Útboð í gluggahlið sundlaugarhússins í Laugaskarði
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í endurnýjun gluggahliðar 2. hæðar sundlaugarhússins í Laugaskarði.
Verkið felur í sér niðurrif og förgun á 51 fermetra gluggahlið úr timbri og smíði og uppsetningu á nýrri gluggahlið með opnanlegum hurðum og gluggafögum, tvöföldu einangrunargleri í efri hluta og tvöföldu lituðu gleri í neðri hluta.
Upphaf verks: Við undirritun verksamnings Verklok: 31. maí 2017
Útboðsgögn verða afhent frá og með mánudeginum 23. janúar nk. Væntanlegir bjóðendur fá þau afhent rafrænt og án endurgjalds, með því að tilkynna þátttöku sína á tölvupóstfangið arkibullan@arkibullan.is þar sem þeir tilgreina nafn, kennitölu og síma bjóðanda.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hveragerðisbæjar að Sunnumörk 2, mánudaginn 6. febrúar nk. kl 14:00.
Bæjarstjórinn í Hveragerði
Eldri fréttir
-
11. des 2019Úthlutun dvalar í listamannahúsinu Varmahlíð
-
09. des 2019Röskun á starfsemi bæjarins vegna veðurútlits
-
22. nóv 2019Jól í bæ - viðburðir
-
20. nóv 2019Flýtingu framkvæmda fagnað
-
20. nóv 2019Mun beiðni um viðræður verða samþykkt ?
-
18. nóv 2019Ás-Grundarsvæði, lýsing á deiliskipulagsáætlun.
-
05. nóv 2019Auka á aðgengi að þráðlausu neti
-
11. okt 2019Úthlutun fjölbýlishúsa í Kambalandi
-
09. okt 2019Aukin og betri þjónusta fyrir eldri íbúa Hveragerðisbæjar
-
07. okt 2019Það er einfalt að flokka lífrænt