Bæjarstjórn
Dagskrá
Forseti bæjarstjórnar, Sandra Sigurðardóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
1.Fundargerð bæjarráðs frá 4. september 2025
2508006F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 6 og 7.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Eyþór H. Ólafsson, Pétur G. Markan og Njörður Sigurðsson.

Liður 6 "Kauptilboð í Hrauntungu 3b" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að gera kauptilboð í Hrauntungu 3b eins og þau liggja fyrir fundinum og felur bæjarstjóra að undirrita þau.
Liður 7 "Leigusamningur um tjaldsvæði" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir leigusamning til eins árs við Plís ehf. um tjaldsvæðið Reykjamörk 20.
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

2.Fundargerð aðalfundar Fasteignafélags Hveragerðis ehf. frá 27. ágúst 2025
2508003F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 5.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Liður 5 "Greiðslur til stjórnar" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa greiðslum til stjórnar fasteignafélagsins til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2026.
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa greiðslum til stjórnar fasteignafélagsins til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2026.
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.
3.Fundargerð menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar frá 3. september 2025
2508010F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 1, 6 og 7.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, Njörður Sigurðsson og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir.

Liður 1 "Fundadagskrá menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir fundadagatal menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar 2025-2026.
Liður 6 "Tónlistarhátíðin Hverafugl" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa beiðni um styrkveitingu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2026.
Liður 7 "Byggðamerki Hveragerðisbæjar" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að uppfærðu byggðamerki Hveragerðisbæjar og felur bæjarstjóra að undirbúa kynningu á merkinu og fylgja eftir innleiðingu þess.

4.Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 5. september 2025
2508005F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 1, 2, 3, 4, 5, 6, 9, 10, 11 og 12.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Njörður Sigurðsson, Eyþór H. Ólafsson, Pétur G. Markan, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir og Halldór Benjamín Hreinsson.

Liður 1 "Fundardagatal skipulags- og umhverfisnefndar 2025-2026" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir fundadagatal skipulags- og umhverfisnefndar 2025-2026.
Liður 2 "Umsókn um nýtt deiliskipulag í landi Fagrahvamms og Reykjamarkar, samhliða breytingu á aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2017-2029" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að innkomnar ábendingar verði teknar til greina í áframhaldandi skipulagsbreytingum.
Liður 3 "Deiliskipulag miðbæjar - deiliskipulagsbreyting vegna tilfærslu íþróttahúss" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytingu miðbæjarsvæðis vegna íþróttahúss í auglýsingu skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Liður 4 "Beiðni um breytingar á stoppistöð Strætó" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu Vegagerðarinnar og felur skipulagsfulltrúa að vinna að staðsetningu biðstöðva í samráði við Vegagerðina.
Liður 5 "Mánamörk 3 - 5 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar synjar beiðni Sýnileika ehf. um leyfi til að setja upp LED auglýsingaskjá við Mánamörk 3-5 í Hveragerði með vísan til röksemda er fram koma í minnisblaði bæjarritara Hveragerðisbæjar. Jafnframt felur bæjarstjórn bæjarstjóra að vinna drög að reglum um skilti í Hveragerðisbæ og leggja fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Liður 6 "Austurmörk 2 - breyting á notkun í gistiþjónustu" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa sem tekur ákvörðun um útgáfu byggingaleyfis.
Liður 9 "Borgarhraun 11 - umsókn um grindverk á lóðamörkum" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu málsins þar til nýjar reglur um skjól- og garðveggi hafa verið samþykktar.
Liður 10 "Heiðarbrún 47 - fyrirspurn um skjólvegg á lóðarmörkum" afgreiddur sérstaklega.

Liður 11 "Grunnskólinn í Hveragerði - umferðaröryggi" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að synja beiðninni þar sem tillagan leggur til að rjúfa gangstétt sem er til þess fallið að minnka öryggi gangandi vegfarenda.
Liður 12 "Ábending er varðar umferðaröryggi" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn bendir á að samgönguráðgjafi hefur komið að vinnu við gerð nýs aðalskipulags Hveragerðisbæjar. Eitt af meginverkum hans í þeirri vinnu er að samræma hámarkshraða í bænum með tilliti til aukins umferðaöryggis og lækkunar hámarkshraða þar sem því er komið við.

