Bæjarstjórn
Dagskrá
Forseti bæjarstjórnar, Sandra Sigurðardóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
1.Fundargerð bæjarráðs frá 16. október 2025
2510002F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 2, 9, 10, 11 og 12.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Alda Pálsdóttir og Pétur G. Markan.

Liður 2 "Bréf frá Sambandi sunnlenskra sveitarfélaga frá 12. október 2025." afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samstarfsyfirlýsingu um svæðisbundinn samráðsvettvang í þágu barna.
Liður 9 "Tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun - Vallarsvæði - Vallarhús" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun 2025 að upphæð kr. 6 milljónir vegna launakostnaðar á Vallarsvæði - aðstöðuhúss. Auknum útgjöldum verður mætt af bókhaldslykli 21010-9990 - annar kostnaður.
Liður 10 "Samningur við nemendur 7. bekkjar í GÍH um umhverfishreinsun" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samning við nemendur 7. bekkjar í GÍH um umhverfishreinsun.
Liður 11 "Samningur við 10. bekk um aðstoð við skólastarf í Grunnskólanum" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samning við 10. bekk um aðstoð við skólastarf í GÍH.
Liður 12 "Samningur Hveragerðisbæjar við Landferðir ehf. um akstur skólabarna í íþróttir - viðauki" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka við samning Hveragerðisbæjar við Landferðir ehf. um akstur skólabarna í íþróttir.
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

2.Fundargerð bæjarráðs frá 6. nóvember 2025
2510012F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 4, 6, 7, 8, 9, 10 og 15.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir.

Liður 4 "Bréf frá Tónlistarskóla Árnesinga frá 17. október 2025." afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að fjölga tímum hjá Tónlistarskóla Árnesinga til tónlistarkennslu fyrir árið 2026 um 8 klst og er tillaga þess efnis lögð fram í fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.
Liður 6 "Hamarskvöld í sundi" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að greitt verði aukalega 1 klst. í yfirvinnu fyrir starfsmenn og að frítt verði í sund á meðan á viðburðinum stendur fyrir foreldra dagana 12. nóvember og 16. desember nk.
Liður 7 "Verðkönnun í útboð á öryggisþjónustu fyrir Hveragerðisbæ" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði Lotu í útboð á öryggisþjónustu fyrir Hveragerðisbæ.
Liður 8 "Sértæk stuðningsþjónusta fyrir einstaklinga yngri en 60 ára" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að setja á fót sértæka stuðningsþjónustu fyrir einstaklinga yngri en 60 ára.
Liður 9 "Samningur um eignarnám - Hrauntunga 20" afgreiddur sérstaklega.
Að fenginni fyrirliggjandi umsögn Skipulagsstofnunar og með vísan til 1. og 5. tölul. 2. mgr. 50. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 staðfestir bæjarstjórn fyrri ákvörðun sína frá 12. júní 2025 um eignarnám lóðar nr. 20 við Hrauntungu í Hveragerði, lnr. 200257, fnr. 2343286, eins og hún er afmörkuð á fyrirliggjandi uppdrætti, dags. 10. apríl 2025, í samræmi við fyrirliggjandi eignarnámssamning Hveragerðisbæjar og eignarnámsþola frá 23. maí 2025.
Bæjarstjórn samþykkir jafnframt fyrirliggjandi drög að afsali og felur bæjarstjóra að undirrita það og að vísa málinu til matsnefndar eignarnámsbóta til frekari meðferðar í samræmi við fyrirliggjandi eignarnámssamning um lóðina.
Liður 10 "Þjónustusamningur við Íþróttafélagið Hamar um aðstöðu í kjallara íþróttahússins við Skólamörk" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir þjónustusamning við Íþróttafélagið Hamar um aðstöðu í kjallara íþróttahússins við Skólamörk.
Liður 15 "Samningur við Íþróttafélagið Hamar" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samning Hvergerðisbæjar við Íþróttafélagið Hamar um afnotarétt að kjallara íþróttahússins við Skólamörk.

3.Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 4. nóvember 2025
2510011F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 2, 3 og 4.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Njörður Sigurðsson og Friðrik Sigurbjörnsson.

Liður 2 "Deiliskipulag miðbæjar - deiliskipulagsbreyting vegna tilfærslu íþróttahúss" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjarsvæðis - breyting vegna íþróttahúss dags. 3. september 2025 til næsta fundar.
Liður 3 "Heiðmörk 30-36, Grundarreitur - skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag og breytingu á aðalskipulagi" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu deiliskipulags fyrir Heiðmörk 30-36 sem byggir á aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037 í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Alda Pálsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Liður 4 "Laufskógar 13 - ósk um stækkun lóðar" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að synja beiðni frá 22. maí 2025 um stækkun lóðarinnar að Laufskógum 13 þar sem umbeðin stækkun lóðarinnar myndi fara inn á opið svæði samkvæmt gildandi aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2017-2029 sem fyrirhugað er að nýta á annan hátt.

