Bæjarstjórn
Dagskrá
Forseti bæjarstjórnar, Sandra Sigurðardóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
1.Fundargerð bæjarráðs frá 20. nóvember 2025
2511008F
Fundargerðin er lögð fram.
Eftirfarandi liðir eru afgreiddir sérstaklega: 4, 7 og 8.
Eftirtaldir tóku til máls: Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir.

Liður 4 "Bréf frá Soroptismistaklúbbi Suðurlands frá 12. nóvember 2025".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs um að veita styrk til Sigurhæða að fjárhæð kr. 1.602.810.-
Liður 7 "Bréf frá Grunnskólanum í Hveragerði, ódagsett".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs um að veita styrk vegna góðgerðardags Grunnskólans í Hveragerði að fjárhæð kr. 100.000.-
Liður 8 "Bréf frá sýslumanninum á Suðurlandi frá 10. nóvember 2025".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

2.Fundargerð bæjarráðs frá 4. desember 2025
2511012F
Fundargerðin er lögð fram.
Eftirfarandi liðir eru afgreiddir sérstaklega: 3, 8, 9, 10, 12 og 13.
Bæjarstjórn tekur undir eftirfarandi bókun bæjarráðs og ítrekar áskorun til þingmanna Suðurkjördæmis:
Bæjarráð Hveragerðisbæjar lýsir yfir gríðarlegum vonbrigðum yfir nýkynntri samgönguáætlun þar sem færslu þjóðvegarins, fyrir neðan Hveragerði frá Kömbum að Varmá, er frestað enn á ný. Í áætluninni er ekki gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist fyrr en í fyrsta lagi árið 2029.
Færslan á þjóðveginum er mikið hagsmunamál fyrir Hvergerðinga og framtíðarþróun bæjarins með tilliti til umferðaröryggis og framtíðaruppbyggingar. Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar var breytt að beiðni Vegagerðarinnar á sínum tíma og miðar skipulag bæjarins og uppbygging undanfarinna ára við að núverandi þjóðvegur verði stofnbraut innan bæjarmarka.
Bæjarráð Hveragerðisbæjar skorar á þingmenn Suðurkjördæmis að beita sér í málinu og fyrir því að staðið verði við gefin loforð.
Enginn tók til máls.

Liður 3 "Bréf frá kirkjugarðsnefnd Kotstrandarkirkju, ódagsett, móttekið 18. nóvember 2025".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs um að greiða 89% kostnaðar vegna viðhalds á stígum í Kotstrandarkirkjugarði að fjárhæð kr. 663.076.-
Liður 8 "Tillaga að tekjutengdum afslætti fasteignaskatts og fráveitugjalds til öryrkja og ellilífeyrisþega vegna ársins 2026".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs um að samþykkja tekjutengdan afslátt fasteignaskatts og fráveitugjalds til elli- og örorkulífeyrisþega. Uppfærðar reglur vegna afsláttarins verða afgreiddar undir fundarlið 14.
Liður 9 "Niðurstaða útboðs á ræstingum í stofnunum Hveragerðisbæjar".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs um að taka tilboði Daga hf.
Liður 10 "Kauptilboð í Hrauntungu 13-13B í Hveragerðisbæ".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs um að samþykkja fyrirliggjandi kauptilboð í Hrauntungu 13-13B.
Liður 12 "Tillaga um gerð þjónustusamnings við Auðnast".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs um að gera þjónustusamning við Auðnast ehf.
Liður 13 "Tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025".
Tillaga bæjarráðs um að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025 er samþykkt með 5 atvæðum bæjarfulltrúa O- og B- lista.
Bæjarfulltrúar D-lista greiða atkvæði gegn tillögunni.

3.Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 2. desember 2025
2511011F
Fundargerðin er lögð fram.
Eftirfarandi liðir eru afgreiddir sérstaklega: 2, 4, 7 og 8.
Eftirtaldir tóku til máls: Friðrik Sigurbjörnsson, Pétur G. Markan og Sandra Sigurðardóttir.

