Fara í efni

Bæjarstjórn

596. fundur 09. október 2025 kl. 17:00 - 19:02 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Sandra Sigurðardóttir forseti bæjarstjórnar
  • Njörður Sigurðsson aðalmaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir aðalmaður
  • Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Thelma Rún Runólfsdóttir varamaður
  • Friðrik Sigurbjörnsson aðalmaður
  • Alda Pálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti bæjarstjórnar, Sandra Sigurðardóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Fundargerð bæjarráðs frá 18. september 2025

2509003F

Liðir afgreiddir sérstaklega: 5, 6, 7 og 8.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Pétur G. Markan, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Njörður Sigurðsson og Alda Pálsdóttir.
Liður 5 "Viðauki við fjárhagsáætlun 2025 vegna bæjarskrifstofu" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun 2025 að upphæð kr. 3 milljónir vegna launakostnaðar á bæjarskrifstofu. Auknum útgjöldum verður mætt af bókhaldslykli 21010-9910 - annar kostnaður án VSK."

Liður 6 "Viðauki við fjárhagsáætlun 2025 vegna Grunnskólans í Hveragerði" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun 2025 að upphæð kr. 6,5 milljónir vegna launakostnaðar hjá Grunnskólanum í Hveragerði. Auknum útgjöldum verður mætt af bókhaldslykli 21010-9910 - annar kostnaður án VSK."

Liður 7 "Samningur Hveragerðisbæjar við Landferðir ehf. um akstur skólabarna" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir samning Hveragerðisbæjar við Landferðir ehf. um akstur skólabarna í íþróttir.

Liður 8 "Viðauki við samning Hveragerðisbæjar og Reykjadalsfélagsins frá 29. febrúar 2024" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka við samning Hveragerðisbæjar og Reykjadalsfélagsins frá 29. febrúar 2024 vegna bílastæða.

Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

2.Fundargerð bæjarráðs frá 1. október 2025

2509007F

Liður afgreiddur sérstaklega: 11.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Njörður Sigurðsson, Pétur G. Markan og Alda Pálsdóttir.
Liður 11 "Hrauntunga gatnagerð - stækkun verks" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að farið verði í þriðja áfanga í Tröllahrauni sbr. tillögu 1 í minnisblaði byggingarfulltrúa og að tillögu 2 í minnisblaði byggingarfulltrúa verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2026 þar sem einnig verði hugað að gatnagerð í Vesturmörk.

Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

3.Fundargerð menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar frá 1. október 2025

2509004F

Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Alda Pálsdóttir, Njörður Sigurðsson og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir.
Fundargerðin er staðfest.

4.Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 2. október 2025

2509008F

Liðir afgreiddir sérstaklega: 1, 2, 3, 6 og 7.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Pétur G. Markan og Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir.
Liður 1 "Álfafell 5 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi" afgreiddur sérstaklega.
Nefndin lagði til við bæjarstjórn að ósk lóðarhafa um breytingu á skilmálum um þakhalla yrði hafnað þar sem hún víkur verulega frá skilmálum í deiliskipulagi. Deiliskipulagið heimili auk þess ekki þaksvalir á þaki 2. hæðar íbúða en slíkt fyrirkomulag auki verulega yfirsýn af svölum yfir aðliggjandi lóð, sem kunni að rýra gæði hennar. Nefndin lagði til að ósk lóðarhafa um hámarks mænishæð yrði samþykkt. Nefndin tók ekki afstöðu til annarra atriða á aðaluppdrætti en þeirra, sem óskir lóðarhafa lúta að og kunna að vera í ósamræmi við deiliskipulagsskilmála.

Bæjarstjórn telur ekki tímabært að taka ákvörðun um breytingu á deiliskipulagi á þessum tímapunkti og frestar því þessum hluta erindisins og felur bæjarstjóra / skipulagsfulltrúa að halda áfram viðræðum um hönnun hússins með því markmiði að hönnun hússins standist skilmála núverandi deiliskipulags.

Bæjarstjórn samþykkir ósk lóðarhafa um hámarks mænishæð.

Liður 2 "Edenreitur - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi vegna gróðurhúss" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn hafnar umsókn um breytingu á deiliskipulag þar sem framkvæmdin víkur verulega frá skilmálum deiliskipulags og er eftir atvikum fordæmisgefandi fyrir aðrar lóðir á skipulagsreitnum.

