Fyrstu vortónleikar Karlakórs Hveragerðis

Laugardaginn 28. apríl kl. 16:00 fara fram fyrstu vortónleikar Karlakórs Hveragerðis í Hveragerðiskirkju.
Kórinn sem er rétt að verða tveggja ára var stofnaður haustið 2016. Stjórnandi og undirleikari er Örlygur Atli Guðmundsson. Um 30 karlar úr Hveragerði, Ölfusi og Selfossi æfa að jafnaði með kórnum þar sem léttleikinn er í fyrirrúmi enda öll lög kórsins létt og skemmtileg.
Á vortónleikunum koma Bassadætur fram með kórnum en það eru systurnar Dagný Halla og Unnur Birna, Björnsdætur, búsettar í Hveragerði. Gleðimennirnir Jón Magnús Jónsson og Ólafur M. Magnússon mun einnig koma fram og synja nokkur lög með undirleikara sínum, Arnhildi Valgarðsdóttur. Jón og Ólafur munu líka syngja nokkur lög með kórnum sem gestasöngvarar. Pétur Nói Stefánsson, 14 ára stórefnilegur tónlistarmaður í Hveragerði mun leika undir á píanó í laginu Hraustir menn með kórnum. Einsöngvarar úr röðum kórsins verða þeir Arnar Gísli Sæmundsson og Erlendur Eiríksson.
Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 krónur, frítt er fyrir 12 ára og yngri.
Eldri fréttir
-
09. des 2019Röskun á starfsemi bæjarins vegna veðurútlits
-
22. nóv 2019Jól í bæ - viðburðir
-
20. nóv 2019Flýtingu framkvæmda fagnað
-
20. nóv 2019Mun beiðni um viðræður verða samþykkt ?
-
18. nóv 2019Ás-Grundarsvæði, lýsing á deiliskipulagsáætlun.
-
05. nóv 2019Auka á aðgengi að þráðlausu neti
-
11. okt 2019Úthlutun fjölbýlishúsa í Kambalandi
-
09. okt 2019Aukin og betri þjónusta fyrir eldri íbúa Hveragerðisbæjar
-
07. okt 2019Það er einfalt að flokka lífrænt
-
29. sep 2019Nýbygging samþykkt við Ás, dvalar og hjúkrunarheimili