Liður 2 "Deiliskipulagsbreyting hesthúsahverfis á Vorsabæjarvöllum vegna stækkunar hesthúsahverfis og golfvallar".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar um að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Liður 4 "Öxnalækur - Umfangsflokkur 1".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar um að veita bygggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar og grenndarkynningar með vísan til heimildar í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Liður 7 "Gangbrautir við Þelamörk-Breiðumörk með tilliti til öryggis gangandi vegfarenda".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.
Liður 8 "Framleiðsluaukning seiðaeldisstöðvar á Öxnalæk - Umsögn vegna matsáætlunar".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða umsögn umhverfisfulltrúa og skipulagsfulltrúa vegna matsáætlunar fyrirhugaðrar framleiðsluaukningar seiðaeldisstöðvar First Water á Öxnalæk.

4.Fundargerð skólanefndar frá 26. nóvember 2025
2511007F
Fundargerðin er lögð fram.
Eftirtaldir tóku til máls: Friðrik Sigurbjörnsson, Sandra Sigurðardóttir, Njörður Sigurðsson og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir.

Fundargerðin er staðfest.
5.Fundargerð ungmennaráðs frá 25. nóvember 2025
2511004F
Fundargerðin er lögð fram.
Eftirfarandi liðir eru afgreiddir sérstaklega: 4 og 5.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Halldór Benjamín Hreinsson, Pétur G. Markan og Alda Pálsdóttir.

Liður 4 "Áskorun vegna sorptunna".
Bæjarstjórn þakkar ungmennaráði fyrir ábendinguna.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að láta kanna möguleika á fjölgun sorpíláta í samræmi við áskorun ungmennaráðs og vísar málinu til umræðu í skipulags- og umhverfisnefnd.
Liður 5 "Áskorun vegna sundlaugarinnar Laugarskarði".

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að láta kanna möguleika á því að lengja opnunartíma sundlaugarinnar í Laugarskarði og vísar málinu til umræðu í menningar-, atvinnu og markaðsnefnd.

6.Fundargerð aðalskipulagsnefndar frá 18. nóvember 2025
2512009
Fundargerðin er lögð fram.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er staðfest.
7.Fundargerð afmælisnefndar frá 2. desember 2025
2412055
Fundargerðin er lögð fram.
Eftirtaldir tóku til máls: Njörður Sigurðsson.
Eftirtaldir tóku til máls: Njörður Sigurðsson.
Fundargerðin er staðfest.
8.Fundargerð stjórnar SASS frá 5. desember 2025
2512031
Fundargerðin er lögð fram.
Afgreiddur er sérstaklega fyrir liður 4 í fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) frá 5. desember 2025 vegna breytinga á umgjörð og rekstri Sorpstöðvar Suðurlands bs. (SOS) sem þarfnast aðkomu SASS.
Lagt er til að bæjarstjórn samþykki fyrir sitt leyti aðkomu SASS að verkefninu í samræmi við fyrirliggjandi ályktanir aðalfundar SOS og fyrirliggjandi samningsdrög.
Eftirtaldir tóku til máls: Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.
9.Samþykkt fyrir Byggðasafn Árnesinga bs., fyrri umræða
2512036
Lögð er fram til fyrri umræðu samþykkt fyrir Byggðasafn Árnesinga bs., ásamt fundargerð Héraðsnefndar Árnesinga frá 14. október 2025.
Eftirtaldir tóku til máls: Njörður Sigurðsson.
Eftirtaldir tóku til máls: Njörður Sigurðsson.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa samþykkt fyrir Byggðasafn Árnesinga bs. til síðari umræðu.
10.Samþykkt fyrir Héraðsskjalasafn Árnesinga bs., fyrri umræða
2512037
Njörður Sigurðsson víkur af fundi undir þessum lið.
Lögð er fram til fyrri umræðu samþykkt fyrir Héraðsskjalasafn Árnesinga bs., ásamt fundargerð Héraðsnefndar Árnesinga frá 14. október 2025.
Enginn tók til máls.
Lögð er fram til fyrri umræðu samþykkt fyrir Héraðsskjalasafn Árnesinga bs., ásamt fundargerð Héraðsnefndar Árnesinga frá 14. október 2025.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum að vísa samþykkt fyrir Héraðsskjalasafn Árnesinga bs. til síðari umræðu.
11.Samþykkt fyrir Listasafn Árnesinga bs., fyrri umræða
2512038
Lögð er fram til fyrri umræðu samþykkt fyrir Listasafn Árnesinga bs., ásamt fundargerð Héraðsnefndar Árnesinga frá 14. október 2025.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa samþykkt fyrir Listasafn Árnesinga bs. til síðari umræðu.
12.Kaup á félagslegu leiguhúsnæði
2511060
Lagt er fram samþykkt kauptilboð í fasteignina Aldinmörk 12, F2510970, í Hveragerði, ásamt söluyfirliti fyrir eignina. Kauptilboðið var undirritað með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar. Lagt er til að samþykkt verði kauptilboð í Aldinmörk 12, F2510970, Hveragerði.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir.

