Hveragerði verður heilsueflandi samfélag
Hveragerðisbær hefur ákveðið að bætast í hóp þeirra sveitarfélaga sem vinna í samstarfi við Embætti landlæknis að Heilsueflandi samfélagi. Vinna við innleiðingu, Heilsueflandi samfélags, mun því hefjast sem fyrst.
Hveragerðisbær hefur ákveðið að bætast í hóp þeirra sveitarfélaga sem vinna í samstarfi við Embætti landlæknis að Heilsueflandi samfélagi en bæjarráð samþykkti tillögur menningar og frístundafulltrúa þann 21. febrúar 2019. Vinna við innleiðingu, Heilsueflandi samfélags, mun því hefjast sem fyrst.
Í Hveragerðisbæ hefur heilsa og líðan íbúa verið í fyrirrúmi og um leið hefur stuðningur við menningar-, íþrótta- og frístundahópa verið liður í að byggja upp öruggari starfsvettvang þessara hópa. Grunnskólinn í Hveragerði hefur hafið vinnu í átt að heilsueflandi grunnskóla og því telur bæjarstjórn að mikilvægt sé að stíga skrefið saman í átt að sameiginlegu markmiði í breiðu samstarfi. Heilsueflandi samfélag tengir saman almenna lýðheilsu allra bæjarbúa, skóla og vinnustaða.
Í liðinni viku hófst heilsueflingarverkefni fyrir eldra fólk 60+ og var þátttakan frábær.
Um 78 íbúar mættu í heilsufarsmælingar en dagskrá átaksins byggir á styrktarþjálfun, þolþjálfun og fræðslufyrirlestrum um næringu, líkamsrækt og andlegt heilbrigði. Jónína Benediktsdóttir, heilsumarkþjálfi, leiðir verkefnið fyrir hönd Hveragerðisbæjar í samstarfi við félag eldri borgara.
Í Heilsueflandi samfélagi falla áherslur vel að stefnu bæjarfélagsins hvað varðar stefnumótun og aðgerðir á öllum sviðum og allir hafa þar hlutverki að gegna. Unnið er með áhrifaþætti heilbrigðis og vellíðanar s.s. félags-, efnahags- og menningarlegar aðstæður, manngert og náttúrulegt umhverfi til að skapa sem ákjósanlegastar aðstæður í lífi, leik og starfi fyrir fólk á öllum æviskeiðum.
Jóhanna Margrét Hjartardóttir Menningar- og frístundafulltrúi
Eldri fréttir
-
13. des 2019Bókun bæjarstjórnar Hveragerðis 12.desember 2019
-
11. des 2019Úthlutun dvalar í listamannahúsinu Varmahlíð
-
09. des 2019Röskun á starfsemi bæjarins vegna veðurútlits
-
22. nóv 2019Jól í bæ - viðburðir
-
20. nóv 2019Flýtingu framkvæmda fagnað
-
20. nóv 2019Mun beiðni um viðræður verða samþykkt ?
-
18. nóv 2019Ás-Grundarsvæði, lýsing á deiliskipulagsáætlun.
-
05. nóv 2019Auka á aðgengi að þráðlausu neti
-
11. okt 2019Úthlutun fjölbýlishúsa í Kambalandi
-
09. okt 2019Aukin og betri þjónusta fyrir eldri íbúa Hveragerðisbæjar