Blómstrandi dagar
12.-15. ágú
Ákveðið hefur verið að halda bæjarhátíðina, Blómstrandi daga, 12. - 15. ágúst nk. Undanfarin ár hafa einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir lagt sitt að mörkum til að gera hátíðina sem veglegasta.
Fjölbreytt skemmtun verður fyrir alla fjölskylduna:
Litaskreytt hverfi bæjarins
Bæjarbúar leggja hátíðinni lið með því að skreyta sitt hverfi og sinn garð að eigin vali. Margir hafa opnað heimili sín og boðið gesti velkomna til að skoða fallega garða, myndlist, hönnun o.fl. Verðlaun verða veitt fyrir skreytingar og einnig fyrir fallegustu götuna.
Verðlaun verða veitt fyrir mestu, bestu og frumlegustu skreytingarnar.
Getum við bætt efni síðunnar?