Bæjarfulltrúar O- og B-lista lögðu sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar fagnar því að í geta með afgreiðslu þessa máls tekið skref í átt að þeim markmiðum meirihluta bæjarstjórnar að tryggja fjölbreytt búsetuúrræði í Hveragerði, en í meirihlutasamningi Okkar Hveragerðis og Framsóknar eru sérstaklega undirstrikuð markmið um fjölgun félagsleigs leiguhúsnæðis.
Bæjarstjórn samþykkir kauptilboðið með 5 atkvæðum bæjarfulltrúa O- og B- lista.
Bæjarfulltrúar D-lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.

13.Húsnæðisáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2026, fyrri umræða
2512003
Tillaga að húsnæðisáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2026 er lögð fram til fyrri umræðu.
Eftirtaldir tóku til máls: Friðrik Sigurbjörnsson, Njörður Sigurðsson og Halldór Benjamín Hreinsson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa húsnæðisáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2026 til síðari umræðu.
14.Reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjaldi ársins 2026 til elli- og örorkulífeyrisþega
2511160
Lögð er fram tillaga að uppfærðum reglum um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjaldi ársins 2026 til elli- og örorkulífeyrisþega. Tekjuviðmið byggja á minnisblaði skrifstofustjóra sem er jafnframt lagt fram.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjaldi ársins 2026 til elli- og örorkulífeyrisþega.
15.Álagning fasteignagjalda hjá Hveragerðisbæ 2026
2511048
Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á álagningu fasteignaskatts fyrir árið 2026:
Fasteignaskattur á húsnæði í A-flokki (íbúðarhúsnæði) fyrir árið 2026 verði 0,320%.
Fasteignaskattur á húsnæði í C-flokki (atvinnuhúsnæði) fyrir árið 2026 verði 1,450%.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Njörður Sigurðsson og Halldór Benjamín Hreinsson.
Fasteignaskattur á húsnæði í A-flokki (íbúðarhúsnæði) fyrir árið 2026 verði 0,320%.
Fasteignaskattur á húsnæði í C-flokki (atvinnuhúsnæði) fyrir árið 2026 verði 1,450%.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Njörður Sigurðsson og Halldór Benjamín Hreinsson.
Bæjarfulltrúar O- og B-lista lögðu sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Það er ánægjulegt að geta lækkað álögur á íbúðar- og atvinnuhúsnæði í Hveragerði á þessum tímapunkti og hefur þá álagningarhlutfall á íbúðarhúsnæði lækkað um 23% á kjörtímabilinu, sem er afar mikilvægt fyrir íbúa. Þá er ekki síður mikilvægt og rétt að benda á þá staðreynd að á kjörtímabilinu hefur einnig tekist að auka gæði í þeirri þjónustu sem Hveragerðisbær veitir.
Sandra Sigurðardóttir
Halldór Benjamín Hreinsson
Njörður Sigurðsson
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Bæjarfulltrúar D-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:
Það er ánægjulegt að sjá að meirihlutinn hefur séð að sér og ætli nú að bregðast við hækkun fasteignamats í Hveragerði eftir ábendingar frá okkar á D-listanum með lækkun álagningahlutfalls. En betur má ef duga skal og ljóst er að þessi lækkun álagningahlutfalls úr 0,330% í 0,320% mun ekki skila sér í mikilli lækkun fasteignagjalda til íbúa bæjarins. Þannig mun þetta að öllu jöfnu hækka fasteignagjöld um 7-8% í stað 9-10%, sé miðað við að fasteignamat íbúða hækki í takt við meðal hækkun fasteignamats í Hveragerði fyrir árið 2026 sem er 10,1%
Alda Pálsdóttir
Friðrik Sigurbjörnsson
Tillagan um breytta álagningu fasteignaskatts á árinu 2026 á íbúðar- og atvinnuhúsnæði er samþykkt samhljóða.

