Fara í efni

Leshringur á Bókasafninu

Bókasafnið í Hveragerði 27. febrúar | 17:00-18:00

Leshringsins verður fimmtudaginn 27. febrúar kl. 17. Þá ætlum við að fjalla um bókina Synt með þeim sem drukkna eftir norska rithöfundinn Lars Mytting. Hægt er að nálgast eintök af bókinni í afgreiðslu bókasafnsins. 

Um bókina:

Edvard elst upp hjá fámálum afa á afskekktum bæ í Noregi. Þegar gamli maðurinn deyr leita á hann knýjandi spurningar: Hvað kom fyrir foreldra hans? Hvað gerðist í Frakklandi 1971, þegar hann var þriggja ára? Hvar var hann í fjóra daga eftir lát foreldranna? Hver var þáttur afabróður hans í þessari örlagasögu? Af hverju töluðust bræðurnir ekki við? Hver er hann sjálfur – og hverra manna?

Leitin ber Edvard burt frá búskap og unnustu til Hjaltlands þar sem hann kynnist Gwen. Nýjar spurningar vakna og brátt verður ekki lengur komist hjá því að halda inn í franska skóginn þar sem hann áttar sig á hvernig saga hans er samofin skelfilegum atburðum tveggja heimsstyrjalda. Þetta er spennusaga, ástarsaga, fjölskyldusaga og ferðasaga. Hún fjallar um stríð og hjartasár – en líka um það hvernig má að lokum græða þau.

Synt með þeim sem drukkna er fjórða skáldsaga norska rithöfundarins Lars Mytting en hann skrifaði einnig vinsæla bók um skógarhögg.

Jón St. Kristjánsson þýddi.

 

Getum við bætt efni síðunnar?