Liður 3 "Gangbrautir við Þelamörk-Breiðumörk með tilliti til öryggis gangandi vegfarenda." afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að setja upp gangbraut aðeins innar frá gatnamótum Breiðumerkur og Þelamerkur og felur umhverfisfulltrúa að gera kostnaðaráætlun fyrir uppsetningu á snjallgangbraut.

Undanfarið hafa orðið tvö umferðarslys í Hveragerði, með skömmu millibili, þar sem börn hafa orðið fyrir ökutæki á leið sinni yfir gatnamót. Þó svo betur hafi farið en leit út í fyrstu í báðum tilfellum undirstrika þessi tilvik mikilvægi þess að umferðaröryggi sé tryggt með viðunandi hætti ekki síst í ljósi aukins íbúafjölda og stækkandi byggðar. Í því augnamiði hefur á kjörtímabilinu verið unnið að samgönguáætlun samhliða endurskoðun aðalskipulags fyrir bæinn. Samgönguáætlunin byggir á umfangsmikilli úttekt á umferðaröryggi í bænum og eru þar greind tækifæri til úrbóta. Bæjarstjórn óskar eftir því að samgönguáætlunin verði tekin fyrir til kynningar og umræðu í bæjarráði sem leggi fyrir bæjarstjórn tillögu að því hvaða aðgerðir verði ráðist í strax á yfirstandandi vetri.

Liður 6 "Þórsmörk 3 - Umfangsflokkur 2" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að láta fara fram grenndarkynningu á framkvæmdinni skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Liður 7 "Austurmörk 1-3 og Austurmörk 5, ósk um breytingu á deiliskipulagi." afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að taka deiliskipulag lóðanna Austurmörk 1-3 og Austurmörk 5 til endurskoðunar á komandi ári þar sem tekið verður mið af fyrirliggjandi stefnumörkun í aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037.

Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

5.Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 24. september 2025

2509005F

Liðir afgreiddir sérstaklega: 2 og 4.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Njörður Sigurðsson og Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir.
Liður 2 "Fundardagatal Samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði 2025-2026" afgreiddur sérstaklega.
Meirihluti bæjarstjórnar samþykkir fundardagatal samráðshóps um málefni fatlaðs fólks fyrir starfsárið 2025-2026 með þeirri breytingu sem samþykkt var á fundi samráðshópsins. Fulltrúar D-listans á móti.

Liður 4 "Búsetumál öryrkja og fólks með fatlanir í Hveragerði" afgreiddur sérstaklega.
Bókun samráðshópsins var eftirfarandi: Samráðshópur leggur til við bæjarstjórn að til að mæta búsetuþörf öryrkja og fatlaðs fólks í bæjarfélaginu verði gert ráð fyrir fjölgun slíkra búsetukosta í fjárhagsáætlunargerð næstu ára, m.a. með stofnframlagi til Brynju leigufélags ses. vegna íbúðakaupa í bæjarfélaginu. Veiting stofnframlags sveitarfélagsins til Brynju leigufélags ses. vegna kaupa á nýjum íbúðum er til þess fallið að tryggja framboð leiguíbúða á sanngjörnu verði fyrir öryrkja og fatlað fólk í bæjarfélaginu.

Bæjarstjórn tekur undir með samráðshópnum og felur bæjarstjóra / Velferðarsviði að undirbúa erindi til stjórnar Bergrisans þar sem lýst verði yfir vilja Hvergerðisbæjar um að þjónustukjarni rísi í bænum sem allra fyrst.

Jafnframt felur bæjarstjórn bæjarstjóra / Velferðarsviði að senda Brynju leigufélagi ses. erindi um mögulegt samstarf um uppbyggingu eða kaup á nýjum íbúðum á vegum leigufélagsins í bæjarfélaginu.

Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

6.Fundargerð öldungaráðs frá 1. október 2025

2509009F

Liðir afgreiddir sérstaklega: 1.



