Bæjarstjórn
Dagskrá
Forseti bæjarstjórnar, Halldór Benjamín Hreinsson, setti fund og stjórnaði. Leitaði hann eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
1.Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024, síðari umræða
2503192
Lagður fram til síðari umræðu ársreikningur Hveragerðisbæjar fyrir árið 2024 ásamt endurskoðunarskýrslu.
Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Pétur G. Markan, Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson og Njörður Sigurðsson.

Meirihluti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun.
Rekstrarniðurstaða Hveragerðisbæjar fyrir árið 2024 var jákvæð um 219 milljónir í A hluta samstæðunnar og jákvæð um 169 milljónir í A og B hluta samstæðunnar. Skuldaviðmið bæjarins er 108% - sem er 8% lægra en áætlun gerði ráð fyrir.
Rekstrarafkoma Hveragerðisbæjar fyrir árið 2024 eru mikil gleðitíðindi fyrir Hvergerðinga. Í upphafi kjörtímabilsins var það eitt af megin markmiðum og áherslum meirihlutasamkomulags Framsóknar og Okkar Hveragerðis að gera rekstur bæjarins sjálfbæran og styrkan til að geta tekist á við þá sögulegu og nauðsynlegu innviðauppbyggingu sem nú stendur yfir. Þriðji áfangi grunnskólans, auk átaks í viðhaldi skólans, íþróttamannvirki, gatnagerð í Tröllatungu, stækkun skólphreinsistöðvar og ný viðbygging við Óskaland eru dæmi um þessi stóru innviðaverkefni.
Í ljósi þessa er rekstrarniðurstaða ársins 2024 ánægjuleg, sterk og söguleg - niðurstaða sem tryggir fjárhagsforsendur bæjarins, eflir hann í uppbyggingarfasa og staðfestir að með samhentu átaki, betri samvinnu innan bæjarstjórnar, er mögulegt að ná miklum árangri í þágu íbúa bæjarins.
Halldór Benjamín Hreinsson
Sandra Sigurðardóttir
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Njörður Sigurðsson
Arnar Ingi Ingólfsson
Fulltrúar D-lista lögðu fram eftirfarandi bókun.
Nú liggur fyrir ársreikningur Hveragerðisbæjar fyrir árið 2024. Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð, upp á rúmar 169 milljónir króna. Það eru ánægjulegar fréttir. Þó vekur það áhyggjur að skuldasöfnun heldur áfram og að verulegt misræmi er milli fjárhagsáætlunar og raunverulegrar niðurstöðu samkvæmt ársreikningi. Ýmislegt bendir til þess að ákveðin lausatök séu í fjármálastjórn sveitarfélagsins.
Við yfirferð ársreikningsins kemur fram að annar rekstrarkostnaður, fyrir utan launakostnað, fór um 475 milljónir króna fram úr fjárhagsáætlun með viðaukum. Tekjur reyndust hins vegar 372 milljónum króna hærri en gert var ráð fyrir, aðallega vegna aukinna framlaga frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hefði ekki komið til aukinna tekna umfram áætlun hefði orðið verulegur rekstrarhalli á árinu 2024.
Kostnaður við laun bæjarráðs og bæjarstjórnar hefur tvöfaldast frá árinu 2021, farið úr 14 milljónum upp í tæpar 28 milljónir króna. Sama gildir um kostnað við önnur nefndastörf, það hefur farið úr 5 milljónum upp í um 10 milljónir króna. Nefndakostnaður hefur þannig hækkað um 18,6 milljónir króna frá árinu 2021 og stendur nú í yfir 38 milljónum króna á ári, án kjörstjórnar. Fulltrúar D-listans hafa ítrekað bent á að þær stjórnsýslubreytingar sem farið var í með fjölgun nefnda og ráða myndi leiða til aukins nefndakostnaðar. Þessi þróun gefur tilefni til að spyrja hvort þessar breytingar hafi skilað aukinni skilvirkni og hagkvæmni líkt og meirihlutinn talaði um.