4.Fundargerð velferðar- og fræðslunefndar frá 4. nóvember 2025
2510003F
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er staðfest.
5.Fundargerð menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar frá 5. nóvember 2025
2510010F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 6, 7 og 9.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Pétur G. Markan og Friðrik Sigurbjörnsson.

Liður 6 "Breyting á afgreiðslutíma bókasafnsins" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breyttum afgreiðslutíma bókasafnsins. Tillaga að breyttri gjaldskrá bókasafnsins fyrir árið 2026 er afgreidd undir lið 15 á fundi bæjarstjórnar.
Liður 7 "Beiðni frá Fiðlufjöri slf." afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn fagnar framtaki Fiðlufjörs slf. Vilyrði er komið frá Grunnskólanum í Hveragerði um nýtingu húsnæðis skólans fyrir fyrirhugað námskeið næsta sumar. Bæjarstjórn frestar afgreiðslu styrkbeiðni þar til viðeigandi gögn og upplýsingar liggja fyrir um upphæð styrks sem óskað er eftir.
Liður 9 "Þjónustusamningur við Sóknarnefnd Hveragerðiskirkju frá 2025" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir þjónustusamning Hveragerðisbæjar við Sóknarnefnd Hveragerðiskirkju og felur bæjarstjóra að skrifa undir samninginn.

6.Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 29. október 2025
2510004F
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Friðrik Sigurbjörnsson.
Fundargerðin er staðfest.
7.Leikskólinn Óskaland - samkomulag um uppgjör
2507016
Lagt fram samkomulag við Eik um uppgjör vegna leikskólans Óskaland.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Pétur G. Markan, Friðrik Sigurbjörnsson, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir og Njörður Sigurðsson.

Fulltrúar D-listans lögðu fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúar D-listans hafa ítrekað á þessu kjörtímabili lýst skoðun sinni um uppbyggingarmál leikskóla í Hveragerði. Skoðun fulltrúa D-listans er enn sú sama, að nýbygging leikskóla í Kambalandi hefði væri skynsamlegasta og hagkvæmasta leiðin.
Það liggur ljóst fyrir að í stækkandi samfélagi þarf fleiri leikskólapláss og við viljum að sjálfsögðu skapa fleiri slík, en fulltrúar D-listans hefðu kosið að það væri gert á öðrum stað, þar sem rými væri meira og í því hverfi sem nú er að byggjast upp og vænta má að barnafjölskyldur munu búa.
Það er óhætt að segja að það hefur tekið á að reisa þessa viðbyggingu við Leikskólann Óskaland og nú er svo komið að Hveragerðisbær fer að finna fyrir því í rekstri bæjarins, en samkvæmt þessum viðauka er gert ráð fyrir að Hveragerðisbær greiði 4.523.594kr. á mánuði í leigu til Fasteignafélagsins Eikar. Það að meirihlutinn hafi tekið ákvörðun um að fara þessa leiguleið er því ekki til hagsbóta.
Bæjarfulltrúar D-listans hafa frá upphafi verið á móti þeim samning sem gerður var við Fasteignafélagið Eik og varað við því að fara leiguleið í stað þess að sveitarfélagið stæði sjálft að uppbyggingu leikskóla mannvirkja. Upphaflegi samningurinn var til 40 ára með kauprétti á 7 ára fresti en með þessum nýja viðauka hefur hann breyst og við hann hafa bæst 10 ár með kauprétti á 10 ára fresti í stað 7 ára.
Þá hafa allar leigugreiðslur hækkað frá upphaflegum samningi ásamt því að við Hveragerðisbær ætlar að taka 1/3 kostnaðar við auka- og viðbótarverk við hús sem bærinn á ekki og greiðir himinháa leigugreiðslu fyrir.
Fyrir utan leiguna og auka- og viðbótarverk þá greiddi Hveragerðisbær fyrir tæki og vinnu við lóðina sem fór margfalt fram úr áætlun.
Á fyrstu 10 árum samningsins verður sveitarfélagið búið að greiða nálægt sama kostnað og ef sveitarfélagið hefði byggt nýjan fullbúinn 6 deilda leikskóla í Kambalandi og þá fyrst gefst Hveragerðisbæ kostur á því að kaupa viðbygginguna á svipuðu verði og nýr 6 deilda leikskóli hefði kostað. Þá skal því haldið til haga að með þessari rándýru leiguleið bættust einungis við aðeins þrjár nýjar deildir.
Friðrik Sigurbjörnsson
Alda Pálsdóttir
Meirihlutinn lagði fram eftirfarandi bókun.
Það er fagnaðarefni að geta klárað á þessum fundi samkomulag um uppgjör við Fasteignafélagið Eik vegna nýrrar leikskólabyggingar við Óskaland, leikskóla. Nú hefur nýja leikskólabyggingin verið tekin í gagnið og fengið frábærar viðtökur barna, starfsmanna og forráðamanna. Þá hefur einnig ný og glæsileg leikskólalóð verið opnuð og óhætt er að segja að lóðin beri af þegar kemur að leikgleði, hönnun og glæsileika.
Með nýju leikskólabyggingunni hafa biðlistar barna verið tæmdir í Hveragerði með leikskólabyggingu og lóð sem setja ný gæðaviðmið í leikskólamál í bænum.
Ljóst er að framkvæmdatíminn var bæði lengri og meira krefjandi en áætlanir gerði ráð fyrir í upphafi. Þá þurfti að skipta út aðalverktaka í miðju verki sem kallaði á skjótt, fumlaus og markviss viðbrögð Eikar og bæjarins. Með samhentu og samstilltu átaki náðist að klára leikskólabyggingu í bestu gæðum í sumar, börnum í Hveragerði til heilla. Það er það sem öllu máli skiptir.
Í uppgjöri þessu er kveðið á um viðbótar og aukaverk, kostnaðarskiptingu vegna vanefnda verktakans og breytingum á uppkaupstíma byggingarinnar.
Í gagnið hefur verið tekin ný og glæsileg gæða leikskólabygging í Hveragerði, við leikskólann Óskaland. Það er fagnaðarefni fyrir alla íbúa bæjarins.
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Halldór Benjamín Hreinsson
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Njörður Sigurðsson
Sandra Sigurðardóttir
Meirihluti bæjarstjórnar samþykkir samkomulag vegna yfirlýsingar um samstarf vegna uppbyggingar leikskólans Óskalands og leigusamnings um fasteignina að Réttarheiði 45.
Bæjarstjóra er falið að undirrita samkomulagið. Minnihlutinn á móti.

