Björgvin Karl er 3. hraustasti maður heims !
Björgvin Karl Guðmundsson var heiðraður sérstaklega af bæjarstjórn Hveragerðisbæjar síðastliðinn laugardag en hann náði þeim frábæra árangri að lenda í þriðja sæti á heimsleikunum í CrossFit sem haldnir voru í í byrjun ágúst. Er hann þar með þriðji hraustasti maður heims og þótti bæjarstjórn Hveragerðisbæjar því vel við hæfi að heiðra hann sérstaklega af þessu tilefni.
Bæjarstjórn fannst vel við hæfi að Björgvin Karl fengi ókeypis aðgang að sundlauginni Laugaskarði næstu tvö árin og hafði bæjarstjóri á orði að væntanlega myndi aðsókn aukast mjög þar sem gestir laugarinnar mættu búast við því að hitta bronsverðlaunahafann í heita pottinum.
Viðburðurinn var hluti af glæsilegu CrossFit móti sem haldið var í CrossFit stöðinni Hengli á Blómstrandi dögum.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tilefni af Björgvini Karli ásamt fulltrúum Hveragerðisbæjar og einnig af bronsverðlaunahafanum ásamt foreldrum sínum.
Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri
Eldri fréttir
-
22. nóv 2019Jól í bæ - viðburðir
-
20. nóv 2019Flýtingu framkvæmda fagnað
-
20. nóv 2019Mun beiðni um viðræður verða samþykkt ?
-
18. nóv 2019Ás-Grundarsvæði, lýsing á deiliskipulagsáætlun.
-
05. nóv 2019Auka á aðgengi að þráðlausu neti
-
11. okt 2019Úthlutun fjölbýlishúsa í Kambalandi
-
09. okt 2019Aukin og betri þjónusta fyrir eldri íbúa Hveragerðisbæjar
-
07. okt 2019Það er einfalt að flokka lífrænt
-
29. sep 2019Nýbygging samþykkt við Ás, dvalar og hjúkrunarheimili
-
02. sep 2019Lýðheilsugöngur í Hveragerði