5.Fundargerð aðalskipulagsnefndar frá 19. ágúst 2025
2509046
Enginn tók til máls.
Fundargerðin er staðfest.
6.Endurskoðun aðalskipulags Hveragerðisbæjar
2310124
Lögð fram tillaga að aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037 sem samþykkja þarf til auglýsingar sbr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Eyþór H. Ólafsson, Njörður Sigurðsson, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Pétur G. Markan.

Minnihlutinn lagði fram eftirfarandi bókun.
Bæjarfulltrúar D-listans sitja hjá við afgreiðslu aðalskipulagsins til auglýsingar með eftirfarandi bókun:
Aðalskipulagsferlið hefur tekið langan tíma og kostnaðurinn er því miður kominn mjög langt fram yfir áætlanir þrátt fyrir endurgreiðslu frá Skipulagsstofnun.
Ekki hefur verið tekið tillit til ítrekaðra athugasemda bæjarfulltrúa sem hafa verið hundsaðar og ekki skráðar í fundargerðir.
Það er einnig mjög sérstakt að Mannvirkja- og umhverfisnefnd hefur aldrei fengið aðalskipulagsvinnuna inná borð til sín en sú nefnd er sá hluti stjórnvaldsins í Hveragerði sem þarf mest að vinna eftir skipulaginu.
Breiðamörkin og það skipulag sem sett er fram þar er ekki í takt við vilja og athugasemdir bæjarfulltrúa og fjölmargra bæjarbúa hvað varðar bílastæði og hjólastíga. Í drögum að umferðarstefnu er gert lítið úr þörf bæjarbúa til að nota bíla til að fara á milli staða innanbæjar og sagt að bílastæði séu of mörg í bænum. Þetta þarf að endurskoða og laga.
Sett er inn íbúðabyggð á svæðinu þar sem Ullarþvottastöðin stóð á sínum tíma, þ.e. meðfram Dynskógum. Við teljum ekki rétt og óþarft að þrengja að útivistarfsvæðinu undir Hamrinum með þessum hætti og ætti fremur að stækka útivistarsvæðið í samræmi við stefnumörkun Hveragerðisbæjar um náttúruna í fyrirrúmi.
Á svonefndu Axlarsvæði er verið að eyðileggja aðkomu og ásýnd bæjarins þegar komið er niður Kamba. Í stað þess að horft verði inn í Hveragerði frá þjóðveginum og sjá þar gróðurhús sem eru einkenni bæjarins þá munu rísa þar 3-4 hæða blokkir. Þarna er gert ráð fyrir miklum þéttleika og verið að ýta garðyrkjunni í burtu þrátt fyrir stefnu um annað. Almennt virðist vera frekar skorið niður í athafnasvæðum en að bæta við þau eins og þarf.
Í greinagerðinni segir:
“Blómstrandi Hveragerði, með blómlegu atvinnulífi og fjölbreyttum atvinnutækifærum sem byggja á auðlindum og sérkennum bæjarins, s.s. á sviði ferðaþjónustu, græns iðnaðar og tækifæra í nýsköpun innan þessara sviða."
Skipulagið á Axlarsvæðinu er þannig ekki í takt við þessa stefnu.
Einnig má velta því fyrir sér hvort við erum með þessari endurskoðun á aðalskipulaginu að fara frá þeirri stefnu sem hefur verið ríkjandi í Hveragerði að leggja áherslu á lágreista, hlýlega byggð en leggja of mikla áherslu á fjölbýli.
Eyþór H. Ólafsson
Ingibjörg Zoëga Björnsdóttir
Klukkan 17:51 var gert fundarhlé.
Klukkan 18:16 hélt fundur áfram.
Meirihlutinn lagði fram eftirfarandi bókun.
Meirihluti bæjarstjórnar fagnar því að á fundi þessum liggi fyrir að samþykkt verði til auglýsingar tillaga að nýju aðalskipulagi Hveragerðisbæjar. Tillagan er í samræmi við þá metnaðarfullu framtíðarsýn sem mörkuð hefur verið með nýrri stefnu Hveragerðisbæjar þar sem áhersla er lögð á að í Hveragerðisbæ sé blómstrandi atvinnulíf og hér skipti heilsa og vellíðan máli.
Mikil og fagleg vinna hefur átt sér stað við undirbúning fyrirliggjandi tillögu þar sem samtal og samráð við íbúa og atvinnurekendur hér í bæ hafa verið í forgrunni. Allar fundargerðir vegna þessarar vinnu hafa verið teknar fyrir í bæjarstjórn og þær staðfestar. Það er mat meirihlutans að fyllilega hafi verið tekið tillit til þeirra sjónarmiða sem sett hafa verið fram af kjörnum fulltrúum út í gegnum þetta ferli. Hér er lagður fram afrakstur þeirrar vinnu til auglýsingar og þar með frekara samtals og samráðs sem síðan verður tekið til nánari skoðunar. Framlögð tillaga er í öllum atriðum samhljóða þeirri sýn sem var mörkuð í upphafi kjörtímabilsins og hefur markað spor að nýjum tímum í Hveragerði.
Sandra Sigurðardóttir
Halldór Benjamín Hreinsson
Njörður Sigurðsson
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Meirihluti bæjarstjórnar samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með nokkrum lítils háttar breytingum vegna mögulegra ábendinga sem borist hafa úr kynningarferlinu. Minnihlutinn situr hjá.