8.Breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar vegna heimilda til fullnaðarafgreiðslu mála, síðari umræða
2509048
Lagt fram til síðari umræðu breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar nr. 923/2023.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar nr. 923/2023 og felur bæjarritara að senda til staðfestingar ráðherra.
9.Ráðning bæjarritara Hveragerðisbæjar
2510170
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um ráðningu bæjarritara Hveragerðisbæjar.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Friðrik Sigurbjörnsson.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Friðrik Sigurbjörnsson.
Bæjarstjórn samþykkir ráðningasamning við Steinunni Erlu Kolbeinsdóttur vegna starfs bæjarritara. Bæjarritari verður staðgengill bæjarstjóra og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs bæjarins.
10.Tillaga Okkar Hveragerðis og Framsóknar í Hveragerði um kaup á félagslegu leiguhúsnæði
2511060
Kaup á félagslegri íbúð - tillaga frá meirihluta bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar felur bæjarstjóra að taka saman núverandi stöðu á biðlista eftir félagslegu húsnæði. Bæjarstjóri, í samráði við velferðarþjónustu bæjarins, hefji um leið leit á fasteignamarkaði eftir heppilegum íbúðarkostum, með því augnamiði að auka við félagslegt íbúðarhúsnæði í Hveragerðisbæ, og leggja fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu og samþykktar.
Greinargerð.
Í meirihlutasamkomulagi Okkar Hveragerðis og Framsóknar er kveðið á um að auka við félagslegt húsnæði sveitarfélagsins með að markmiði að tryggja að allir einstaklingar búi við öruggt og fullnægjandi húsnæði, óháð efnahag. Samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga ber sveitarfélögum að sjá til þess að framboð á félagslegu leiguhúsnæði sé nægilegt til að mæta þörfum íbúa. Tillagan er lögð fram til að létta á biðlistum bæjarins en í upphafi ársins voru 20 á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði samkvæmt húsnæðisáætlun bæjarins. Í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir fjárfestingu til aukningar á félagslegu húsnæði sem nemur 50.000.000 kr.
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Halldór Benjamín Hreinsson
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Njörður Sigurðsson
Sandra Sigurðardóttir
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Njörður Sigurðsson, Alda Pálsdóttir og Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir.

