SUMARNÁMSKEIÐ LEYNILEIKHÚSSINS Í HVERAGERÐI
FRUMSKÖPUN og SPUNI er aðferðafræðin.
LEIKGLEÐI er útgangspunktur allra námskeiða Leynileikhússins.
Markmið námskeiða Leynileikhússins er að hver nemandi geti búið til leikrit hvar sem er og hvernær sem er, einungis með ímyndunaraflið að vopni.
Leynileikhúsið hefur starfað frá árinu 2004 og staðið fyrir leiklistarnámkeiðum fyrir börn í 1.-10. bekk. Unnið er sérstaklega með samvinnu, hlustun, tjáningu og einbeitingu. Nemendum er hjálpað að finna sínum eigin hugmyndum farveg og byggja þannig upp sjálfstraust og framkomuhæfileika. Námskeiðin eru færð út á græn svæði þegar veður leyfir og lýkur þeim með lokasýningu sem aðstandendum er boðið á.
Námskeið fyrir 8-11 ára verður haldið vikuna 8.-12. Júní - kl. 8.45-12.45.
Kennt verður í húsnæði Leikfélags Hveragerðis, Austurmörk 23.
Allir kennarar sumarsins eru fagfólk í sviðslistum og hafa mikla reynslu af starfi með börnum.
VERÐ: Almennt námskeið: 20 klukkustundir = kr. 26.600.-
Að venju er 15% systkinaafsláttur og reiknast hann af námskeiðsgjöldum allra systkina sem stunda námskeið á sumarönn
Skráningar fara fram á https://leynileikhusid.felog.is/