16.Fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar 2026-2029, seinni umræða
2510165
Tillaga að fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar 2026-2029 er lögð fram til seinni umræðu ásamt minnisblaði skrifstofustjóra um þær breytingar sem hafa verið gerðar á tillögunni á milli umræðna.
Formaður bæjarráðs, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, fór yfir þær breytingar sem hafa orðið á fjárhagsáætlun 2026-2029 á milli umræðna.
Eftirtaldir tóku til máls: Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Friðrik Sigurbjörnsson og Njörður Sigurðsson.
Formaður bæjarráðs, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, fór yfir þær breytingar sem hafa orðið á fjárhagsáætlun 2026-2029 á milli umræðna.
Eftirtaldir tóku til máls: Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Friðrik Sigurbjörnsson og Njörður Sigurðsson.
Bæjarfulltrúar O- og B-lista lögðu sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Fjárhags - og fjármálaáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2026 og þriggja ára er afrakstur kjörtímabils framþróunar og uppbyggingar í bænum. Kröftug rekstarafkoma, lækkun skatta, mikil innviðauppbygging, styrking fjárhags og lækkun skuldálags eru megin niðurstaða áætlunarinnar - íbúum til meiri gæða og aukinnar velferðar.
Fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2026 er skýr, björt og metnaðarfull framtíðarsýn fyrir bæ í blómlegum vexti.
Sandra Sigurðardóttir
Halldór Benjamín Hreinsson
Njörður Sigurðsson
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Hlé var gert á fundi kl. 17:59.
Fundur hélt áfram kl. 18:10.
Bæjarfulltrúar D-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:
Líkt og við gerð síðustu þriggja fjárhagsáætlanna þessa kjörtímabils tóku fulltrúar D-listans ekki þátt við gerð þessarar áætlunar með beinum hætti. Það er og hefur verið mat fulltrúa D-listans eftir samtöl við grasrót félagsins að betra hafi verið að leyfa meirihlutanum að standa sjálf að gerð þessara áætlunnar án beinnar aðkomu fulltrúa D-listans.
Þegar framlögð fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 er skoðuð í heild sinni verður ljóst að nokkrar af lykilforsendum hennar standast ekki. Áætlunin gerir ráð fyrir 4% íbúafjölgun næstu ára þrátt fyrir að fjölgun á þessu ári sé tæplega 1% og aðeins 1% á síðasta ári, samkvæmt tölum frá Þjóðskrá, og ekkert sem bendir til þess að fjölgunin taki skyndilegan kipp á næsta ári. Þetta leiðir til þess að tekjuáætlun af útsvari er mögulega ofmetin, og hið sama á við um tekjur vegna lóðaúthlutana og gatnagerðar sem eru langt umfram það sem raunsætt er að ætla miðað við framkvæmdatíma og markaðsaðstæður.
Það verður ekki hjá því komist að nefna að helsta ágreiningsefni á þessu kjörtímabili hefur verið sú leið sem núverandi meirihluti hefur valið að fara varðandi uppbyggingu leikskóla. Þar ber að nefna viðbygginguna við Óskaland. Fulltrúar D-listans hafa gagnrýnt þá leið sem valin var af Okkar Hveragerði og Framsókn. Fyrst gagnrýndu fulltrúar D-listans staðsetninguna þ.e. að ekki skyldi vera farið í uppbyggingu á nýjum leikskóla í Kambalandi, þá valið á verktakanum á síðari stigum og síðast