Meirihluti bæjarstjórnar samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að taka saman núverandi stöðu á biðlista eftir félagslegu húsnæði og að hefja leit að heppilegum íbúðarkosti til kaupa í samráði við velferðarþjónustu bæjarins. Minnihlutinn situr hjá.
11.Tillaga frá D-lista um uppbyggingu Hamarshallar
2511039
Tillaga um uppbyggingu Hamarshallar.
Fulltrúar D-listans leggja til að kannaður verði hver kostnaður við að reisa að nýju loftborna Hamarshöll á grunni gömlu hallarinnar yrði. Leitað yrði tilboða hjá aðilum út í heimi sem sérhæfa sig í loftbornum íþróttahöllum, en það eru mörg fyrirtæki, fyrir utan Duol, sem sérhæfa sig í að reisa loftbornar hallir og hægt væri að leita tilboða til þeirra.
Greinagerð.
Frá því að Hamarshöllin féll í ofsaveðri í febrúar 2022 hafa komið fram ýmsar hugmyndir sem hafa ekki orðið að veruleika til að bæta íþróttaaðstöðu í Hveragerði. Hugmynd um að reisa stálgrindarhús á grunni Hamarshallarinnar komst langt en varð ekki að veruleika. Þá var hugmynd um tímabundið íþróttahús í iðnaðarbili fyrir neðan þjóðveg slegin af borðinu. Nú er gervigrasvöllur uppí Dal langt á veg kominn, en sú lausn leysir ekki innanhúsaðstöðu. Þá er einnig ljóst að viðbygging við íþróttahúsið við Skólamörk verður ekki orðin tilbúin fyrir næsta skólaár. Með því að fara af stað í að leita tilboða núna í loftborna íþróttahöll væri mögulegt að koma aftur upp innanhúsaðstöðu til íþróttaiðkunnar fyrir allar deildir Hamars strax næsta sumar með hagkvæmum hætti, miðað við það tilboð sem lá fyrir á árinu 2022, og þannig komið íþróttunum í skjól fyrir veturinn. Grunnurinn og öll tæki eru til staðar og myndi það því spara sveitarfélaginu mikinn kostnað. Þá hafa margir einstaklingar og mörg fyrirtæki lýst yfir áhuga á því að taka þátt kaupum á nýrri loftborinnihöll og væri hægt að leita til þeirra til að minnka kostnað sveitarfélagsins.
Alda Pálsdóttir
Friðrik Sigurbjörnsson
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Friðrik Sigurbjörnsson

Tillagan borin upp.
Fulltrúar D-lista greiða atkvæði með tillögunni.
Meirihluti bæjarstjórnar felldi tillöguna með eftirfarandi bókun.
Yfirstandandi er umfangsmesta uppbygging íþróttamannvirkja í sögu Hveragerðisbæjar sem markast af þeirri stefnu meirihluta bæjarstjórnar að hér verði byggð upp örugg, traust, varanleg og fjölnota íþróttaaðstaða sem nýtist komandi kynslóðum til framtíðar. Annars vegar er unnið að stækkun núverandi íþróttahúss og hins vegar að uppsetningu gervigrasvallar í fullri stærð. Samhljómur ríkir um þessar lausnir og með þeim skapast framúrskarandi keppnis- og æfingaaðstaða í Hveragerði. Þannig er unnið markvisst að því að mæta þörfum íþrótta- og æskulýðsstarfs til framtíðar með ábyrgri forgangsröðun og fjárhagslegri festu.
Sameiginleg ákvörðun meiri- og minnihluta bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar um að fara í umfangsmestu uppbyggingu íþróttamannvirkja í sögu Hveragerðisbæjar grundvallar fyrirliggjandi fjárfestingaáætlun komandi ára.
Nýtt gervigras og nýtt íþróttahús við hlið þess gamla verður bylting í allri íþróttaaðstöðu bæjarins og ná fram langtum meiri gæðum í íþróttaaðstöðu fyrir alla þá hópa áður nýttu loftborið hús, sem nú er fokið. Það er hins vegar sameiginlegt verkefni okkar allra að finna hlutverk fyrir grunninn sem eftir stendur. Það mun nást með samhug og samhentu átaki. Tillögunni er því hafnað.

12.Fyrirspurn frá D-lista um kostnað við gerð nýs aðalskipulags
2511038
Fyrirspurn um kostnað við gerð nýs aðalskipulags
Fulltrúar D-lista óska eftir sundurliðun á öllum kostnaði sem áfallinn er við gerð aðalskipulags og samgöngustefnu á yfirstandandi kjörtímabili. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hve stór upphæð er enn ekki gjaldfærð vegna vinnunnar.
Þá er óskað eftir að fá upplýsingar um þá mælikvarða sem notaðir eru til að meta gæði vinnu þessarar. Þetta inniber m.a. upprunalegar tíma- og kostnaðaráætlun sem liggja átti fyrir við upphaf verkefnissins, markmið og hvaða tæki eru notuð til að meta gæði niðurstöðu vinnunnar.
Alda Pálsdóttir
Friðrik Sigurbjörnsson
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Pétur G. Markan.

Bæjarstjóri fór yfir framlagt minnisblað þar sem farið er yfir svör við fyrirspurn D-listans.
13.Fyrirspurn frá D-lista um uppbyggingu íþróttamannvirkja
2511037
Fyrirspurn um uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Fulltrúar D-listans óska eftir upplýsingum um hver staðan sé á uppbyggingu íþróttamannvirkja í Hveragerði.
Hvenær má eiga von á því að hægt verði að æfa og spila knattspyrnu á nýjum gervigrasvelli sem er í byggingu upp í dal? Þá er óskað eftir upplýsingum um hvenær ný viðbygging íþróttahússins við Skólamörk verði tekin í notkun?
Einnig er óskað eftir upplýsingum um heildarkostnað sem fallið hefur til við byggingu gervigrasvallarins frá því að ákvörðun var tekin um að fara af stað í það verkefni sem og heildarkostnað sem fallið hefur til vegna viðbyggingar við íþróttahúsið.
Alda Pálsdóttir
Friðrik Sigurbjörnsson
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Alda Pálsdóttir, Pétur G. Markan og Friðrik Sigurbjörnsson.