7.Lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga
2509012
Lagt fram minnisblað skrifstofustjóra um lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga fyrir lánum að upphæð kr. 445 milljónir kr. sem er samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2025.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Eyþór H. Ólafsson og Njörður Sigurðsson.
Eftirtaldir tóku til máls: Sandra Sigurðardóttir, Eyþór H. Ólafsson og Njörður Sigurðsson.
Minnihlutinn lagði fram eftirfarandi bókun.
Bæjarfulltrúar D-listans sitja hjá við afgreiðslu málsins með eftirfarandi bókun:
Það er ekki rétt sem kemur fram í minnisblaðinu sem hér liggur fyrir frá skrifstofustjóra að lántakan sé hluti af samhljóða ákvörðun bæjarstjórnar um fjárfestingar ársins 2025 og hvað þá fjármögnun þeirra.
Fulltrúar D-listans hafa ítrekað spurt meirihlutann að því hvernig þau hyggist fjármagna þau verkefni sem liggja fyrir, en þá hefur oftar en ekki verið fátt um svör. Þá vöruðu fulltrúar D-listans við frekari lántöku sveitarfélagsins við samþykkt fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025 og voru einnig ekki fylgjandi frekari kaupum á félagslegu húsnæði.
Einnig þykir fulltrúum D-listans það varhugavert að það þurfi að taka lán fyrir rekstri sveitarfélagsins, líkt lesa má úr minnisblaði skrifstofustjóra, þar sem rætt er um að taka þurfi 395 milljónir króna að láni til endurfjármögnunar afborgana.
Upphaflegt lán sem samþykkt var að taka á bæjarstjórnarfundi í febrúar var einnig fyrir þau mál sem bæjarstjórn var að mestu öll sammála um, líkt og kemur fram í bókun með þeirri lántöku. Var lánið tekið til nýrrar viðbyggingar leikskóla, þriðja áfanga grunnskóla, gervigrasvallar fyrir knattspyrnu og stækkun á íþróttahúsi sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu.
Það er einnig sérstakt að taka eigi 50 milljóna króna lán fyrir kaupum á félagslegu húsnæði þegar ekki liggur fyrir kauptilboð í húsnæði. Þá liggur heldur ekki fyrir ný þarfagreining hvort þörf sé fyrir kaupum á félagslegu húsnæði né þá hvaða stærð af húsnæði þyrfti.
Eyþór H. Ólafsson
Ingibjörg Zoëga Björnsdóttir
Klukkan 18:41 var gert fundarhlé.
Klukkan 18:52 hélt fundur áfram.
Meirihlutinn lagði fram eftirfarandi bókun.
Lántakan sem fyrir liggur til afgreiðslu er í öllum atriðum samhljóða sameiginlegri ákvörðun allrar bæjarstjórnar um fjárfestingarverkefni og fjármögnun bæjarins í fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2025. Jafnframt liggur skýrlega fyrir greinargóð þarfagreining á brýnni þörf fyrir félagslegt leiguhúsnæði í eigu bæjarins í húsnæðisáætlun Hveragerðisbæjar sem var samþykkt samhljóða í janúar 2025, þar sem 20 manns voru skráðir á biðlista. Öll bæjarstjórn hefur samþykkt fjármögnun verkefna yfirstandandi árs á fyrri stigum og hefur fyrirkomulag fjármögnunar bæjarins legið skýrt fyrir frá upphafi með samþykkt allra bæjarfulltrúa. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðismanna spyrja hvernig fjármögnun bæjarins er fyrirhuguð og svarið er einfaldlega: Með lántökunni sem fulltrúar Sjálfstæðismanna samþykktu sjálf.
Sandra Sigurðardóttir
Halldór Benjamín Hreinsson
Njörður Sigurðsson
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar samþykkir hér með á bæjarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 445.000.000,- á árinu 2025 með þeim lánaskilmálum sem býðst á þeim tíma sem lántaka fer fram. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, sem og langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður sveitarfélögum upp á hverju sinni og hefur bæjarstjórnin kynnt sér skilmála skuldabréfaflokkanna eins og þeir koma fyrir á heimasíðu Lánasjóðsins sbr. einnig meðfylgjandi minnisblað skrifstofustjóra.
Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til kaupa á félagslegu húsnæði og endurfjármögnun afborgana sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Pétri G. Markan, bæjarstjóra, kt. 160281-5459, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hveragerðisbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Minnihlutinn situr hjá.