en ekki síst gerð okur leigusamnings við Fasteignafélagið Eik sem er bænum afar óhagstæður á allan hátt og þýðir í stuttu máli að bærinn verður búinn að greiða fyrir fullbúinn leikskóla þegar fyrst gefst tækifæri á því að nýta forkaupsréttinn. Bærinn verður því í raun búinn að greiða fyrir byggingu tveggja nýrra leikskóla ef fyrsti forkaupsrétturinn verður nýttur árið 2034. Það vekur því furðu þegar fjárfestingaráætlun fyrir árin 2026-2029 er skoðuð að það virðist vera að meirihlutinn ætli sér að fara aftur í þessa leigu vegferð við uppbyggingu leikskóla, næst í Kambalandi.
Þá hafa fulltrúar meirihlutans farið mikinn í umræðunni um mikla uppbyggingu innviða í bæjarfélaginu. Uppbygging grunnskólans hélt áfram á þessu kjörtímabili líkt og meirihluti D-listans hafði gert áætlanir um á síðast kjörtímabili. Enn bólar ekkert á nýju fráveitumannvirki. Þá hefur uppbygging fyrir íþróttaiðkun gengið heldur brösulega. Tillaga D-listans um 700 fermetra æfingarsal við núverandi íþróttahús var breytt í sameiginlega tillögu bæjarstjórnar. Sú tillaga hefur bólgnað út á síðustu mánuðum og kostnaður við bygginguna aukist enn frekar. Ljóst er að sú upphæð sem er sett í áætlun fyrir þá framkvæmd næstu þrjú árin virðist ekki duga fyrir núverandi kostnaðaráætlun.
Til viðbótar við þetta var ákveðið að fara í uppbyggingu á gervigrasvelli upp í dal. Sú framkvæmd hefur ekki heldur staðist tímaáætlun og ekki víst að völlurinn verði tilbúinn til notkunnar fyrr en seint næsta vor. Nú er byrjað að byggja ný íbúðarhús í Kambalandi, en þar er gatnagerðin ekki enn búin og því enn ein framkvæmdin þar sem tímaáætlanir hafa ekki gengið eftir.
Þá er skuldsetning sveitarfélagsins áfram áhyggjuefni. Samkvæmt nýjustu gögnum hækkar skuldaviðmið samstæðu úr 111% í 117,2% eftir breytingar á áætluninni. Fullyrðingar meirihlutans um að skuldir séu á niðurleið standast því ekki þegar hækkun á skuldum og skuldbindingum sveitarfélagsins er skoðuð á þessu kjörtímabili, enda er áfram gert ráð fyrir fjárfestingum sem nema rúmlega 3 milljörðum króna á komandi árum, sem kallar á aukna lántöku og auknar skuldbindingar sveitarfélagsins.
Í bókun meirihlutans frá síðasta fundi er talað um „stórsókn“ í hinum ýmsu málaflokkum, í fjölskyldumálum, félagslegu húsnæði og uppbyggingu leikskóla, en þegar tölurnar eru skoðaðar er þessi orðræða lítt í takt við efnið. Þrátt fyrir yfirlýsta stórsókn í félagslegu húsnæði er aðeins gert ráð fyrir kaupum á einni félagslegri íbúð á næsta ári.
Þá er lítið um raunverulegt aðhald í rekstri og því er í heild ekki hægt að tala um ábyrgan rekstur líkt og meirihlutinn hefur haldið fram. Ekki er brugðist við hækkun aðfanga, launa og þingfararkaups og jafnvel er gert ráð fyrir fjölgun nefndarfunda sem eykur kostnað í stað þess að draga úr honum.
Að lokum vilja fulltrúar D-listans þakka starfsfólki Hveragerðisbæjar fyrir þeirra störf í þágu sveitarfélagsins og óska þeim velfarnaðar á nýju ári.
Alda Pálsdóttir
Friðrik Sigurbjörnsson
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar 2026-2029 með framkomnum breytingum.

Fundargerðin upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 18:36.
Getum við bætt efni síðunnar?