Klukkan 18:17 var gert fundarhlé.
Klukkan 18:21 hélt fundur áfram.
Bæjarstjóri fór yfir framlagt minnisblað þar sem farið er yfir svör við fyrirspurn D-listans.
Klukkan 18:21 hélt fundur áfram.
Bæjarstjóri fór yfir framlagt minnisblað þar sem farið er yfir svör við fyrirspurn D-listans.
14.Álagning fasteignagjalda og útsvars hjá Hveragerðisbæ 2026
2511048
Lögð fram tillaga að álagningu fasteignagjalda og útsvars hjá Hveragerðisbæ fyrir árið 2026.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Friðrik Sigurbjörnsson.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Friðrik Sigurbjörnsson.
Fulltrúar D-lista lögðu fram eftirfarandi bókun.
Miðað við fjárhagsáætlun meirihluta Okkar Hveragerðis og Framsóknar virðist ekki eigi að standa við samþykkt bæjarráðs frá því í sumar. Þar var tillaga fulltrúa D-listans um að lækka álagningarhlutfall fasteignagjalda á íbúða- og atvinnuhúsnæði og að fækka gjalddögum að nýju úr 11 í 10 samþykkt.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun birti í lok maí hækkun á fasteignamati milli áranna 2025 og 2026. Fasteignamat á íbúðarhúsnæði í Hveragerði hækkar um 10,1% á milli ára og fyrir atvinnueignir er hækkunin um 11,7%. Er þetta mun meiri hækkun en var á milli áranna 2024 og 2025, en þar hækkaði fasteignamat á íbúðarhúsnæði um 3,4% og á atvinnuhúsnæði um 7,9%.
Standi álagningarhlutfall fasteignagjalda því óbreytt munu fasteignagjöldin hækka mjög á milli ára og því er mikilvægt að koma til móts við íbúa og fyrirtæki í bænum með lækkun álagningahlutfallsins.
Það er ljóst að svigrúm er til að lækka fasteignagjöld, eins og sést í framlagðri fjárhagsáætlun þar sem gert er ráð fyrir að skila afgangi uppá yfir 500 milljónir króna.
Alda Pálsdóttir
Friðrik Sigurbjörnsson
Meirihluti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun.
Á fundi bæjarráðs þann 19. júní sl. var tekin fyrir tillaga D-listans um lækkun fasteignagjalda og fækkun gjalddaga fasteignagjalda úr ellefu í tíu. Í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 er aftur á móti gert ráð fyrir óbreyttu álagningarhlutfalli fasteignagjalda. Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar leggur áherslu á ábyrga fjármálastjórn sem tryggir stöðugleika í rekstri og svigrúm til nauðsynlegrar og áframhaldandi uppbyggingar innviða. Mikilvægt er að sveitarfélagið geti staðið undir nauðsynlegum framkvæmdum og þjónustu til að bæta lífsgæði íbúa og styrkja bæinn til framtíðar.
Á kjörtímabilinu hefur meirihluti bæjarstjórnar ákveðið að leggja áherslu á markvissan stuðning við fjölskyldur og börn, meðal annars með lækkun leikskólagjalda, gjaldfrjálsum skólamáltíðum í grunnskólum og hækkun frístundastyrks. Með þessum aðgerðum nýtast fjármunir samfélaginu þar sem þeirra er mest þörf og stuðla að jöfnuði og bættum hag heimilanna og stuðla þannig að bættu samfélagi.
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Halldór Benjamín Hreinsson
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Njörður Sigurðsson
Sandra Sigurðardóttir
Eftirfarandi álagning fasteignagjald og útsvars er lagt til:
Útsvarsprósenta hjá Hveragerðisbæ fyrir árið 2026 verður 14,97%
Fasteignaskattur á húsnæði í A-flokki fyrir árið 2026 verður 0,330%
Fasteignaskattur á húsnæði í B-flokki fyrir árið 2026 verður 1,320%
Fasteignaskattur á húsnæði í C-flokki fyrir árið 2026 verður 1,480%
Lóðarleiga á húsnæði í A-flokki fyrir árið 2026 verður 0,440%
Lóðarleiga á húsnæði í B og C - flokki fyrir árið 2026 verður 1,500%
Vatnsgjald á húsnæði í A-flokki fyrir árið 2026 verður 0,020%
Vatnsgjald á húsnæði í B og C-flokki fyrir árið 2026 verður 0,170%
Holræsagjald á húsnæði í A, B og C-flokki fyrir árið 2026 verður 0,145%
Rotþróargjald fyrir árið 2026 verður kr. 47.000.
Fjöldi gjalddaga á fasteignagjöldum verða 11 á árinu 2026.
Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti tillöguna.
Minnihlutinn situr hjá.