Skuldastaða bæjarins hefur aukist verulega frá árinu 2022. Í lok árs 2021 námu skuldir og skuldbindingar um 5,2 milljörðum króna. Nú, samkvæmt ársreikningi 2024, eru þær komnar í um 8,2 milljarða króna. Þetta er mikil hækkun á innan við þremur árum og ekki er að sjá að uppbygging innviða sé í samræmi við þá skuldasöfnun.
Slík þróun takmarkar svigrúm bæjarins til frekari fjárfestinga án þess að hætta skapist á að farið verði yfir lögbundin viðmið um skuldahlutfall. Skuldsetningin gerir Hveragerðisbæ einnig viðkvæmari fyrir efnahagssveiflum og ófyrirséðum útgjöldum, sérstaklega í ljósi þess að lausafjárstaðan hefur staðið í stað. Handbært fé í árslok var 213 milljónir króna, nánast óbreytt frá fyrra ári. Ef kæmi til tekjusamdráttar eða óvæntra útgjalda gæti bæjarfélagið átt í erfiðleikum með að standa undir greiðslubyrði lána og annarra skuldbindinga.
Þó að fjárfestingaráætlun hafi gert ráð fyrir verulegum framkvæmdum á árinu 2024, er nauðsynlegt að fara varlega í að tala um sögulega uppbyggingu þegar rauntölur og framkvæmdir eru skoðaðar. Fjárfestingaráætlunin stóðst lítið betur en rekstraráætlunin.
Þriðji áfangi við grunnskólann fór verulega fram úr áætlun, þrátt fyrir að samþykkt hafi verið að flýta verkinu að hluta. Upphaflega var gert ráð fyrir 443 milljónum króna, en kostnaður fór upp í 693 milljónir króna, að frádreginni endurgreiðslu frá Sveitarfélaginu Ölfus að upphæð 112 milljónir króna. Rétt er að hafa í huga að verkefninu er ólokið. Á sama tíma voru áætlaðar 500 milljónir króna á fjárfestingaráætlun í uppbyggingu íþróttamannvirkja, framkvæmd sem ekki var farið í, eini kostnaðurinn sem féll undir þann lið var ýmis sérfræðikostnaður upp á 28 milljónir króna samtals.
Kostnaður við viðbyggingu við leikskólann Óskaland fór einnig langt fram úr áætlun. Kostnaðurinn endaði í 171 milljón króna, þrátt fyrir að upphafleg áætlun gerði aðeins ráð fyrir 91 milljón króna. Þegar kostnaður Hveragerðisbæjar og Fasteignafélagsins Eikar við viðbygginguna er tekinn saman sést að kostnaðurinn við að byggja þessar þrjár deildir nálgast það sem myndi kosta að byggja fullbyggðan sex deilda leikskóla.
Tekjur af gatnagerðargjöldum námu aðeins um 52 milljónum króna á móti 230 milljóna króna kostnaði við gatnagerð. Rúmum 16 milljónum var varið í sérfræðikostnað vegna skólphreinsistöðvar, þó áætlun hafi gert ráð fyrir 100 milljóna króna framlagi til endurbóta á skólphreinsimálum.
Sterk framtíð Hveragerðisbæjar byggir ekki aðeins á vilja til framkvæmda heldur þarf að koma þeim í framkvæmd í samræmi við áætlanir hverju sinni. Hveragerðisbær hefur alla burði og tækifæri til að halda áfram að vaxa og þróast, en það verður að gerast á traustum grunni. Nú er kominn tími til að stilla áherslurnar af, draga úr misræmi milli áætlana og veruleika, endurskoða forgangsröðun verkefna og tryggja að fjárfestingar verði að veruleika. Með ábyrgri fjármálastjórn verður hægt að byggja upp sveitarfélagið á sjálfbæran hátt.
Eyþór H. Ólafsson
Friðrik Sigurbjörnsson
Ársreikningurinn samþykktur og undirritaður.

