Fara í efni

Bæjarstjórn

592. fundur 10. apríl 2025 kl. 17:00 - 19:15 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Halldór Benjamín Hreinsson forseti bæjarstjórnar
  • Sandra Sigurðardóttir varaforseti bæjarstjórnar
  • Njörður Sigurðsson aðalmaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir aðalmaður
  • Thelma Rún Runólfsdóttir aðalmaður
  • Alda Pálsdóttir aðalmaður
  • Eyþór H. Ólafsson varamaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Íris Bjargmundsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Íris Bjargmundsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Forseti bæjarstjórnar, Halldór Benjamín Hreinsson, setti fund og stjórnaði. Leitaði hann eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

Í upphafi fundar lagði forseti til breytingu á dagskrá fundarins. Lagði hann til að Loftslagstefna Hveragerðisbæjar, sem er 8. liður í fundargerð fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 1. apríl 2025 og liður nr. 8 á þessum bæjarstjórnarfundi, verði 13. mál á dagskrá fundarins.

1.Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024

2503192

Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur Hveragerðisbæjar fyrir árið 2024.

Á fundinn mætti Magnús Jónsson frá KPMG endurskoðun og lagði fram endurskoðunarskýrslu sína. Kynnti hann ársreikninginn og endurskoðunarskýrsluna.



Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, Eyþór H. Ólafsson, Njörður Sigurðsson, Alda Pálsdóttir og Sandra Sigurðardóttir.
Meirihlutinn lagði fram eftirfarandi bókun.
Í ársreikningi Hveragerðisbæjar fyrir árið 2024 er að finna afar jákvæða og einstaka rekstrarafkomu bæjarins. Þetta er sérstaklega ánægjuleg niðurstaða í ljósi þess að nú stendur yfir tímabil umfangsmestu fjárfestinga í uppbyggingu innviða og þjónustu í sögu bæjarins.

Fjárhagsleg staða bæjarins er öflug og stendur vel undir áframhaldandi fjárfestingum í innviðum og þjónustu til bæjarbúa. Samstarf bæjarstjórnar hefur verið gott undanfarið ár og það skiptir miklu máli til að tryggja sem besta útkomu allra bæjarmála, í þágu Hvergerðinga. Í Hveragerði er öflugt lífsgæðasamfélag í vexti og það eru sannarlega bjartir tímar framundan í bæjarfélaginu okkar sem stendur nú í blóma sem aldrei fyrr.

Halldór Benjamín Hreinsson
Sandra Sigurðardóttir
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Njörður Sigurðsson
Thelma Rún Runólfsdóttir

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikning 2024 til síðari umræðu.

2.Fundargerð bæjarráðs frá 20. mars 2025

2503009F

Enginn tók til máls.
Fundargerðin er staðfest.

3.Fundargerð bæjarráðs frá 3. apríl 2025

2503018F

Liðir afgreiddir sérstaklega: 9 og 10.



Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Sandra Sigurðardóttir, Eyþór H. Ólafsson, Pétur G. Markan, Alda Pálsdóttir, Njörður Sigurðsson og Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir.
Liður 9 "Opnun tilboða í verkið "Hveragerði Gervigrasvöllur - Gervigras"" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Metatron ehf. í verkið sem er 104,1% af kostnaðaráætlun verksins enda uppfylli bjóðandi öll skilyrði útboðsgagna.

Liður 10 "Opnun tilboða í verkið "Hveragerði-Gervigrasvöllur, tæknirými (búnaður)"" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda BV16 ehf. í verkið sem er 72.36% af kostnaðaráætlun verksins enda uppfylli bjóðandi öll skilyrði útboðsgagna.

Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

4.Fundargerð velferðar- og fræðslunefndar frá 17. mars 2025.

2503008F

Liður afgreiddur sérstaklega: 3.



Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson og Sandra Sigurðardóttir.
Liður 3 "Minnisblað v. sérstaks húsnæðisstuðnings" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir hækkun á sérstökum húsnæðisstuðningi afturvirkt frá 1. janúar 2025 þannig að samanlagðar húsnæðisbætur og sérstakar húsnæðisbætur nemi að hámarki 90.000 kr., eða ekki hærri fjárhæð en sem samsvarar 75% af húsnæðiskostnaði, og að leigutaki borgi aldrei minna en 70.000 kr. af leiguupphæðinni í eigingreiðslu.

Klukkan 18:24 var gert fundarhlé.
Klukkan 18:31 hélt fundur áfram.

Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

5.Fundargerð skólanefndar frá 17. mars 2025.

2503006F

Enginn tók til máls.
Fundargerðin er staðfest.

6.Fundargerð menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar frá 19. mars 2025

2503010F

Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Alda Pálsdóttir, Thelma Rún Runólfsdóttir, Eyþór H. Ólafsson og Sandra Sigurðardóttir.
Fundargerðin er staðfest.

7.Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 26. mars 2025

2503014F

Enginn tók til máls.
Fundargerðin er staðfest.

8.Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 1. apríl 2025

2503017F

Liðir afgreiddir sérstaklega: 3 og 4.



Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Eyþór H. Ólafsson, Njörður Sigurðsson, Sandra Sigurðardóttir og Alda Pálsdóttir.
Liður 3 "Deiliskipulag miðbæjar - deiliskipulagsbreyting vegna stækkunar íþróttahúss" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar vegna stækkunar íþróttahúss eftir auglýsingu í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Liður 4 "Deiliskipulagsbreyting Ás- og Grundarsvæðis vegna Hverahlíðar" afgreiddur sérstaklega.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ás- og Grundarsvæðis vegna Hverahlíðar í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem fram komu í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. mars 2025 er varðar staðsetningu lóðar RARIK.
Alda Pálsdóttir vék af fundi undir afgreiðslu þessa máls.

Fundargerðin er að öðru leyti staðfest.

9.Skjalafrágangur um lóðina Öxnalæk millilóð, L232486

2504017

Lagt fram minnisblað verkefnastjóra í tæknideild um skjalafrágang vegna undirritunar afsals á lóðinni Öxnalæk millilóð, L232486.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarstjóra heimild til að undirrita afsal um Öxnalæk millilóð, L232486 og önnur skjöl sem skjalafráganginum kunna að tengjast.

10.Breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar - vegna fjölgunar byggðarsamlaga, seinni umræða.

2502165

Lögð fram til seinni umræðu breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar vegna fjölgunar byggðarsamlaga.



Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Njörður Sigurðsson, Eyþór H. Ólafsson og Sandra Sigurðardóttir.
Bæjarstjórn samþykkir breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Hveragerðisbæjar nr. 923/2023 með síðari breytingum.

11.Verklagsreglur vegna viðauka við fjárhagsáætlun

2504038

Lögð fram tillaga að verklagsreglum um feril við framkvæmd og samþykki viðauka við fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að verklagsreglum um feril við framkvæmd og samþykki viðauka við fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar.

12.Samningur um ráðgjafarþjónustu vegna rannsóknar á lífríki Varmár

2504044

Lagður fram samningur Hveragerðisbæjar við Hafrannsóknastofnun um rannsóknir á lífríki Varmár vegna fráveitu skólps frá Hveragerði.



Eftirtaldir tóku til máls: Halldór Benjamín Hreinsson, Eyþór H. Ólafsson og Pétur G. Markan.
Bæjarstjórn samþykkir samning Hveragerðisbæjar við Hafrannsóknastofnun um rannsóknir á lífríki Varmár vegna fráveitu skólps frá Hveragerði og felur bæjarstjóra að skrifa undir samninginn fyrir hönd Hveragerðisbæjar.

13.Loftslagsstefna Hveragerðisbæjar, fyrri umræða

2502007

Loftslagsstefna Hveragerðisbæjar lögð fram til fyrri umræðu.



Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa Loftslagsstefnu Hveragerðibæjar til seinni umræðu.
Fundargerð upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:15.

Getum við bætt efni síðunnar?