15.Gjaldskrár Hveragerðisbæjar 2026
2511029
Lögð fram gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Hveragerði, breyting á gjaldskrá fyrir hunda og kattagjöld í Hveragerðisbæ, breyting á gjaldskrá um Vatnsveitu Hveragerðis, gjaldskrá fyrir sundlaugina í Hveragerði, gjaldskrá fyrir leikskólana í Hveragerði, gjaldskrá fyrir frístund í Hveragerði, gjaldskrá fyrir bókasafnið í Hveragerði.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrárnar.
16.Fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar 2026-2029, fyrri umræða
2510165
Lögð fram til fyrri umræðu fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árin 2026-2029.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir og Njörður Sigurðsson.

Fjármálaáætlun Hveragerðisbæjar 2026 og þriggja ára áætlun
Formáli
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2027-2029 er hér lögð fram.
Niðurstaða áætlunar sýnir að rekstur bæjarins styrkist umtalsvert, í takt við yfirlýst markmið þessa meirihluta og þá uppbyggingu reksturs, innviða og stjórnsýslu sem einkennt hefur tímabilið. Áætlun ársins 2026 er áætlun um eflingu gæða og velferðar íbúa Hveragerðis - á grunni ábyrgs rekstrar.
Lykiltölur næsta árs
-Rekstrarniðurstaða samstæðu er áætluð 530 milljónir og í A-hluta 515 milljónir
-Skuldaviðmið samkvæmt reglugerð lækkar hratt, úr 122,1% árið 2025 í 97,1% árið 2029
-Handbært fé frá rekstri styrkist á tímabilinu úr 302 milljónum árið 2025 í 1.319 milljónir árið 2029
Í framlagðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 eru áætlaðar heildartekjur Hveragerðisbæjar (aðalsjóðs, A- og B- hluta) alls 6.762 m.kr. Þar af eru áætlað útsvar og áætluð fasteignagjöld samtals 3.417 m.kr. og framlög Jöfnunarsjóðs áætluð 1.834 m.kr. Aðrar tekjur bæjarsamstæðu um 1.510 m.kr.
Rekstrargjöld og reiknaðar afskriftir samstæðu nema um 5.799 m.kr. EBITDA Hveragerðisbæjar er 962 m.kr. Fjármagnsliðir eru áætlaðir 432 m.kr. og er rekstrarniðurstaða samstæðu því jákvæð um 530 m.kr. sem er mun betri niðurstaða en undanfarin ár þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar.
Hveragerðisbær hefur staðið að afar mikilvægri og aðkallandi kerfis- og grunninnviðauppbyggingu frá upphafi kjörtímabilsins. Framlögð áætlun felur í sér áframhaldandi stórsókn í uppbyggingu Hveragerðisbæjar en gert er ráð fyrir að heildafjárfesting á árinu 2026 verði rúmlega 926 milljónir króna.
Mikil eftirspurn er eftir búsetu í Hveragerði. Þessi eftirspurn gefur okkur tækifæri til að snúa við fyrri þróun í rekstri bæjarins með auknum tekjum sem nýta má í innviðauppbyggingu og til lækkunar skulda sveitarfélagsins og eflingar gæða í allri þjónustu.
Stórsókn í málefnum fjölskyldna
Gert er ráð fyrir áframhaldandi lækkun leikskólagjalda og hækkun frístundastyrksins í skrefum á kjörtímabilinu.
Á kjörtímabilinu munu leikskólagjöld hafa lækkað um tæp 70%. Í dag hafa fjórar klukkustundir verið gerðar gjaldfrjálsar á leikskólum bæjarins. Gert er ráð fyrir því að árið 2026 verði tveir tímar í viðbót gerðir gjaldfrjálsir þannig að í heild verði 6 tímar gjaldfrjálsir. Vistunargjöld á leikskóla voru 29.270 kr. fyrir 8 tíma vistun í upphafi kjörtímabilsins en verða í ársbyrjun 2026 13.200 kr. Haustið 2026 munu þau lækka í 8.800 kr. og hafa þá lækkað um tæp 70% á kjörtímabilinu.
Frístundastyrkur hefur hækkað um 92% á kjörtímabilinu, var í upphafi kjörtímabils 26.000 kr. Frístundastyrkur verður hækkaður úr 44.000 kr. í 50.000 kr.
Foreldragreiðslur á ársgrundvelli eru 1.419.000.- Mánaðarlegum foreldragreiðslum til foreldra barna eldri en 12 mánaða, sem hafa ekki fengið vistunarboð á leikskóla eða hjá dagforeldri, var komið á þann 1. október 2022 og námu þá 110.000 kr. á mánuði. Í dag nema þær 124.000 kr. og er gert ráð fyrir að þær muni nema 129.000 kr. á mánuði árið 2026 og næmu þannig á ársgrundvelli 1.419.000 kr. á barn, ef fullnýttar.