2.Fundargerð bæjarráðs frá 16. apríl 2025
2504007F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 17 og 18.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Liður 17 "Opnun tilboða í verkið íþróttahús, jarðvinna og færsla lagna" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Aðalleiðar ehf. í verkið sem er 80,1% af kostnaðaráætlun verksins.
Liður 18 "Uppkaup lóða í Tröllatungu, Kambalandi" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir kauptilboð sem lagt verður fram vegna uppkaupa á lóðinni að Hrauntungu 20.
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

3.Fundargerð bæjarráðs frá 30. apríl 2025
2504009F
Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Friðrik Sigurbjörnsson, Pétur G. Markan, Eyþór H. Ólafsson, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Njörður Sigurðsson.
Varðandi lið 5 "Stafræn staða, stefna og aðgerðaráætlun" leggur meirihluti bæjarstjórnar fram eftirfarandi bókun.
Í upphafi kjörtímabilsins var það eitt af megin markmiðum og áherslum meirihlutasamkomulags Framsóknar og Okkar Hveragerðis að styrkja stjórnsýslu bæjarins, gera hana skilvirkari og öflugri.
Með nýrri stöðu stafræns leiðtoga sem komið var á fót fyrr á árinu og nú með aðgerðaáætlun sem leiðir að stafrænni stefnu bæjarins, og áætlað er að verði staðfest í haust, hefur Hveragerðisbær tekið stórt skref inn í framtíðina í þjónustu við íbúa bæjarins. Megin hlutverk sveitarfélaga er margþætt þjónusta við íbúa. Þróun þjónustunnar er mikilvægur þáttur í vaxandi bæjarfélagi og mikilvægt er að hún taki reglulega mið af breyttum þörfum íbúa, breyttri íbúa samsetningu og orðinni og áætlaðri fjölgun íbúa bæjarins.
Halldór Benjamín Hreinsson
Sandra Sigurðardóttir
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Njörður Sigurðsson
Arnar Ingi Ingólfsson
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.
Í upphafi kjörtímabilsins var það eitt af megin markmiðum og áherslum meirihlutasamkomulags Framsóknar og Okkar Hveragerðis að styrkja stjórnsýslu bæjarins, gera hana skilvirkari og öflugri.
Með nýrri stöðu stafræns leiðtoga sem komið var á fót fyrr á árinu og nú með aðgerðaáætlun sem leiðir að stafrænni stefnu bæjarins, og áætlað er að verði staðfest í haust, hefur Hveragerðisbær tekið stórt skref inn í framtíðina í þjónustu við íbúa bæjarins. Megin hlutverk sveitarfélaga er margþætt þjónusta við íbúa. Þróun þjónustunnar er mikilvægur þáttur í vaxandi bæjarfélagi og mikilvægt er að hún taki reglulega mið af breyttum þörfum íbúa, breyttri íbúa samsetningu og orðinni og áætlaðri fjölgun íbúa bæjarins.
Halldór Benjamín Hreinsson
Sandra Sigurðardóttir
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Njörður Sigurðsson
Arnar Ingi Ingólfsson
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.
4.Fundargerð velferðar- og fræðslunefndar frá 9. apríl 2025
2504005F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 2.
Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Friðrik Sigurbjörnsson og Sandra Sigurðardóttir.

Liður 2 "Reglur um fjárhagsaðstoð Hveragerðisbæjar" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkir reglur um fjárhagsaðstoð Hveragerðisbæjar.
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkir reglur um fjárhagsaðstoð Hveragerðisbæjar.
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.
5.Fundargerð ungmennaráðs frá 29. apríl 2025
2504010F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 2.
Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Sandra Sigurðardóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Njörður Sigurðsson.

