2. júní 2016
653. fundur bæjarráðs Hveragerðis
haldinn í fundarsal Sunnumörk 2, fimmtudaginn 2. júní 2016 kl. 08:00.
Fundinn sátu:
Unnur Þormóðsdóttir formaður, Viktoría Sif Kristinsdóttir og Þórhallur Einisson.
Fundargerð ritaði: Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri.
Unnur Þormóðsdóttir setti fund og stjórnaði. Í upphafi fundar lýsti hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
Dagskrá:
1. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis frá 31. maí 2016. - 1605033
Með erindinu er óskað umsagnar um frumvarp til laga um timbur og timburvöru, 785.mál.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis frá 31. maí 2016. - 1605033
2. Landskerfi bókasafna frá 25. maí 2016. - 1605036
Lagður fram ársreikningur Landskerfis bókasafna 2015.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:
Landskerfi bókasafna frá 25. maí 2016. - 1605036
3. Félagi opinberra starfsmanna á Suðurlandi, ódagsett 2016. - 1605032
Í bréfinu eru kynntar ályktanir aðalfundar FOSS, stéttarfélags í almannaþjónustu 2016.
Lúta ályktanirnar að styttingu vinnuvikunnar, auknu álagi á starfsmenn sveitarfélaga v.aukins ferðamannastraums og að réttindum eldri borgara.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:
Félagi opinberra starfsmanna á Suðurlandi, ódagsett 2016. - 1605032
4. Sjöstjörnunni fasteignafélagi frá 31. maí 2016. - 1605031
Í bréfinu óskar bréfritari eftir forgangi að lóðum sem kenndar eru við Eden og Tívoli í fjórar vikur. Tímann ætla forsvarsmenn félagsins að nýta til að kanna kosti verkefnis er lúti að uppbyggingu ferðatengdrar þjónustu á lóðunum, afla hlutafjár og vinna að öðrum nauðsynlegum undirbúningi.
Bæjarráð samþykkir að Sjöstjarnan fasteignafélag fái forgang að lóðunum Austurmörk 25, Austurmörk 24, Sunnumörk 3 og Sunnumörk 1 í fjórar vikur.
Fylgiskjöl:
Sjöstjörnunni fasteignafélagi frá 31. maí 2016. - 1605031
5. Írisi Ósk Erlingsdóttur frá 31. maí 2016. - 1605039
Í bréfinu er óskað eftir leikskóladvöl utan lögheimilissveitarfélags.
Bæjarráð samþykkir erindið. Gildir sú samþykkt þar til barninu verður boðin leikskólavistun í Hveragerði.
Fylgiskjöl:
Írisi Ósk Erlingsdóttur frá 31. maí 2016. - 1605039
6. Endurnýjun á yfirdráttarheimild hjá Arion banka - 1606001
Í minnisblaði bæjarstjóra er óskað eftir að bæjarráð samþykki yfirdráttarheimild í Arion banka að upphæð 55 mkr. Er þetta í samræmi við reglur er nýverið tóku gildi en þar óskar Arion banki eftir árlegri staðfestingu bæjarstjórnar á yfirdráttarheimild í bankanum.
Bæjarráð samþykkir að yfirdráttarheimild að upphæð 55 mkr verði tekin í Arion banka.
Fylgiskjöl:
Endurnýjun á yfirdráttarheimild hjá Arion banka - 1606001
7. Minnisblað frá bæjarstjóra - Litla brauðstofan - 1605038
Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir erindi er varðar staðsetningu á bíl er afgreiði brauð til þeirra sem pantað hafa hjá Litlu brauðstofunni og annarra sem versla vilja. Bíllinn yrði staðsettur á umræddum stað á laugardögum milli kl. 09:30 - 13:00.
Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti en minnir um leið á að samþykki lóðarhafa umræddra svæða þarf fyrir staðsetningunni.
Fylgiskjöl:
Minnisblað frá bæjarstjóra - Litla brauðstofan - 1605038
8. Heilbrigðiseftirliti Suðurlands frá 25.5.2016. - 1605034
Lögð fram fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 25. maí 2016.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:
Heilbrigðiseftirliti Suðurlands frá 25.5.2016. - 1605034
9. Héraðsnefnd Árnesinga frá 27. apríl 2016. - 1605035
Lögð fram fundargerð Héraðsnefndar Árnesinga bs frá 27. apríl 2016.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:
Héraðsnefnd Árnesinga frá 27. apríl 2016. - 1605035
10. Brunavörnum Árnessýslu frá 25.5.2016. - 1605037
Lögð fram fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 25. maí 2016.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:
Brunavörnum Árnessýslu frá 25.5.2016. - 1605037
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 8:37
Unnur Þormóðsdóttir Viktoría Sif Kristinsdóttir Þórhallur Einisson