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Njörður Sigurðsson og Friðrik Sigurbjörnsson.
Liður 1 "Samþykkt um öldungaráð Hveragerðisbæjar" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að sameiginlegur fundur öldungaráðs og bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar verði haldinn 13. nóvember sem er í samræmi við 2. gr. samþykktar um öldungaráð Hveragerðisbæjar frá 2019.

Kl. 18:00 var gert fundarhlé.
Kl. 18:05 hélt fundur áfram.

Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

7.Fundargerð afmælisnefndar Hveragerðisbæjar frá 22. september 2025

2412055

Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Njörður Sigurðsson og Friðrik Sigurbjörnsson.
Fundargerðin er staðfest.

8.Bréf frá Kvenréttindafélagi Íslands frá 6. október 2025

2510023

Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Alda Pálsdóttir og Njörður Sigurðsson.
Bæjarstjórn fagnar framtakinu og telur það afar mikilvægt. Bæjarstjórn hvetur stofnanir bæjarins til þátttöku 24. október og felur menningar- atvinnu og markaðsfulltrúa að fylgja því eftir.

9.Endurskoðun aðalskipulags Hveragerðisbæjar - umsögn Vegagerðarinnar

2310124

Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir meðfylgjandi tillögu að svörum við athugasemdum Vegagerðarinnar og felur skipulagsfulltrúa að framsenda þau til Skipulagsstofnunar.

10.Tillaga Okkar Hveragerðis og Framsóknar í Hveragerði um skólaakstur

2510024

Tillaga frá meirihluta bæjarstjórnar Hveragerðis.

Meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar leggur til að hafin verði athugun og þarfagreining að skólaakstri Grunnskólans í Hveragerði.



Greinargerð.

Með tilkomu nýs hverfis í uppbyggingu í Kambalandi, þar sem gatnagerð gengur hratt og örugglega og nýjar lóðir, sem úthlutað var snemmsumars, eru komnar með húsgrunna er þörf fyrir skólaakstur í Hveragerði orðinn meiri. Með því að færa útmörk byggðar í Hveragerði hefur vegalengd fyrir smá fætur á leið í skóla aukist til muna og því mikilvægt að huga að lausnum. Meðfylgjandi tillögunni er reglugerð um skólaakstur í grunnskóla frá árinu 2009.



Sandra Sigurðardóttir

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir

Njörður Sigurðsson

Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir

Thelma Rún Runólfsdóttir



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Thelma Rún Runólfsdóttir, Njörður Sigurðsson, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Pétur G. Markan, Alda Pálsdóttir og Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir.
Tillagan er samþykkt.

11.Tillaga Okkar Hveragerðis og Framsóknar í Hveragerði um þjónustu- og félagskjarna fyrir eldri borgara

2510025

Tillaga frá meirihluta bæjarstjórnar Hveragerðis.

Meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar leggur til að stofnaður verði undirbúnings hópur vegna nýs þjónustukjarna eldri borgara í Hveragerði. Hópnum verði ætlað að vinna og skila til bæjarstjórnar skýrslu með forsendum fyrir slíku verkefni, tillögum að staðarvali auk þarfagreiningar á mögulegri starfsemi og hlutverki þjónustukjarnans.



Greinargerð

Félag eldri borgara í Hveragerði hefur hitt bæjarstjórn tvisvar undanfarið og farið yfir kraftmikla og vaxandi starfsemi félagsins. Þar hefur verið stærsta og umfangsmesta málið til umræðu og kynningar hugmyndir að nýjum þjónustukjarna fyrir eldriborgara. Í ljósi þessa er það tillaga okkar að settur verði hópur á laggirnar á vegum bæjarstjórnar sem ætlað er að hefja undirbúning að mögulegum þjónustukjarna. Hlutverk hópsins verður að greina forsendur fyrir slíku verkefni, vinna þarfagreiningu, auk greiningar á staðarvali.



Í hópinum myndu fulltrúar eldri borgara eiga sæti, kjörnir fulltrúar og starfsmenn bæjarins. Bæjarstjóra verði falið að koma tillögu að skipan hópsins í næsta bæjarráð.



Sandra Sigurðardóttir

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir

Njörður Sigurðsson

Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir

Thelma Rún Runólfsdóttir



Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir og Njörður Sigurðsson.
Tillagan er samþykkt.
Fundargerð upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:02.

Getum við bætt efni síðunnar?