minnisblaði skipulagsfulltrúa sem liggur fyrir fundinum kemur samantekt breytinganna skýrlega fram. Meirihlutinn vill aftur undirstrika þá miklu og faglegu vinnu starfsmanna bæjarsins, kjörinna fulltrúa og fagaðila við undirbúning breytts aðalskipulags í ríku samráði og samtali við íbúa og atvinnurekendur.

Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Halldór Benjamín Hreinsson
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Njörður Sigurðsson
Sandra Sigurðardóttir

Forseti bar upp tillögu um að bæjarstjórn samþykkti fyrirliggjandi drög að svörum við umsögnum og athugasemdum og að svörin feli í sér afstöðu bæjarstjórnar til athugasemda og umsagna. Jafnframt að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi tillögu að aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037 með þeim óverulegu breytingum sem gerðar hafa verið frá því að tillagan var auglýst.

Tillagan var samþykkt með 5 atkvæðum bæjarfulltrúa O-lista og B-lista.
Bæjarfulltrúi D-lista greiddi atkvæði gegn tillögunni.
Alda Pálsdóttir kom aftur inn á fundinn kl. 18:37.

11.Mýrarsel 9 - umsagnarbeiðni við nýtt deiliskipulag

2603118

Eftirtalin skjöl voru lögð fram:

Beiðni Sveitarfélagsins Ölfus um umsögn, dags. 10. mars 2026.

Tillaga að deiliskipulagsbreytingu vegna Mýrarsels 9, dags. 1. desember 2025.

Tillaga Hildar Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, að umsögn, dags. 20. mars 2026.



Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir breytingu á nýtingu 2,67 ha lóðar þannig að í stað þess að reisa allt að 6 gróðurhús og 2 íbúðarhús yrði lóðinni skipt upp í 5 lóðir þar sem heimilt er að reisa einbýlishús með bílskúr og gróðurhúsi / vinnustofu á hverri lóð. Stærð lóða er um 0,53 ha og nýtingarhlutfall 0,15. Heimild er fyrir fleiri húsum á lóðunum.



Málið var tekið fyrir hjá skipulags- og umhverfisnefnd þann 24. mars 2026 þar sem nefndin lagði til við bæjarstjórn að samþykkja umsögn skipulagsfulltrúa um deiliskipulagsbreytingu lóðarinnar við Mýrarsel 9 dags. 20. mars 2026, sem umsögn Hveragerðisbæjar og senda inn á málið í Skipulagsgátt.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.

12.Göngustígur við Heiðarbrún 1 - aðgengismál

2603117

Eftirtalin skjöl voru lögð fram:

Bréf frá Ásthildi Maríu Árnadóttur, dags. 10. mars 2026.

Götukort.

Skýrsla VSB verkfræðistofu, dags. 14. nóvember 2025.



Málið var tekið fyrir hjá skipulags- og umhverfisnefnd þann 24. mars 2026 þar sem nefndin lagði til við bæjarstjórn samþykkja úrbætur á gangstétt við Heiðarbrún 1 í samræmi við tillögur ráðgjafa VSB. Sú tillaga felur í sér þrengingu á götu, óbrotinn göngustíg, hraðahindrun og gangbraut.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.
Alda Pálsdóttir vék af fundi kl. 18:39.

13.Heiðmörk 30-36, Grundarreitur - nýtt deiliskipulag

2510173

Eftirtalin skjöl voru lögð fram:

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Heiðmörk 30-36, dags. 27. janúar 2026.

Greinargerð með deiliskipulagstillögu fyrir Heiðmörk 30-36, dags. mars 2026.

Skýringaruppdráttur með deiliskipulagstillögu fyrir Heiðmörk 30-36, dags. 27. janúar 2026.

Skuggavarpsuppdráttur með deiliskipulagstillögu fyrir Heiðmörk 30-36, dags. 27. janúar 2026.



Deiliskipulagssvæðið er íbúðasvæði í gildandi aðalskipulagi um 1,15 ha að flatarmáli og er í vestur afmarkað af Bláskógum, í austur af Litlumörk, í norður af Heiðmörk og í suður af Þelamörk. Nýtingarhlutfall er 0,5 og gert er ráð fyrir 80 íbúðum af mismunandi stærð. Þá er heimild er til niðurrifs núverandi bygginga.

Helstu markmið með nýju deiliskipulagi eru að tryggja að uppbygging íbúðabyggðar falli vel að núverandi byggð, byggðarmynstri og skipulagi líkt og lagt upp er með í arkitektúrstefnu í aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037 að skapa heilsteypt, hlýlegt svæði/hverfi með notalegu yfirbragði, að fjölbreytni sé í íbúðastærðum, að nýta svæðið vel en verðmæti svæðisins liggur m.a. í nálægð við miðbæ, skóla og náttúru. Að sýna sérkennum og sögu svæðisins virðingu, að móta byggð sem er til þess fallin að stuðla að góðu mannlífi og sambúð ólíkra hópa, að tryggja góð tengsl við umhverfið með fyrirkomulagi stíga, gatna, inngarða og með ofanvatnslausnum.



Málið var tekið fyrir hjá skipulags- og umhverfisnefnd þann 31. mars 2026 þar sem nefndin lagði til við bæjarstjórn að samþykkja í auglýsingu deiliskipulag Grundarreitar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að teknu tilliti til athugasemda sem fram koma í minnisblaði nefndarinnar frá 31. mars 2026. Lagði nefndin einnig til að haldinn yrði opinn íbúafundur samhliða auglýstum athugasemdafresti og að gatnahönnun nágrennis taki mið af breyttum aðstæðum m.t.t. yfirsýnar og flæðis.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Pétur G. Markan.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða með 6 atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Heiðmörk 30-36 skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fól bæjarstjóra að boða íbúafund sem verður 22. apríl 2026 í Grunnskólanum í Hveragerði.
Alda Pálsdóttir kom aftur inn á fundinn kl. 18:43.