Liður 2 "Erindisbréf ungmennaráðs" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir erindisbréf ungmennaráðs.
Meirihluti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun.
Í upphafi kjörtímabilsins var það eitt af umbótaverkefnum meirihlutasamkomulags Framsóknar og Okkar Hveragerðis að koma ungmennaráði bæjarins aftur á laggirnar og virkja það í málefnum ungmenna. Fyrsti fundir ráðsins markar nýtt upphaf í málefnum ungmenna í Hveragerði og bæjarstjórn væntir mikils af vinnu ráðsins og spennandi ungmennamálum framtíðarinnar sem bíða eftir að komast í gagnið.
Halldór Benjamín Hreinsson
Sandra Sigurðardóttir
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Njörður Sigurðsson
Arnar Ingi Ingólfsson
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.
Bæjarstjórn samþykkir erindisbréf ungmennaráðs.
Meirihluti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun.
Í upphafi kjörtímabilsins var það eitt af umbótaverkefnum meirihlutasamkomulags Framsóknar og Okkar Hveragerðis að koma ungmennaráði bæjarins aftur á laggirnar og virkja það í málefnum ungmenna. Fyrsti fundir ráðsins markar nýtt upphaf í málefnum ungmenna í Hveragerði og bæjarstjórn væntir mikils af vinnu ráðsins og spennandi ungmennamálum framtíðarinnar sem bíða eftir að komast í gagnið.
Halldór Benjamín Hreinsson
Sandra Sigurðardóttir
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Njörður Sigurðsson
Arnar Ingi Ingólfsson
Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.
6.Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 30. apríl 2025
2504012F
Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson og Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir.
Fundargerðin er staðfest.
7.Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 2. maí 2025
2504011F
Liðir afgreiddir sérstaklega: 1, 2, 3, 5, 7, 8, 9 og 10.
Enginn tók til máls.
Enginn tók til máls.
Liður 1 "Deiliskipulag hesthúsasvæðis á Vorsabæjarvöllum - breyting vegna borholu" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin víkur ekki verulega frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Liður 2 "Breiðamörk 17 - Umfangsflokkur 2" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Breiðumörk 15, 16, 18 og 19 og Hveramörk 8 og 10.
Liður 3 "Austurmörk 6 - Auglýsingaskjár á bæjarlandi" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn synjar beiðni Greenhouse hótels ehf. um uppsetningu skiltis utan lóðarmarka Austurmarkar 6 á bæjarlandi við Breiðumörk þar sem sú staðsetning er talin skapa óþarfa hættu fyrir umferð gangandi vegfarenda á Breiðumörk. Bæjarstjórn samþykkir hins vegar að heimila uppsetningu skiltisins innan lóðar Austurmarkar 6, í suð-austur horni lóðarinnar við Sunnumörk, sbr. 10. gr. lögreglusamþykktar fyrir sveitarfélög í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi. Bæjarstjórn bendir umsækjanda á að um uppsetningu skilta geta einnig gilt ákvæði byggingarreglugerðar.
Liður 5 "Ósk um stækkun lóðar Þelamerkur 47a" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn synjar beiðni lóðareiganda um stækkun lóðarinnar frá lóðarmörkum sunnan megin á lóð að götulínu við Þelamörk en samkvæmt gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir að gerður verði gangstígur á umræddu svæði.
Liður 7 "Erindi um lóð" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn synjar beiðni Þórs Ólafs H Ólafssonar f.h. Bréfdúfnafélags Íslands um lóð fyrir kofa fyrir hænur og dúfur og bendir umsækjanda á þann möguleika að sækja um stöðuleyfi til byggingarfulltrúa Hveragerðisbæjar fyrir slíkum kofa.
Liður 8 "Samþykkt um gjaldskrá vegna refa og minkaveiða" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að hækka gjaldskrá fyrir refa- og minkaveiði um 1000 kr. fyrir mink og 2000 kr. fyrir ref. Eftir hækkun verða 6.000 kr. greiddar fyrir mink og 12.000 kr. greiddar fyrir ref.
Liður 9 "Móttökusamningur vegna seyru" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir móttökusamning við Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. vegna móttöku á seyru.
Liður 10 "Umsagnarbeiðni vegna boholu HS-10 í Hveragerði" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn tekur undir umsögn umhverfisfulltrúa Hveragerðisbæjar sem lögð var fram í skipulagsgátt 23. apríl 2025.

8.Tillaga um sumarlokun á leikskólum frá fulltrúum D-listans
2505007
Fulltrúar D-listans leggja fram eftirfarandi tillögu:
Fulltrúar D-listans leggja til að starfshópur verði skipaður til þess að skoða möguleikann á því að leikskólar bæjarins verði ekki með sumarlokanir, þess í stað verði foreldrum og forráðamönnum gert að taka fjögurra vikna samfellt sumarfrí fyrir börn sín á þeim tíma sem hentar þeim og sumarstarfsmenn ráðnir til að leysa af í stað fastráðinna starfsmanna.
Í starfshópnum eigi sæti:
-Leikskólastjórar beggja leikskóla bæjarins
-Verkefnastjóri fræðslumála
-Formaður skólanefndar
-Einn fulltrúi meirihlutans
-Einn fulltrúi minnihlutans
Starfshópurinn skili tillögum sínum til skólanefndar sem taki málið til frekari umfjöllunar.
Eyþór H. Ólafsson
Friðrik Sigurbjörnsson
Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Friðrik Sigurbjörnsson, Sandra Sigurðardóttir og Njörður Sigurðsson