Stórsókn í uppbyggingu íþróttamannvirkja
Í áætlun ársins 2026 er gert ráð fyrir verklokum á nýju fyrsta flokks gervigrasi, knattspyrnumannvirki í bestu gæðum. Þá er gert ráð fyrir að framkvæmdir við nýtt íþróttahús, viðbyggingu við eldra íþróttahúsið við Skólamörk, sem hófust á árinu 2025 haldi áfram á árinu 2026.
Þessar framkvæmdir marka mestu uppbyggingu íþróttamannvirkja í sögu Hveragerðisbæjar.
Stórsókn í fráveitu.
Á árinu 2026 er gert ráð fyrir framkvæmdum við nýja og fyrsta flokks viðbyggingu sem verður stækkun við eldri skólphreinsistöð.
Stórsókn í kaupum á félagslegu húsnæði
Á árinu 2026 er gert ráð fyrir kaupum á félagslegu húsnæði, rétt eins og á árunum 2024 og 2025. Með áherslu á uppbyggingu á félagslegu húsnæði minnka biðlistar eftir slíku húsnæði og tryggir betur öllum hópum aðgengi að þessum grunnmannréttindum.
Stórsókn í gatnagerð og stofnbrautum
Gatnagerð í Hrauntungu í Kambalandi gekk framar vonum árið 2025 og fyrstu 11 lóðunum var úthlutað þar sem umsóknir voru á sjötta hundrað. Á árinu 2026 er gert ráð fyrir að klára götur í Tröllahrauni og úthluta þeim lóðum.
Samhliða gatnagerð í Hrauntungu verður farið að huga að framkvæmdum vegna Vesturmarkar, en Vesturmörkin er stofnbraut sem mun gjörbreyta aðgengi og umferðarflæði inn og út úr Kambalandinu. Þannig mun framkvæmdin minnka álag á þær götur sem anna umferð í hverfið í dag og stuðla að bættu umferðaröryggi.
Stórsókn í stjórnkerfisbreytingum
Áfram verður haldið af krafti með þær stjórnkerfisbreytingar sem unnið hefur verið að á árinu. Markmiðið er að gera stjórnsýslu Hveragerðisbæjar skilvirkari og betri, gagnsærri og notendavænni, í takt við þá vaxtarþróun sem sveitarfélagið hefur gengið í gengum. Nýjar áskoranir kalla á nýja hugsun og ný vinnubrögð til að tryggja hámarksgæði í allri þjónustu sveitarfélagsins.
Innleiðing stafrænnar stefnu stendur yfir sem stafrænn leiðtogi hefur umsjón með. Uppbygging í stafrænum lausnum eins og notendaviðmóti og gagnvirkum samskiptum fela í sér leiðir til aukningar gæða þjónustunnar sem leiðir til bættra lífsgæða íbúa sem þurfa að sækja þjónustuna. Þá verður haldið áfram af kappi með breytingar innan stjórnsýslu bæjarins til tryggja það að stjórnsýsla bæjarins eflist í takt við ört stækkandi bæjarfélag.
Almennt um rekstur og horfur 2026
Stefnt er að því að efla markvist rekstur eins og framlögð áætlun sýnir. Hátt verðbólgu- og vaxtastig og krefjandi ytri aðstæður í fjármálaumhverfinu hafa þó nokkur áhrif á rekstur. Í framlagðri áætlun er tekið mið af ytri aðstæðum og rekstur bæjarins aðlagaður að þeim. Ráðdeild er í rekstri og samhliða því er fjárfest í innviðum í takt við íbúafjölgun.
Forsendur fjárhagsáætlunar 2026
Tekjur Hveragerðisbæjar eru útsvar, fasteignagjöld, þjónustugjöld og framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Útsvarsprósenta Hveragerðisbæjar er óbreytt í fjárhagsáætlun 2026 eða 14,97%. Í áætluninni er gert ráð fyrir óbreyttri álagningarprósentu fasteignaskatts.
Álagningarprósentur á vatnsgjaldi, holræsagjaldi og lóðarleigu á húsnæði í öllum flokkum breytast ekki milli ára. Aukavatnsgjald hækkar úr 17 kr. á rúmmetra í 18 kr. Gjalddagar fasteignagjalda verða áfram 11.
Áhersla var lögð á að létta sem mest á útgjöldum bæjarbúa við endurskoðun á gjaldskrám sveitarfélagsins og stuðla jafnframt að stöðugleika í þróun verðbólgu sem hefur umfangsmikil áhrif á íbúa og heimili í Hveragerði líkt og annarsstaðar á landinu. Verðhækkanir á gjaldskrám eru samkvæmt vísitölu tæp 4%.
Breytingar á gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs hækkar um raunkostnað sem er misjafn eftir stærð og tegundum íláta.
Forsendur þriggja ára áætlunar
Samhliða fjárhagsáætlun 2025 er lögð fram þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2027-2029.