14.Tillaga frá Okkar Hveragerði og Framsókn um varðveislu gróðurhúsaarfleiðar

2604008

Meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar lagði sameiginlega fram eftirfarandi tillögu:



Varðveisla gróðurhúsaarfleiðar Hveragerðisbæjar

Okkar Hveragerði og Framsókn í Hveragerði, sem saman mynda meirihluta bæjarstjórnar, leggja fram tillögu um stofnun hóps sem falið er að vinna stefnu um varðveislu sögu og ásýndar gróðurhúsarfleiðar í Hveragerðisbæ. Meirihlutinn felur bæjarstjóra að gera tillögu að skipan hópsins og koma með inn í bæjarráð þann 16. apríl.



Greinargerð

Saga gróðurhúsa í Hveragerðisbæ er samofin atvinnu og byggðarsögu Hveragerðisbæjar. Í nýju aðalskipulagi Hveragerðisbæjar eru þónokkrar breytingar á landnýtingu lóða sem áður geymdu gróðurhús. Það er mikilvægt að gæta að sögu og ásýnd gróðurhúsaarfleiðar Hveragerðis sem skipar mikilvægan sess í sögu bæjarins í stefnu sem bæjaryfirvöld fylgja eftir og gæta að í þeirri miklu uppbyggingu sem horfir við bænum í framtíðinni.



Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir

Halldór Benjamín Hreinsson

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir

Njörður Sigurðsson

Sandra Sigurðardóttir



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Njörður Sigurðsson.
Bæjarstjórn samþykkti tillöguna samhljóða.

15.Ráðgjöf og umsjón með útboði á tryggingum

2603099

Lagt var fram tilboð frá Consello ehf., dags. 5. mars 2026, í ráðgjöf og umsjón með útboði á tryggingum fyrir Hveragerðisbæ.



Málið var tekið fyrir hjá bæjarráði þann 19. mars 2026 þar sem lagt var til við bæjarstjórn að að samþykkja tilboð Consello ehf. í ráðgjöf og umsjón með útboði á tryggingum samkvæmt fyrirliggjandi tilboði og að fela bæjarstjóra að ganga til samninga á grundvelli tilboðsins.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða tillögu bæjarráðs.

16.Þjónustusamningur við foreldrafélag Grunnskólans í Hveragerði

2603100

Lagður var fram þjónustusamningur við foreldrafélag Grunnskólans í Hveragerði.



Málið var tekið fyrir í bæjarráði þann 19. mars 2026 þar sem lagt var til við bæjarstjórn að samþykkja þjónustusamning við foreldrafélag Grunnskólans í Hveragerði og fela bæjarstjóra að undirrita samninginn.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða tillögu bæjarráðs.

17.Kosning í yfirkjörstjórn/undirkjörstjórn 1 og undirkjörstjórn 2

2603156

Lagt var fram minnisblað Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur, bæjarritara, dags. 30. mars 2026.



Enginn tók til máls.
Forseti bar upp tillögu um að eftirtöldum yrði veitt lausn frá störfum í kjörstjórnum út kjörtímabilið: Fríðu Margréti Þorsteinsdóttur, Önnu Elísabetu Ólafsdóttur og Margréti Ísaksdóttur. Þá bar forseti upp tillögu um að Margrét Haraldardóttir verði kjörin aðalmaður í yfirkjörstjórn/undirkjörstjórn vegna kjördeildar 1 og að Ágúst Örlaugur Magnússon og Jóhanna Ýr Ólafsdóttir verði kjörin varamenn í undirkjörstjórn vegna kjördeildar 2.

Bæjarstjórn samþykkti tillöguna samhljóða.

18.Viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun 2026 vegna kjörstjórnar

2603067

Lagt var fram minnisblað Helgu Kristjánsdóttur, skrifstofustjóra, dags. 30. mars 2026, ásamt fylgiskjali, þar sem gerð er tillaga að viðauka 2 við fjárhagsáætlun vegna annars rekstrarkostnaðar vegna kosninga að fjárhæð kr. 700.000.-



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða viðauka 2 við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna annars rekstrarkostnaðar vegna kosninga að fjárhæð kr. 700.000.- sem tekið verður af handbæru fé.

19.Brunavarnaráætlun Brunavarna Árnessýslu bs.

2603194

Eftirtalin skjöl voru lögð fram:

Bréf frá slökkviliðsstjóra Brunavarna Árnessýslu, dags. 26. mars 2026.

Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu með gildistíma frá febrúar 2026 til febrúar 2031 (auðkenni: 09-03-2026 09:00).



Í bréfi frá slökkviliðsstjóra kemur fram að brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu hafi verið samþykkt af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og hjá stjórn Brunavarna Árnessýslu.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu, auðkenni: 09-03-2026 09:00, með gildistíma frá febrúar 2026 til febrúar 2031.

20.Tillaga að breyttum fundartíma bæjarstjórnar í maí 2026

2603204

Gerð er tillaga um að bæjarstjórnarfundur sem fyrirhugaður var þann 13. maí n.k. verði færður til 12. maí 2026 kl. 17:00.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að næsti bæjarstjórnarfundur verði þann 12. maí 2026, kl. 17:00.
Fundargerðin var upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:06.

Getum við bætt efni síðunnar?