8.Breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar nr. 923/2023 vegna heimildar til fullnaðarafgreiðslu mála, fyrri umræða
2509048
Lögð fram til fyrri umræðu tillaga að breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar hvað varðar valdsvið nefnda og heimild til fullnaðarafgreiðslu mála.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar nr. 923/2023 og vísar til seinni umræðu.
9.Skipan í nefndir og ráð
2509042
Kosning í nefndir og ráð skv. 48. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar.
Tillaga kom um eftirfarandi fulltrúa í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks
Í stað Berglindar Hauksdóttur aðalmanns í samráðshópnum kemur Harpa Björnsdóttir.
Í stað Árna Hoffritz varamanns í samráðshópnum kemur Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir.

Tillagan samþykkt samhljóða.
10.Fundadagatal bæjarstjórnar og bæjarráðs 2025-2026
2509043
Lagt fram fundardagatal fyrir fundi bæjarstjórnar og bæjarráðs frá september 2025 fram til loka kjörtímabils.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir fundadagatal bæjarstjórnar og bæjarráðs sbr. 8. gr. og 28. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar með eftirfarandi breytingum:
Fundur bæjarráðs sem vera á 2. október 2025 er færður til miðvikudagsins 1. október 2025 vegna fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna.
Fundur bæjarráðs sem vera á 1. janúar 2026 á nýársdegi er felldur niður með þeim fyrirvara að hægt verður að boða til fundar ef aðkallandi mál verða á dagskrá.
Fundur bæjarráðs sem vera á 2. apríl 2026 á Skírdegi er færður til 1. apríl 2026.
Aukafundur bæjarstjórnar verður haldinn 29. apríl 2026 í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar.
Fundur bæjarstjórnar sem vera á 14. maí 2026 á Uppstigningadegi er færður til 13. maí 2026.

Fundargerð upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 19:24.
Getum við bætt efni síðunnar?