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna.
Meirihluti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun.
Verkefni starfshópsins næstu misseri er mikilvægt - greiningarvinna sem unnin verður með fagfólki og ríkt samtal við alla hlutaðeigandi hópa eru lykilatriði. Þannig verður tryggt að fagsjónarmið verði alltaf til grundvallar vinnunni og opið samtal þar sem öll sjónarmið fái að leggja til málanna.
Mikilvægt er að sem mest sátt verði um þá fagniðurstöðu sem starfhópurinn mun skila af sér.
Fyrirkomulag sumarlokanna verður eins og ákveðið hefur verið fyrir komandi sumar, árið 2025.
Halldór Benjamín Hreinsson
Sandra Sigurðardóttir
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Njörður Sigurðsson
Arnar Ingi Ingólfsson
Meirihluti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun.
Verkefni starfshópsins næstu misseri er mikilvægt - greiningarvinna sem unnin verður með fagfólki og ríkt samtal við alla hlutaðeigandi hópa eru lykilatriði. Þannig verður tryggt að fagsjónarmið verði alltaf til grundvallar vinnunni og opið samtal þar sem öll sjónarmið fái að leggja til málanna.
Mikilvægt er að sem mest sátt verði um þá fagniðurstöðu sem starfhópurinn mun skila af sér.
Fyrirkomulag sumarlokanna verður eins og ákveðið hefur verið fyrir komandi sumar, árið 2025.
Halldór Benjamín Hreinsson
Sandra Sigurðardóttir
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Njörður Sigurðsson
Arnar Ingi Ingólfsson
9.Loftslagsstefna Hveragerðisbæjar, síðari umræða
2502007
Loftslagsstefna Hveragerðisbæjar lögð fram til síðari umræðu.
Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson og Njörður Sigurðsson.

Bæjarstjórn samþykkir Loftslagsstefnu Hveragerðisbæjar til ársins 2033.
10.Úthlutun leikskólavistunar haustið 2025
2505009
Minnisblað deildarstjóra fræðslusviðs lagt fram um úthlutun leikskólaplássa haustið 2025.
Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Sandra Sigurðardóttir, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Friðrik Sigurbjörnsson.

Lagt fram til kynningar.
Meirihluti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun.
Í upphafi kjörtímabilsins var það eitt af megin markmiðum og áherslum meirihlutasamkomulags Framsóknar og Okkar Hveragerðis að bjóða öllum tólf mánaða börnum leikskólapláss.
Nú hefur öllum börnum fæddum árið 2024 verið boðið leikskólapláss fyrir næsta skólavetur, áfangi sem er mikið fagnaðarefni fyrir foreldra, börn og alla Hvergerðinga. Hveragerði státar af tveimur frábærum leikskólum og næstu mánaðarmót verður tekin í notkun ný og glæsileg viðbygging við Óskaland með nýrri framúrskarandi lóð. Mikill og stór áfangi í uppbyggingarsögu bæjarins.
Halldór Benjamín Hreinsson
Sandra Sigurðardóttir
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Njörður Sigurðsson
Arnar Ingi Ingólfsson
Meirihluti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun.
Í upphafi kjörtímabilsins var það eitt af megin markmiðum og áherslum meirihlutasamkomulags Framsóknar og Okkar Hveragerðis að bjóða öllum tólf mánaða börnum leikskólapláss.
Nú hefur öllum börnum fæddum árið 2024 verið boðið leikskólapláss fyrir næsta skólavetur, áfangi sem er mikið fagnaðarefni fyrir foreldra, börn og alla Hvergerðinga. Hveragerði státar af tveimur frábærum leikskólum og næstu mánaðarmót verður tekin í notkun ný og glæsileg viðbygging við Óskaland með nýrri framúrskarandi lóð. Mikill og stór áfangi í uppbyggingarsögu bæjarins.
Halldór Benjamín Hreinsson
Sandra Sigurðardóttir
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Njörður Sigurðsson
Arnar Ingi Ingólfsson
11.Auglýsing á úthlutun lóða í Kambalandi og ákvörðun um byggingarréttargjald
2505012
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um auglýsingu á úthlutun lóða í Tröllahrauni og álagningu byggingaréttargjalds.
Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Njörður Sigurðsson.

Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa úthlutun 11 lóða í Tröllahrauni í samræmi við reglur Hveragerðisbæjar um úthlutun lóða og að nýtt verði heimild 6. gr. samþykktar um byggingargjöld í Hveragerði til að leggja 40% byggingarréttargjald á hverja lóð.
Arnar Ingi Ingólfsson vék af fundi undir þessum lið.

Fundargerð upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 18:12.
Getum við bætt efni síðunnar?