Forsendur hennar eru eftirfarandi:
-Vísitala neysluverðs verði 3,2% í upphafi tímabilsins og 2,5% í lok þess í samræmi við uppfærða þjóðhagsspá sem birt var í september 2025.
-Tekjur af útsvari hækki um 4% á ári á tímabilinu.
-Tekjur af fasteignaskatti hækki um 8,4% á ári á tímabilinu.
-Framlög jöfnunarsjóðs hækki um 4% á ári á tímabilinu.
-Hækkun launa verði um 4% á ári á tímabilinu.
-Starfsfólki sveitarfélagsins fjölgi um 1,3% á ári á tímabilinu.
-Annar rekstrarkostnaður hækki um 2,5% á ári á tímabilinu.
Fjárfestingar 2027-2029
Áætlaðar fjárfestingar árið 2027 eru 1.038 m.kr., árið 2028 785 m.kr. og árið 2029 223 m.kr.
Stærstu fjárfestingarnar eru bygging 4. áfanga grunnskólans, 1. áfangi leikskóla í Kambalandi, íþróttamannvirki, fráveita og vatnsveita. Allt eru þetta nauðsynlegar framkvæmdir í ljósi íbúafjölgunar og áralangrar innviðaskuldar síðustu kjörtímabila. Fjárfestingaáætlun er endurskoðuð við fjárhagsáætlunargerð hvers árs í ljósi ríkjandi efnahagsumhverfis á hverjum tíma og reglulegrar þarfagreiningar á innviðum bæjarins.
Skuldir og skuldbindingar 2026-2029
Markmið meirihluta bæjarstjórnar er, þrátt fyrir miklar fjárfestingar vegna innviðauppbyggingar og lántöku, verði skuldir samstæðu vel undir lögbundnu 150% skuldaviðmiði.
Eins og eftirfarandi tafla sýnir er skuldastaða sveitarfélagsins vel undir lögbundnum viðmiðum og vænkast með styrkingu reksturs bæjarins.
Samkvæmt fyrirliggjandi áætlun munu skuldir samstæðu þróast með eftirfarandi hætti að teknu tilliti til þess að samkvæmt fjármálareglum sveitarfélaga er heimilt að draga frá skuldum skuldbindingar vegna lífeyris sem fellur til eftir 15 ár og síðar:
2026 - 111,0% af tekjum
2027 - 112,4% af tekjum
2028 - 109,4% af tekjum
2029 - 97,1% af tekjum
Að lokum
Eins og áætlun ársins 2026 gefur glögga mynd af þá er áfram haldið af krafti í uppbyggingu og styrkingu Hveragerðisbæjar - íbúum til aukinnar velferðar og bættra lífsgæða. Samhliða allri þessari uppbyggingu er mikilvægt að huga af skynsemi og ábyrgð að fjármálum bæjarins og tryggja að jafnvægi verði í rekstri bæjarins. Það er lykilforsenda ef vel á að takast til. Í áætlun ársins 2026 er gert ráð fyrir umtalsverðri rekstrarstyrkingu bæjarins.
Það er kappsmál meirihlutans að þjónusta íbúa Hveragerðis sem best og styðja hér við að lífsgæði bæjarbúa verði eins og best verði á kosið á hverjum tíma. Áhersla er lögð á fjölskylduna, stuðning við barnafjölskyldur, öflugar menntastofnanir, fjölbreytt atvinnulíf, gæðaríkt íþrótta- og frístundastarf, að heilsuefling íbúa á öllum aldri sé í hávegum höfð og menningin haldi áfram að blómstra.
Það hefur verið einkenni á seinni hluta þessa kjörtímabils að samstarf minni og meirihluta hefur verið með ágætum. Þannig hafa bæði rekstrar og fjárfestingaráætlun verið samþykkt samhljóða. Þetta hefur gefið góða raun og verið lykilforsenda í velgengni bæjarins, íbúum til heilla og hagsbóta. Minnihluta er þakkað samstarfið.
Meirihlutinn vill koma á framfæri einlægum þökkum til bæjarstjóra og skrifstofustjóra Hveragerðisbæjar fyrir óeigingjarna og umfangsmikla vinnu við gerð fyrirliggjandi fjárhagsáætlunar. Fjárhagsáætlanir einstakra deilda eru unnar í góðri samvinnu við forstöðumenn stofnana og er þeim jafnframt þakkað fyrir sitt góða framlag. Öðru starfsfólki Hveragerðisbæjar eru einnig færðar þakkir fyrir gott samstarf við fjárhagsáætlunargerðina.
Bær í blóma - Hveragerði í blóma!
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Halldór Benjamín Hreinsson
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Njörður Sigurðsson
Sandra Sigurðardóttir
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar 2026-2029 til síðari umræðu.

Fundargerð upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 19:22.
Getum við bætt efni síðunnar?